Dagblað

Tölublað

Dagblað - 30.07.1925, Blaðsíða 2

Dagblað - 30.07.1925, Blaðsíða 2
2 DAGBLAÐ og vantar enn mikið á að það hafi yfir svo miklu fé að ráða. En myndin er komin og var af- hjúpuð í húsi félagsins í gær. Var listakonan sjálf viðstödd þar, og enn fremur þeir Jón Magnússon forsætisráðherra og Jón Porláksson fjármálaráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Margir voru þar fleiri gestir. Th. Krabbe talaði þar fyrir hönd Listvinafélagsins og skýrði frá tildrögum þess, að myndin er hingað komin. Að lokum þakkaði hann listakonunni fyrir unnið starf hennar og óskaði henni gæfu og gengis í framtíð- inni. Myndin verður til sýnis í húsi Listvinafélagsins fyrst um sinn, og enn hefir eigi verið ákveðið hvar hún á að vera framvegis. Getur hver, sem vill, fengið að skoða hana gegn því að greiða lítið gjald, og rennur það í myndarkaupasjóðinn. Ennfrem- ur verða seld póstkort af lista- verkinu og rennur ágóðinn af sölu þeirra í hinn sama sjóð. Ungfrú Nina Sæmundsen hefir dvalið erlendis síðustu sex árin, en kom nú heim snöggva ferð. Hún siglir aftur með íslandi í dag. Þara-aska. Sainkepni milll Skota ogFrakka »Dagblaðið« hefir áður vakið máls á því að íslenzkir kaup- staðarbúar og fólk f sjávarsveit- um ætli að gera sér það að at- vinnugrein að brenna þara og selja öskuna. Skal hér vísað til þeirra greina, sem um það mál hafa verið hér í blaðinu. Eftirspurn að þaraösku fer sí- felt vaxandi og verðið hækkar að sama skapi. Eftir því sem »Stavanger Aftenblad« segir, hefir þarabrensla í Noregi aldrei verið jafnmikil og í ár. Það eru aðal- lega Skotar og Frakkar, sem keppast um að kaupa öskuna og hafa Skotar jafnaðarlega boðið hærra verð, en nú eru Norðmenn þó farnir að selja ösku til Frakklands. Er það einkum aska frá Jaöri, sem sózt er eftir. Árið 1923 var verð á henni 18—20 aura pr. kg., í fyrra 25 aurar og núna 29 aur- ar pr. lcg. Norðurlandsaska er ekki í alveg eins háu verði. Senda Norðmenn nú hvern skips- farminn eftir annan til útlanda og græða vel á þessari atvinnu- grein. Hvenær skyldi íslendingar hafa rænu í sér til þess að fara að dæmi þeirra? Fyrir nokkrum árum var þarabrensla hér á Alftanesi og þótti askan fyrir- tak — meira af joðefni í henni en annari ösku. íslendingar ætti því að geta kept við Norðmenn um gæði þaraösku og unnið sér inn mikið fé í frístundum sínum. Stórbruni. 45000 fbúa borg brennur tll kaldra kola. Snemma í júlímánuði brann borgin Manizales í Columbia til kaldra kola og er tjónið metið 80—90 miljónir króna. Skjala- söfn ríkis og borgar brunnu og ennfremur týndust allir sjóðir og bankafé í eldinum. íbúarnir, sem voru yfir 45 þúsund, urðu allir húsnæðislausir og var sent þangað herlið til þess að halda uppi reglu og vaka yfir bruna- rústunum. Manizales er að norðanverðu í Andesfjöllum í Columbia. Eru þaðan um 100 mílur Bogota, sem er höfuðborgin í því ríki. Vegir eru slæmir þarna í fjöll- unum og hafa menn enn eigi treyst sér til þess að leggja þar járnbrautir. Nota Manizalesbúar því múldýr til þess að halda uppi samgöngum við umheim- inn. Á einum stað hefir þó verið gerð loftbraut á kafla og léttir hún talsvert fólks og farangurs flutninga. í Manizales var kauphöll og þar var mikil verzlun með gull, stórgripi, kaffi, kókó, brenni- stein og ýmsar aðrar framleiðslu- vörur. 'ÐagBlað. I Arni Óla. Ritsljórn: j G Kr Guömundsson. Afgreiðsla 1 Lækjartorg 2, skritstofa J 8ími 744. Ritstjórn fil viðtals ki. 1—3 síðd, Prentsmiðjan Gutenberg hf. Auglýsingaverð: Kr, 1.50 pr. cm. Blaðverð: 10 aura eint. Áskriftargjald kr. 1,50 á mánuði. mr Rakai'A8tofa Einars J. Jónssonar er á Laugaveg 20 B Inngangur frá Klapparstíg. Borgin. SjávarfölJ. Síðdegisháflæður kl. 12,57. Ardegisháftæður kl. 1.20 i nótt. 15. vika sumars hefst í dag. Nætarlaikuir M. Júl. Magnús Hveríisgötu 30. Sími 410. * Nætnrvörður i Reykjavíkur Apó- teki. Tíðarfar. Suðlæg og austlæg ált um alt land. Austan hvassviðri (8) í Vestmannaeyjum, en annars staðar hægviðri. Hiti 9—14 stig (ísafirði). Loftvog stöðug. Skýjað loft alls stað- ar og rigning hór. Loftvægislægð fyrir suðvestan land. Spáð er aust- lægri átt, hægri á Norðvesturlandi; úrkomu á Suður og Suðvesturlandi. — Síðastliðinn sólarhring var úr- koma hér 6,1 rnm. Snudskálinn í Örfirisey er nú full- ger og er i ráði að vígja hann á laugardaginn, vegna pess að versl- unarmannahátíð er á sunnudaginn Kennaraskólinn. Annað kennara- embætti við skólann er auglýst laust og veitist frá 1. oktober næstkom- andi. Byrjunarlaun eru kr. 3000, ens hækka á priggja ára fresti um 300 kr. upp í 4200 kr. Kenslutími er frá fyrsta vetrardegi til síðasta vetrar- dags. Síldveiðaskip. Auk peirra skipa, sem talin voru i blaðinu í gær, stunda pessi skip síldveiðar I sumar: Guðrún (Ói. Davíðsson, Hf.), Borg- lyn (SkúliJónsson o. fl.), Veiðibjall- an (Jón Guðmundsson), Hrefna ex Marian (M. Th. S. Blöndahl) og Svanur II. (L. Loftsson). Guðrún hefir fengið 800 tunnur. Gcngisncfndin. í hana heflr nú verið bætt tveimur mönnum sem fulltrúum aðalatvinnuveganna. Er pað gert samkvæmt lögum frá síð-

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.