Dagblað - 01.08.1925, Qupperneq 3
DAGB LAÐ
3
. Tíðsjá.
Jóhannes Jósefsson
glímukappi og félagar hans hafa
að undanförnu haft sýningar í
New-York. Hefir Jóhannes sýnt
þar sjálfsvörn sína í leik, sem
hann nefnir »Frnmbyggja« (The
Pioner). Er hann sjálfur frum-
bygginn og ráðast lndíánar á
hann. Er sýningum hans hrós-
að á hvert reipi í blöðunum.
Utanáskrift til Jóhannesar er:
Jóhnnnes Jósefsson, Care Paul
Tausig & Son, 104 East 14th.
Street, New York N. Y.
TolIstríÖ.
Pólverjar hafa neytt Pjóðverja
út í tollstrið, og er ekki aö vita
hverjar afleiðingar það kann að
hafa. En það hefir þegar kost-
að báðar þjóðir of fjár og er
talið að fyrstu dagana hafi tjón
beggja þjóða numið 50 þúsund-
um Sterlingspunda á dag. Hafa
báðar þjóðirnar hvor i sínu lagi
bannað innflutning á vörum
hinnar, og er þétta til stórtjóns
fyrir landamærahéruðin, en þó
sérstaklega fyrir Efri-Slésiu. Um
50 þúsundir námumanna í báð-
um löndum hafa mist atvinnu
sina. Kattowitz námafélagið, sem
er eitt hið stærsta í sinni röð,
hefir orðið að loka fjórum af
námum sínum, en tvær eru að
eins reknar með fáum mönnum.
Þrjár stærstu járnverksmiðjurn-
ur, þar á meðal Bismarckverk-
smiðjurnar hafa fækkað starfs-
fólki sínu stórkostlega. 1 Pól-
landi hefir verð á kolum hækk-
að úr 15 i 26 zloty (sloti jafn-
gildir hér um bil íslenzkri krónu).
Ógrynnin öll af kartöflum, græn-
meti, kjöti og öðrum landbún-
aðarafurðum grotna nú niður i
Póllandi, vegna þess að mark-
aður er eigi fyrir þær vörur
nema í Þýzkalandi. Atvinnu-
leysi í Póllandi hefir og farið
ákaflega í vöxt sem von er, því
að helmingurinn af öllum út-
fluttum vörum þaðan hefir áð-
ur farið til Pýzkalands.
um ljós á bifreiðum og reið-
lijolixníi.
Á bifreiðum og reiðhjólum, sem ekið er í lögsagnarumdæmi
Reykjavikur, skulu ljós tendruð eigi siðar en hér segir:
Frá 1. ágúst til 5. ágúst kl. 9s/4
— 6. — — 10. — - 91/*
— 14. — — 15. — — 9V4
— 16. — — 20. — — 9
— 21. — — 25. — — 88/4
— 26. — — 29. — — 81/*
— 30. —' — 2. september rt oo I
— 3. september — 6. — — 8
— 7. — — 11. — — 78A
— 12. — — 15. — H 1
— 16. — — 19. — - 774
— 20. — — 23. — — 7
— 24. — — 28. — - 68/4
— 29. — — 2. október — 672
— 3. október — 6. — — 674
— 7. — —- 10. — — 6
— 11. — — 15. — — 58/4
— 16. — — 19. — — 57*
— 20. — — 24. — — 5*74
v — 25. — — 28. — — 5
— 29. — — 1. nóvember — 48/4
— 2. nóvember — 6. — - 472
— 7. — — 11. — - 47*
— 12. — — 16. — — 4
— 17. — — 21. — — 38/4
— 22. — — 27. — — 31/*
— 28. — — 5. desember - 374
— 6. desember — 31. — — 3
Ákvæði þessi eru sett samkvæmt 46. og 55. grein lögreglu-
samþyktar fyrir Reykjavik, og hér mað birt til leiðbeiningar og
eftirbreytni ölluni þeim, sem hlut eiga. að máli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 31. júlí 1925.
Vigíús Einarsson
settur.
Tilfcynning
frá Bakarameistarafélagi
Reykjavíkur.
Allar brauðsölubúðir verða lokaðar 2. ágúst frá kl. 11 f. h.
Stjórnin.