Dagblað - 14.09.1925, Síða 2
2
DAGBLAÐ
Rögnraldi hafði borist frá skáld-
jöfri þeirra Vestmanna, Stephani
G. Stephanssyni. —; Séra Rögn-
valdur Pétursson er einna á-
hrifamestur af andlegum leið-
togum Vestur-íslendinga, og hef-
ir nú um 25 ára skeið látið sig
öll menningarmál þeirra miklu
skifta. Hann er einn af öflug-
ustu frumherjum i þjóðernis-
baráttu þeirra, og hefír hann
þar verið mikilvirkur og áhrifa-
drjúgur, eins og á öðrum sviðum.
Flugufregn.
Talið er víst að það sé að-
eins ílugufregn að íslands Faik
hafi sokkið á fímtudaginn við
Grænlandsstrendur.
Á fímtudagskvöldið hafði loft-
skeytastöðin hérna samband við
skipið og var þá ekkert að hjá
því. Fregnin hafði borist hingað
frá Danmörku, en var ekki
opinberlega staðfest. í gær barst
danska ráðuneytinu skeyti um
að loftskeytastöðin í Góðhöfn á
vesturströnd Grænlands, hefði
haft samband við skipið kl. 11*/*
á laugardagskvöldið, og er ekki
getið um að neitt hafí þá amað
að, hvorki skipi né skipverjum.
Fregnin um að skipið hafí
sokkið virðist því vera meira
en lítið brengiuð, hvaðan sem
hún á upptök sin.
Bannið í Ameríku.
Nestos fylkhstjóri segir frá.
Dagblaðið hefir nokkrum sinn-
um flutt ábyggileg ummæli
merkra og nafnkunnra manna
nm bannið i Ameríkn, hvernig
það hafi reynst, og hverjum
augum Amerikumenn sjálfir líti
á framtið þess i landinu. Er eigi
iangt siðan blaðið flutti ummæli
norsku þingmannanna Hambro
og Markhus og L. Oftedal ráð-
herra. Skal hér bætt við um-
mælum merks manns, sem er
vel kunnur þeim málum frá upp-
hafí. Maður þessi er R. A. Nestos
(Nestás), guvernör i N. Dakota
i Ameriku. Hann er fæddur og
uppalinn á Vörsi (Voss) í Noregi,
en fór ungur til Ameriku. Hefir
hann með gáfum sinum og frá-
bærum dugnaði rutt sér þar
braut, var hann fyrir all mörg-
um árum kosinnjfyikisstjóri, og
er nú einn hinna merkustu og
mest kunnu Norðmanna þar
vestra.
Nestos hefír i sumar heimsótt
átthaga sína, þar sem hann vat
fátækur smalastrákur i æsku.
Dvaldi haun þar hjá móðnr
sinni gamalli, sem þó er enn í
seli sinu á sumrum. Paðan hélt
svo Nestos til Prag, Berlfnar og
Geneve til að kynna sér störf
Þjóðbandalagsins. — Meðan
Nestos dvaldi á Voss, hélt hann
þar tvo fyrirlestra við geisimikla
aðsókn. Var annar þeirra um
bannið i Ameríku. Skýrði Nestos
frá, að það væri alls eigi afleið-
ing heimsstyrjaldarinnar, að
Amerika væri orðín bannland.
Pegar fyrir strfðið voru 26
bannfylki, en 22 án banns.
Kvað hann Ameríku mundu
halda fast við bannið um aldur
og æfí héðan af, þar eð þjóð-
inni væri það Ijóst, hve mikil-
vægt það væri fyrir heildina, og
munu Ameríkumenn eigi Ieggja
árar í bát, fyr en allar menn-
ingarþjóðir lögleiddu hjá sér
áfengisbann. Taldi Nestos bann-
baráttuna þar vestra ðll áþekka
þvi, sem væri í Noregi, skilyrð-
in hin sömu, — en stjórnarvöld
í Ameríku virtu meira lög sín
og væru þvi löghlíðnari heldur
en í Noregi. Amerikumönnum
er ljóst hvilikur siðferðislegur
og efnahagslegur vinningur bann-
iö hefir reynst þjóðinni. Alþýðan
neytir betur krafta sinna eftir en
áður og hefir miklu meira upp
úr vinnu sinni. Eru bæði verka-
menn og vinnuveitendur sam-
mála um það.
Lœknar og heilsiifrceðingar í
Ameríka hafa veitt hanninn mikið
lið. Hafa þeir fært gildar sann-
anir að þvf, að áfengi i meðöl-
um komi oftar að tjóni en gagni,
og að ýms önnur meðöl koma
að fullu haldi, þar sem komið
gæti til mála að nota áfengi.
Amerfkumenn eru hagsýnir.
Peir lúta þvf ábyggilegum stað-
reyndum og reynslu sjálfra sfn.
fDagðíað.
Bæjarmálablað. Préttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Gtiðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viötalstími kl. 5—7 siðd.
Afgreiðs'la: Lækjartorg2. Simi 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaöverö 10 au. eint. Askriftar-
giald kr. 1,50 á mánuði.
Prentsmiöjan Gutenberg, h.f.
Borgin.
Sjáyarföll. SíÖdegísháflæður kl.
3,10 i dag. Árdegisháflæður kl. 3,30
í nótt.
Nœtnrlteknir Magnús Pétursson,
Grundarstíg 10. Simi 1185.
Nætnrvörðnr i Laugavegs Apóteki.
Tiðarfar. Poka var viða í morgun,
og sumstaðar rigning, mest í Grinda-
vík. Heitast var á Seyöisfirði 10 st.,
Akureyri, Stykkishólmi og Grinda-
vík 9 st. Annarsstaðar 8 st., nema á
Hólsfjöllum 7 st. — í Kaupmanna-
höfn var 13 st. hiti, i Færeyjum 10
st., Jan Mayen 4 og Angmagsalik 6
st. i gær. — I.oftvægislægðir eru
við Jan Mayen og fyrir suðvestan
ísland. Búist er við breytilegri viní-
stöðu og úrkomu Viða, einkum á
Suðurlandi.
Botnia fór til ísafjarðar og Akur-
eyrar i nótt. Meðal farþega voru:
ungfrá Ásta Sighvatsdóttir, Teodór
Lindal og frú, Hallgrimur Bene-
diktsson heildsali, Geir Zoega vega-
málastjóri, Hallgr. Hallgrimsson
magister, dr. Paul, Holm hjálpræð-
ishersforingi og frú.
Lagarfogg fór í gærkvöld frá Hafn-
arfirði vestur oe norður um land.
Meðal farþega voru: Magnús Frið-
riksson Staðarfelli, Sigfús Bergmann
kaupm. í Flatey, barónsfrú E. Pap-
per frá Aberdeen, Mr. Meihlejohn
og sonur hans.
Botnvörpuiigariiir. Belgaum kom
af veiðum í fyrradag með 91 tn.
lifrar, og Hilmir með 73 tn. f gær
kom Geir inn með 87 tn. Skalla-
grímur 120—30 tn. og Ari með 88 tn.
— Mishermi var það i blaðinu á
laugardag, að Baldur liefði komiö
af veiðum.
l’áll ísélfsson er að stofna hér
fjölmennan söngfiokk, sem taka mun
til starfa i þessum mánuði. Mun
hann m. a. æfa stór söngverk eítir
erlenda snillinga, og hugsa menn
gott til, þegar hann lætur til sin
heyra.