Dagblað

Útgáva

Dagblað - 25.09.1925, Síða 1

Dagblað - 25.09.1925, Síða 1
I SUMARVIST Reykjavíkurbarn- anna er nú lokið að þessu sinni. Eru þau nú flest kom- in úr sveitunum, sem þar dvöldu í sumar, en þau, sem ókomin eru munu koma hingað á næst- unni því skólarnir fara nú að byrja. Mun þeim flestum bregða við að koma úr heilnæmi sveita- loftsins og takmarkalitlu frjáls- ræði í einhæfni og óheilnæmi bæjarlífsins. Mun þeim flestum ekkert tilhlökkunarefni að eiga að setjast hér á skólebekk og vera þar allan veturinn, undir ströngum aga, sem reyndar er þeim nauðsynlegur, en mega svo hvergi utandyra um frjálst höf- uð strjúka og geta engin um- svif haft til leika, eða annars þess háttar. Það mun flestum orðið Ijóst hver vandkvæði eru hér á upp- eldi barnanna svo það megi vel takast. Þeir, sem mögulega geta, koma börnum sínum í sveit að sumrinu og verður ekki metið til fjár hvers virði það er. En auðvitað geta ekki nærri allir sem vilja komið þeim þangað, og sírt yngstu börnunum. Ein- hver ráð verður að önna til að breyta þessu til betra viðhorfs svo að sem fæst börn þurfi að vera hér í bænum að sumrinu, vegna þess að ekki er hægt að fá sumarvist fyrir þau annar- staðar. Starfsemi Oddfello’w-fé- lagsins f þá átt er mjög þakkar verð þótt hún sé hvergi nærri full- uægjandi. Einnig hefir nú Hvíta- bandið tekið málið að sér og má mikils vænta af þeirri starfsemi þess, eftir því fordæmi, sem það hefir gefið um ýmsa mannúð- arstarfsemi, en auðvitað verður það að fá þá aðstoð frá öðrum, sem því er nauðsynleg. Sumarheimili fyrir börn þurfa að taka þar við, sem sveitirnar fullnægja ekkj vistarþörfinni. Ár- in 1919—'23 héldu Oddfellowar uppi slíku heimili að Brenni- stöðum í Borgaríirði. Var það starfrækt í 2 mánuði á hverju sumri og nutu þar rúmlega 20 börn góðrar sumardvalar. ífyrra- sumar féll það niður vegna misl- inganna og í sumar sáu þeir sér ekki fært að halda það af einhverjum ástæðum. Hvítaband- ið tók málið að sér í sumar og hélt barnaheimili að Brúar- lándi í Mosfellssveit og var sama forstöðukona þar og verið hafði á Brennistöðum, ungfrú Sigur- björg Þorláksdóttir. Hefir henni farist þetta vandasama starf vel úr hendi og má ekki minna vera, en að henni sé þakkað fyrir. 24 börn voru á Brúarlandi í sumar mismunandi lengi og á ójöfnum aldri, frá 1—12 ára. Þann tíma, sem þau dvöldu þar þyngdust þau frá 2 til 11 pund og sýnir það greinilega hver á- hrif sumardvölin hefir haft. Um þessa starfsemi er aðeins gott að segja, það sem hún nær, en öllum hlýtur að vera ljóst að mörgum sinnum fleiri börn þurfa að komast á svona dvalarstaði og verður að starfa að því með dugnaði, að svo geti orðið. Dagheimilið hér í Kennara-' skólanum í sumar gerði einnig töluvert gagn, en aldrei er hægt að búast við að slík heimili í bæjum geti orðið að sama gagni og ef þau eru höfð í sveit, og er margt sem að því styður. Ekki má búast við að fátæk mannúðarfélög geti af eigin ram- leik haldið uppi dýrum barna- heimilum sumarlangt. Þar verð- ur öflug hjálp annara að koma til styrktar og má búast við að margir vilji leggja jafnmiklu nauðsynjamáli og þessu, þá Iið- semd sem um munar. Nú fer haust og vetur í hönd og á þeim tima ætti að undir- búa svo næstu sumarstarfsemi að miklu meira áynnist en ver- ið hefir og komið þannig að meira og almennara gagni. , (xengl smáíid. Það þarf engan að furða á því, þótt þetta mál hafi orðið bæði Gengisnefnd, bönkum og öðrum erfitt, því að það hefir það orðið alstaðar út um heim, jafnvel þar sem margfalt meiri reynsla var til að byggja á held- ur en hér. Yfirleitt standa sjald- an nokkrar áaetlanir og útreikn- ingar fjármálavaldanna, og með- al almennings ríkja víðast hvar fáránlegustu skoðanir á ýmsum atriðum gengismálsins. Hér á landi virðist jafnvel Alþingi og margir meiri háttar atvinnurekendur og kaupsýslu- menn hafa viljað ætlast til þess af Gengisnefnd, að hún gæti ráðiö genginu og hagað því eftir vild. Hitt sýnist þó auðsætt, að nefndin getur í hæzta lagi að- eins jafnað smásveiflurnar, en ekkert ráðið við þær stóru, sem eru og verða óhjákvæmilegar afleiðingar þess hvernig árar og hvaða straumar þar af leiðandi eru ráðandi í gjaldeyrisverslun- inni. — Allar verða þessar stóru sveiflur væntanlega að hafa sinn eðlilega gang, þangað til ríkis- valdið kemur sjálft til og gerir ráðstafanir til stöðvunar geng- isins. Ekkert slikt vald hefir Gengisnefndinni enn verið gefið svo kunnugt sé, svo að enginn má búast við af henni, að hún geri nein kraftaverk á aðal- hreyfingum krónunnar, hvort sem hún leitar upp eða niður. Það sem blöðin ræða nú mest um er það, hvaða stefnu skuli taka: — að stýfa krónuna þ. e. stöðva hana i lágu gengi eða hækka hana í fyrra gullverð hennar. Um þessi efni hefir Dagblaðið ekki tekið neina afstöðu, en vill reyna að líta sem óhlutdrægast á málið og leiörétta eftir föng- um ýmiskonar misskilning, sem er rikjandi og stafar ýmist af ofmikilli ákefð að verja einstak-

x

Dagblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.