Dagblað

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagblað - 26.09.1925, Qupperneq 2

Dagblað - 26.09.1925, Qupperneq 2
2 DAGBLAÐ Þar höfum vér grundvöll þessa mikla misskilnings, sumra bann- manna og rangfærslu andbann- inga, að um sérstaka siðferðis- hnignun sé að ræða samfara á- fengisbanninu. Það er aðeins hin almenna siðferðishnignun á öllum sviðum, sem hér gerir einna ljósast vart við sig. Það er ekki til sú munaðarvara, sem eigi hefir verið gerð að smygl- vöru. Og nú er áfengissmyglun- in er tekin að minka sökum strangara eftirlits, koma aðrar vörur upp úr kafinu, t. d. kokain, sem nú er farið að skjóta stór- þjóðunum skelk í bringu. Þvi er smyglað í bréfum og á marg- víslegan hátt. — Þessi almenna hnignun gerir engu að síður vart við sig hjá bannlausu þjóðunum, t. d. Svi- þjóð, Danmörku og vfðar. Og jafnvel í Þýzkalandi kveða merk- ir menn sér hljóðs (próf. Kroepe- lin o. fl.) og benda á fordæmi Ameríku. Það einkennilegasta er þó það, að í Sviþjóð og Danmörku knýr hið iskyggilega ástand þjóðirn- ar í áttina til bunnsins! En hér á ísiandi á flótta frá banninu? Helgi Valtýsson. Kristján X., konungur íslands og Dan- merkur er 55 ára í dag. JBorgin. Sjárarfb‘11. Háflæður kl. 12,55 f nótt. Háflæðnr kl. 1,35 á morgun. Nœtnrlæknir Daníel V. Fjeldsted, Laugaveg 38. Sími 1561. Nætnrlæknir aðra nótt Ólafur Þor- steinsson, Skólabrú 2. Simi 181. Nætnryörðnr i Rvikur Apóteki. Tfðarfar. Logn og þnrviðri var viðasthvar i morgun, nema í Vest- mannaeyjum var töluverð rigning. Á Akureyri og Seyðisfirðl var 7 st. hiti, i Vestmannaeyjum 6 st., Horna- firði 5, Rvik, Grindavik og Ísafirði 4. Stykkishólmi og Hólsfjöllum 3 st Helgi Hjörvar: Ný l>ói» j Sögur Kostar i bandi kr. 7,75. Fæst hjá bóksölum. í aðalútsölu hjá Prentsm. Acta Ix. f. Ekkert núll Ekkert lottarí. HLUTAVELTU heldur Unglingast. Unnur nr. 38 á morgun í Goodtemplarahúsinu kl. 5—7 og 8—11 s. d. mjög- gódir mnnir. Athugið! Hlutaveltur Unnar eru ætíð fyrrirmynd. Aðgangur 25 aura Dráttur 50 aura. Aðeius fyrir templara. — í Khöfn var 20 st. hiti, Færeyj- um 7 og á Jan Mayen 0. Töluverð snjókoma var i Angmagsalik í gær. — Veðurspá: Kyrt veður. Messur á morgun: Dómkirkjan kl. 11 og kl. 5 séra Friðrik Hallgrimsson. Fríkirkjan kl. 2 séra Árni Sigurðs- son og kl. 5 séra Haraldur Níelsson. Landakotskirkja kl. 9 árd. Levít- messa og kl. 6 siðd. I.evitmessa með prédikun. MálTerkasýningru Jóns Þorleifsson- ar er nú að verða iokið og þvi vill Dagblaðið hvetja þá, sem ekki hafa ennþá séð hana, að nota þetta sfðasta .tækifæri sem til þess gefst í dag eða á morgun, og mun mörg- um þykja að þeir fari þangað ekki erindisleysu. Guðmundur Einarsson frá Miðdal opnar málverkasýningu á morgun í Guttó uppi. Sýnir hann þar bæði málverk og Raderingar, og einnig nokkrar leirmyndir. Guðmundur er frumlegur listamaður og fjölhæfur, og má búast við að hann hafi margt að sýna er margir vilja sjá. 25 ára hjúgkaparafmœll eiga i dag frú Kristín Þ. Johnsen og Vilhelm Bernhöft tannlæknir. Guðm. B. Tlkar klæðskeri hefir flutt verzlun sina og saumastofu af Laugaveg 5 á Laugaveg 21. Hefir húsið þar verið mikið endurbætt og eru hin nýju húsakynni Vikars rúmgóð og ásjáleg. Nova er væntanleg hingað norður um land á morgun eða á mánudag. ^DagBíaé. Bæjarmálablað. Fréttablað. Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson, Lækjartorg 2. Símar 744 og 445. Viðtalstimi kl. 5—7 síðd. Afgreiðsla: Lækjarforg2. Sími744. Opin alla virka daga kl. 9—7. Blaðverð 10 au. eint. Askriftar- gjald kr. 1,50 á mánuði. Prentsmiðjan Gutenberg, h.f. ísland er væntanlegt hingað á mánudagsmorguninn. Meðal farþega er Einar H. Kvaran. Fyrstu réttir hér nærlendis eru nú um garð gengnarað þessu sinni. í Hafravatns- og Kollafjarðarréttum á þriðjudag og miðvikudag var þurt og gott veður, wágætt réttaveður«, eins og sagt er, og var margt fólk þar saman komið. í Skeiðaréttum og Landsréttum i gær var einnig sæmilegt veður, og miklu betra en áhorfðist í fyrradag. Margir bæjar- búar fóru þangað austur og skemtu sér vel eins og venjulega. Hundaeigrendur í bænum ættu aö gæta þess aö hafa þá sem mest innan húsa, svo þeir séu ekki aö flækjast út um allar götur og taka aftur upp sinn gamla vana, aö hlaupa geltandi á eftir bifreiðum og gera önnur götuspjöll.

x

Dagblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.