Dagblað - 15.10.1925, Page 2
2
DAGBLAÐ
Etó TeMijí
heldur hljótnleik föstudag 16 þ.m.
klukkan 7,15.
í Nýja Bíó.
Emil Thoroddsen aðstoðar.
Efnisskrá:
Beethoven: Vorsónata.
Bach: Partita E-dúr.
Paganini: Konsert D-dúr.
Beethoven: Tyrkneskur marsch
Chopin: Nacturne.
Brahms: Ungverskur danz.
Aðgöngumiðar á kr. 3,00, fást
í bókaverslunum ísafoldar og
Sigf. Eymundssonar.
Islendingar þyrftu að nota dönsk-
una, þó ekki væri nema til þess
eins, að geta skilið valdboð hinna
erlendu yfirmanna. Nú á öldin
a. m. k. að vera önnur, enda
þótt ekki séu aftekin valdboð
Dana. — Samningurinn sæli frá
1. des. 1918 hefir í orði fært
oss heim fult frelsi. Menn skyldi
því ætla, að lokið væri að mestu
andlegu yfirráðunum frá Eyrar-
sundi, en ekki er samt svo vel,
eins og tekið er fram hér að
ofan, því danskan er ennþá að-
alskólamálið erlenda. —
En hvers vegna er þá verið að
burðast með þessa miklu kenslu
í dönsku? Hvers vegna er ekki
reynt að kenna börnum eitt-
hvert það mál, sem þau geta
haft not af hvar sem þau eru
stödd á hnettinum, t. d. ensku,
þýzku eða frönsku? •
Hér þarf gagngerða breytingu.
Við þetta verður ekki unað, og
ber því kenslumálastjórninni að
taka það til rannsóknar, hvort
ekki hæfi betur þroska Islend-
inga og hagsmunum, að börn
þeirra læri eitthvert heimsmál
f stað dönskunnar, sem meiri not
yrðu að. — Síðar skal vikið að
afstöðu móðurmálsins til heims-
málanna, en eitt er víst, að
dönskukenslan á að þoka fyrir
námi annara nytsamari mála.
— ttn.
Verslunarmannafél. Iivíkur.
Aðalfundur
í félaginu verður haldinn annaðkvöld (föstudag.) kl. 81/* í Kaup-
þingssalnum í Eimskipafélagshúsinu.
Stjjórnin. .
Borgin.
HÞagBlað.
Sjárarföll. Síðdegisháflæður kl.
3,53 í daff. Árdegisháflæður kl.
4,10 í uótt.
Nætnrlæknir Magnús Pétursson
Grundarstíg 10. Simi 1185.
Næturvörður í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Hægviðri víðast í morg-
un nema í Vestm.eyjum hvöss aust-
anátt. Fremur kalt viðast hvar, heit-
ast í Vestm.eyjum 3 st., i Rvík og
Seyðisf. 2 og ísaf. 1 st., annarstaðar
frost 1—2 st. og á Hólsfjöllum 4 st.
— í Færeyjum 1 st. hiti, Angmagsa-
lik 2 st. í gær og á Jan Mayen 2 st.
frost í morgun. — Loftvægishæð 770
fyrir norðan land, Búistervið svip-
uðu veðri. —
Hljómleikar Emils Telmányis i
gærkvöld tókust jafn snildarlega og
áður, Og hlaut hann óskifta hrifni
áheyranda. Er ekki ofsögum sagt
af leik Telmányis, en einnig erskylt
að geta pess að undirleikur Emils
Thoroddsens er ágætur. — Næstu
hljómleikar Telmányis verður ann-
að kvöld. —
Fyrirlestrar dr. Kort K. Kortsen
um danskar bókmentir hefjast í Há-
skólanum í dag kl. 5. Aðgangur er
ókeypis og öllum heimili.
A. Woíd celloleikari, sem nýkom-
inn er til Rosenberg, heflr í hyggju
að kenna hér cellospil í vetur.
Hann er talinn mjög fær celloisti
og hefir áður fengist við kenslu i
cellospili.
VæringjasTeit skáta á að koma
saman í kvöld kl. 81/* hjá Bernhöfs-
bakarii. —
Oddnr Signrgeirsson »ritstjóri« hef-
ir beðið Dagblaöiö aö skila kveðju
til kunningjanna og að þeir megi
búast við að sjá sjg bráölega í eig-
in háu persónu.
Hann heflr nú um hrið legiö á
Landakotsspitala í annað sinn, vegna
uppskurðar, sem gera varð á hon-
um aftur, en nú er hann á góðum
batgvegi. —
Bæjarstjórnarfnndnr er i kvðld,
engin stórmál eru á dagskrá.
Bæjarmálablað, Fréttablad.
Ritstjóri: G. Kr. GuðmundssoR,
Lækjartorg 2. Simar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 siðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 au. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,60 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f,
Peningar:
Peningar:
Sterl. pd............... 22,45
Danskar kr.............. 115,13
Norskar kr............... 94,92
Sænskar kr.............. 124,17
Dollar kr............... 4,65
Gullmörk ............... 110,52
Fr. frankar ............. 21,70
Regnkápur
sérstaklcga góðar og
í ýmsum lltum
fyrir
kyenfólk
Og
karlmenn
eru
nýkomnar
í Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson.
É dag er tækifæri til að
kaupa af mér hús með lausum
ibúðum í haust. Dragið ekki til
morguns það sem hægt er að
gera i dag. Talið við mig.
Helgi Sveinsson Aðalstr. 11
kl. 11—1 og 6-8.