Dagblað - 30.10.1925, Side 2
2
DAGBLAÐ
— Og hvílík rœktunarskilyrði,
sögðum við við þá dönsku.
Já, við höfum líka þrjár kýr
í Godthaab, sögðu þeir, en við
verðum að gefa þeim inni alt
árið, því Eskimóarnir bera ekki
skynbragð á kvikfjárrækt, enn
sem komið er. Alt lifandi, nema
hunda, drepa þeir og éta undir
eins. þeir eru nýbúnir að drepa
tvo kálfa, sem við sleptum út.
Seinna í sumar varð ég að
fara aftur inn til Godthaab. Við
mistum stóran bát, opinn, og ég
frétti, að Skrælingi einn hefði
fundið hann. En hann vildi ekki
láta af hendi bátinn. Hann ætl-
aði að setja hann á land og búa
undir honum. Til eru gömul
lög hjá Eskimóum, er segja, að
sá eigi fund, sem finnur. Ég bað
nýlendustjórann að vera sátta-
semjari. Ég fékk þá aftur bát-
inn með því að borga 300 kr.
í fundarlaun. Báturinn var 900
kr. virði. Ég greiddi Eskimóan-
um 300 krónur og gerði hann
á svipstundu að »velmegandi«
manni. Hann ætlaði nú að byggja
sér hús inni í »borginni«. Áður
hafði hann búið í moldarholu,
sem við hefðum ekki einu sinni
viljað nota til jarðeplageymslu.
— þar voru mörg þessháttar
húsakynni. Sumir bjuggu þó í
tjöldum eða undir bátum í sumar.
það var ferming í Godthaab
þenna dag. Margt barnanna
skildi dönsku, einkanlega þau,
sem vóru kynblendingar, og úr
þeim flokki virtust þau mörg
vera, — en sum skildu ekki
neitt í dönsku.
»Hvernig leist yður á matar-
hæfið?«
^Það var víst harla bágborið.
Ejnn dag var Eskimói rétt við
skipsbliðina hjá okkur á fiski-
veiðum. t*á kom máfahópur
íljúgandi. Eskimóinn skaut einn
þeirra með bein-ör, reif af
bonum mesta fiðri, og stýfði
svo fuglsskrokkinn úr hnefa«.
»þér ætlið þá víst til Græn-
iands aftur að ári?«
»Já, það hefi ég hugsað mér
svo framarlega sem líf og heilsa
endist. Og þá skal árangurinn
verða betri heldur en í ár, því
þar eru nóg auðæfi að taka af,
bæði lax og þorskur, hvalur
og lúða.«
Helgi Valtýsson.
.Borgin.
Sjávnrföll. Siðdegisháflæður kl.
4,28 í dag. Árdegisháflæður kl.
4,45 í nótt.
Xætnrlæknir M. Júl. Magnús
Hverfisgötu 30. Sími 410.
Nætnrvörðnr í Laugavegs Apóteki.
Tíðarfar. Austlæg og norðaustlæg
átt alstaöar í morgun en hvergi
hvast nema á ísaf. Heitast var í
Grindavik 8 st., Rvík og Vestm.eyj-
um 7, Hornaf., St.hólmi og ísaf. 6,
Raufarhöfn 5, Seyðisf. 4, og á Hóls-
fjöllum 1 st. — í Khöfn var 9 stiga
hiti, í Færeyjum 7, á Jan Mayen 0
og i Angmagsalik, i gær, 2 st. Djúp
loftvægislægð fyrir vestan írland.
Búist er við allhvassri austlægri átt
með úrkomu á Suður og Austurl.
— Hafísjaki var í gær 38 sjóroílur
NNW-W frá Stigahlíð við ísafj.djúp.
Farþegar með Gullfoss í fyrri-
nótt voru m. a.: A. V. Tulinius og
frú, Haukur Thors og frú, Kjartan
Ólafsson læknir og frú, ungfrú Sig-
ríður Zoéga, Guðrún Böðvarsson
og Anna Eiriksdóttir, Eggert P.
Briem, Sigurgeir Einarsson o. fl.
Leikfélag Reykjavíknr byrjar leik-
sýningar núna um helgina oa leikur
þá gamanleik í 3 þáttum eftir þýzka
skopleikahöfundinn Carl Laufs. —
Formaður leikfélagsins er nú Krist-
ján Albertson ritstjóri en aðal leið-
beinandi þess verður Indriði Waage.
Hljómlcika ætla þeir Páll ísólfs-
son og Emil Thoroddsen að halda
í Nýja Bió á sunnudaginn. Leika
þeir saman á tvö flygel og eru lög-
in valin við almenningshæfi. Eyu
slíkir hljómleikar sjaidgæfir hér í
bæ og er ekki að efa aö þeim verði
vel tekið, og ekki sízt þegar þessir
menn eru annarsvegar.
Ranði kross íslands ætlár að efna
til tveggja námskciða í byrjun næsta
mánaðar. Á öðru námskeiöinu verð-
ur kend hjúkrun sjúkra í heima-
húsum, en á hinu hjálp í viðlögum.
Gert er ráð fyrir að hvert námskeið
taki 10 daga og fer kenslan fram að
kvöldinu, lil hægðarauka fyrir þátt-
takendur. Er þetta þörf framtaks-
semi, sem mörgum getur komið að
góðu haldi. —
Óskar Gnðnason gamanvísnasöng-
vari frá Akureyri kom hingað með
Botníu síðast. Hann er sagður mjög
mikill »grínisti« og er mikið af hon-
um látið á Akureyri. Vonandi lofar
hann bæjarbúum að heyra til sín
meðan hann dvelur hér, og má þá
búast viö húsfyili, því mönnum gefst
sjaldan kostur á, að hlusta á góð-
ar gamanvísur. —
^DagBlað.
Ræjarmálablað. Fréttablað.
Ritstjóri: G. Kr. Guðmundsson,
Lækjartorg 2. Símar 744 og 445.
Viðtalstími kl. 5—7 síðd.
Afgreiðsla: Lækjartorg2. Sími 744.
Opin alla virka daga kl. 9—7.
Blaðverð 10 aú. eint. Askriftar-
gjald kr. 1,50 á mánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg, h.f.
Einar E. Markan söng í 4. og síð-
asta sinn i gær við góöa aðsókn og
almenna ánægju áheyrenda. Varð
hann bæði að endurtaka sum lögin
og gefa aukalag að lokum.
Botuvörpungarnir. t morgun komu
afveiðum: Egill Skallagrimsson meö
70 tn., Mai með 45, Otur 83 og Geir
með 60 tn. lifrar. Verða nú botn-
vörpungarnir látnir hætta veiðum
jafhóðum og þeir koma inn, og
skipshafnir afskráðar.
Peningar:
Sterl. pd.............. 22,15
Danskar kr............. 113,88
Norskar kr.............. 93,38
Sænskar kr............. 122,54
Doliar kr.............. 4,58'lt
Gullmörk............... 108,98
Fr. frankar ............ 19,25
Innlend tíðindL
ísafirði, FB., 29. okt. ’25
Bæjarstjórn afgreiddi fjárhags-
áætlun í gærkvöld. Tekjur alls
384 þúsund. Útsvör 161 þúsund.
I fyrra 149 þús. Af nýmælnm
stendur til viðgérð á vatnsveit-
unni, 10 þús.; til stofnunar kúa-
bús á Seljalandi 5 þús. Kosn-
ing fór fram á einum manni í
niðurjöfnuuarnefnd. Ketill Guð-
mundsson var sjálfkjörinn af
lista Alþýðuflokksins.
Vélskipin búast á loðnuveiðar.
Tilkynning
írá Taflíélagi Rv»knr.
Rvík, FB 29. okt. ’25.
í nótt voru sendir héðan leik—
ir á báðum borðunum.
Á borði I var 3. leikur ísl-
(hvítt) c2—c4.
Á borði II var 2. leikur lsk
(c7—c5).