Dagblað - 28.11.1925, Síða 1
KRÓKAVEFIR bæjargatnanna
aukast með ári hverju og
og jafnframt verður vand-
rataðra víðsvegar um bæinn a.
m. k. fyrir ókunnuga. í stað
þess að gera umferðina sem
greiðasta með beinum götum og
reglulegum, eru gerðar nýjar
brautir, sniðgötur og bráða-
birgðavegir, sem ekki fylgja
stefnu eldri gatna, en eru lagðar
eins og verkast vill eftir augna-
bliks ákvörðun skammsýnisins.
Byggingum fjölgar og bærinn
vex með hverju ári sem líður
og við stækkunina verður sum-
staðar óhjákvæmilegt að gera
nýjar götur, en þá ætti að kapp-
kosta að leggja þær sem hag-
kvæmast er bæði með tilliti til
umferðar og útlits bæjarins. En
þessa sjálfsagða skilyrðis virðist
að litlu vera gætt í framkvæmd-
inni. Eftir reynslunni að dæma
má virðast að ekkert sé hugsað
um skipulag né útlits bæjarins
þegar götur eru ákveðnar eða
Qýbyggingar gerðar.
Alt er hér miöað við líðandi
stund, og útgjaldasparnað í upp-
hafi, en þeirrar staðreyndar er í
engu gætt, að of mikill sparn-
aður og óforsjálni getur oft orð-
ið óþægilega kostnaðarsamt í
framtíðinni. það má furðulegt
heita hvernig sumum mönnum,
sem annars eru taldir óheimsk-
ir, geta verið hrapalega mislagð-
ar hendur þegar um sjálfsögð-
Hstu hagkvæmisatriði er að ræða,
og er gatnaskipulagið í Skóla-
^örðuholtinu augljósasta dæmi
þéss af öllum þeim mistökum,
sem hér hafa verið gerð um fram-
tíðarskipulag bæjarins. Engum
mun finnast það gott nema ef
vera kynni þeim, sem mestu
réðu um ákvörðun þess, en samt
er ólíklegt, að þeir séu ekki
hótvij- að koma auga á missmíð-
in 5 þessu illa gerða »víravirki«. ,
^að hefir sannast áþreifanlega
um skipulag bæjarins að lengi
býr að fyrstu gerð og reynsla
framtímans mun verða enn til-
finnanlegri en sú, sem fengin er.
Það er talin siðferðisleg skylda
hinnar verandi kynslóðar, að
búa sem bezt í hendur eftirkom-
enda sína, en þess virðist lítið
hafa gætt í framkvæmdum for-
ráðamanna bæjarins og sízt þar
sem helzt skyídi.
Skipulag bæjarins er stórmál,
sem til þessa hefir að mestu
verið látið afskiftaiaust, hvernig
úr væri ráðið. En svo má ekki
lengur vera, og þurfa allir þeir,
sem láta sig einhverju skiftg
framtíð bæjarins, að hefja sam-
taka sókn til þeirrar stefnubreyt-
ingar, sem hér er nauðsynlegust.
Ætti þá smámsaman að mega
koma byggingarmálum vorum í
betra horf um leið og verstu
afglöpunum yrði afstýrt.
Utan úr heimi.
Khöfn, FB., 27. nóv. ’25.
Frokkum gengur illa að mynda
nýja stjórn.
Símað er frá París, að Her-
riot hafi gefist upp á að mynda
ráðuneytið, þar eð sócialistar
hafi neitað að veita nægilegan
stuðning. — Briand reynir aftur.
Orikkir dæmdir í 142,000
sterl. punda sekt.
Simað er frá Aþenuborg, að
stjórnin hafi í gær fengið bréf frá
nefnd Alþjóðabandalagsins, er
rannsakaði deilumál Grikkja og
Búlgara. Úrskurðar nefndin, að
Grikkir eigi sök á grísk-búlgarska
landamærastríðinu, og er Grikk-
land dæmt í 142,000 st.pd. sekt.
Vanderveide veikur.
Símað er frá Brússel, að Vand-
ervelde sé veikur.
Konungurinn í Síam látinn.
Simað er frá Síam, að kon-
ungur landsins sé látinn.
Lík Alexöndrn ekkjudrotn-
ingur.
Símað er frá London, að lík
Alexöndru hafi verið flutt í gær
frá Sandringham til London með
afarmiklum hátíðleik.
Utanríkisráðherra Rússa
staddnr í Aþenu.
Simað er frá Aþenu, að Tschi-
tscherin sé þar staddar.
Nýtt útgerðarfélag í Faereyjum.
Simað er frá Þórshöfn í Fær-
eyjum, að togarahlutafélag með
100,000 höfuðstól bjóði út hluta-
bréf.
Yeiðiböllu-strandið.
Hrakningar skipbrotsmanna.
í fyrrakvöld komu þeir hing-
að til bæjarins, skipbrotsmenn-
irnir sem af komust, nema mat-
sveinninn Haraldur Kjartansson,
sam eftir varð á leiðinni í Vík
i Mýrdal. — Hinir voru:
Jón Guðmundsson skipstjóri
og eigandi skipsins,
Kristján Vidalin Brandsson,
stýrimaður,
Ingvar Einarsson, 1. vélstjóri,
frá ísafirði,
Aðalsteinn Jónsson, 2. vélstj.,
Jónas Jónasson, frá Flatey,
Einar Guðbjartsson, frá Pat-
reksfirði.
Þeir sem fórust, voru eins og
fyr er á minst í Dagbl., þessir:
Þorsteinn Gottskálksson, Rvík,
Stefán Baldvinsson, Dalvík,
Sæbjörn Hildibrandsson, Hafn-
arfirði. — ,
Hrakningssaga skipverja er
mjög átakanleg.
Skipið hafði farið að áliðnu-
sumri til Noregs með sild,
sildarmjöl og sildaroliu, en tek-
ið aftnr farm í Danmörku, í
Khöfn mótorolíu og benzin, og
í Árósum rúgmjöl. Ferðin gekk