Dagblað

Issue

Dagblað - 11.02.1926, Page 3

Dagblað - 11.02.1926, Page 3
DAGBLAÐ 3 Bann og bíndindi. Norsk löggjöf gegn smygli. Samvinna Norðurlanda — nema íslands? Stórþing Norðmanna befir nú til meðferðar frumvarp til laga um hegningarákvæði fyrir að taka þátt i smyglun erlendis. í frumvarpi þessu er talið hegn- ingarvert athæfi, að selja öðrum skip á leigu, þegar vitanlegt er — eða ætti að vera vitanlegt — að skipið verði notað til smygl- unar, eigi aðeins áfengissmygl- unar, heldur einnig kokain- og vopnasmyglunar. — Lög þessi ná til smyglunar í öllum lönd- um, ekki aðeins í Bandaríkjun- um, og gildir smyglun báðar leiðir (úr landi og til lands). Tilgangur lagafrumvarps þessa er sá, að reyna að girða fyrir að Norðmenn eða norsk skip taki þátt í smyglun til Banda- rikjanna. Hegningarákvæðin eru sett til höfuðs útgerðarmanna skipanna, reiðaranna og þeirra, er taka skip á leigu. það er eigi ætlast til að skipverjar eða skip- stjóri sæti hegningu. Stjórnar- ráðið telur nægilegt, að hegn- ingin sé sektir, ásamt þvf, að andvirði smyglunarvörunnar falli í rikissjóð. — Lagafrumv. þetta sýnir greini- lega hug norsku stjórnarinnar í þessum málum, enda hefir hún unnið kappsamlega og með fullri einbeitni að bindindis- og bann- málum þjóðarinnar þessi tvö ár, sem hún hefir setið að völd- um. Árangur af því starfi stjórn- arinnar er sýnilega mikill. Áfeng- issmyglunin til landsins minkar óðurn og er orðin hverfandi, enda reynist strandvörnin ágæt- lega. Pann 24. des. síðastl. hófst samvinna meðal allra fjögurra grannþjóðanna um sameiginleg- ar varnir gegn áfengissmyglun. Recepl-lögin norsku gera mik- ið gagn. Síðastl. ár hafa nokkrir læknar, lyfsalar og dýralæknar glatað starfsrétti sínum sökum lögbrota sinna, og allmargir læknar hafa fengið alvarlega á- minning og aðvörun stjórnar- valda. — — Hvað gerir stjórn vor í þess- um málum? Æskir hún sam- vinnu við hinar Norðurlanda- Háttvirtu Alþingismenn og fískiþingmenn! Um leið og þér setjist að í bænum tel ég mér skylt að til- kynna ykkur, að ekkert neftó- bak fjörgar andann og skerpir hugsunina eins vel og skorna neftóbakið úr verslun minni. Virðingarfylst. Kristín J. Hagbarð. Laugaveg 26. W Stærsta og fjölbreyttasta úrval af innrömmuðam mynd- um í versl, Katla Laugav. 27. Innrömraun á sama stað. þjóðirnar gegn smygl-víkingnm, eða þykist hún fær í flestan sjó og sjálfbjarga? En auðvitað er það, að æski hún að taka hönd- um saman við grannþjóðirnar, verður hún einnig að láta hend- ur standa fram úr ermum heima fyrir. Og það með meiri karl- mensku heldur en til þessa! Helgi Valtgsson. Feðraniia fold. ilmlaust. í huga sínum var hann óhlífinn við sjálfan sig: — Aldrei get ég orðið ærlega hrifinn í hug og hjarta af neinni hugsun eða tilfinningu. Þótt eitthvað hafi haft áhrif á mig, missi ég óðar alian áhuga fyrir því, er ég tek að kynnast því betur. Nú er ég þrítugur að aldri, mér hefir ekki hepnast að gera mér neitt úr lífi mínn, og héðan af tek ég líklega engum stakkaskiftum.... Vagninn beygði nú út af Menthon-brantinni og hélt á brattann upp að höllinni. Áin mynd- aði landamerki hérna megin. Trébrú liggur yfir hana, og þaðan bugðar sig vegurinn milli gam- alla furutrjáa og virðulegra eika. þar sem ekið er inn í trjágarð hallarinnar, breiða tré þessi skuggasælar greinar sínar yfir þá, sem um veg- inn fara, og áin sígur niðandi framhjá í hægð- um sínum. Kyrð og friður hvílir yfir náttúrunni, og manni verður ljóst, að einstakir staðir geta haft mótandi skapgerðaráhrif á einstaklinginn. Það er ekki einkisvert, að hafa lifað ár sín í skógarsveit með blikandi vötn og fosshvítar ár. Hér fann Lucien æsku sína aftur. Minningarnar höfðu leynst í skógarlaufinu og flugu nú upp fyrir framan hann eins og hræddir fuglar. Hann varð þess var, að liðni timinn var að vakna til lífs hringinn í kringum hann. Alt í einu spratt hann upp í vagninum: — Eskitrénl Eskitrén stóru? Þau vóru þó hérna? Ég þekki mig ekki aftur! Faveraz glotti beiskjulega og svaraði: — Það er nú búið að höggva skóginn þann. — Hvað segið þér? Búið að höggva hann? — Já, herra Lucien. Ráðsmaðurinn yðar segir, að þér hafið selt trén í París. Það var góður efniviður fyrir hjólasmiði. Og þau vóru pen- ingavirði. í brennandi sólarhita ók nú vagninn yfir svæðið, þar sem eskitrén höfðu staðið. Enn var hægt að sjá rótstofna trjánna, sem söguð höfðu verið fast niður við jörðina. Verkamenn vóru nú að grafa kringum ræturnar til að rífa þær upp og hreinsa jarðveginn. Gamall trébekkur stóð rétt við veginn. Gráu plankarnir, er ára- tugum saman höfðu staðið í svalri forsælu, vóru nú sviðnir og verptir af sólinni. Bóndinn benti á þá og mælti: — Það má alt eins vel kippa honum upp núna, það sezt enginn á hann framar, Það var faðir yðar, sem lét setja hann þarna. Honum þótti svo gaman að sitja þarna á kvöldin. Þyrfti maður að spjalla við hann um heimilisstörfin, var hann hér ætíð að hitta. Faveraz hélt ófram tali sínu, miskunnarlaust, báværar lofræður um föðurinn. Lucien svaraði engu. Hann mintist þess nú,

x

Dagblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.