Dagblað

Tölublað

Dagblað - 05.03.1926, Blaðsíða 1

Dagblað - 05.03.1926, Blaðsíða 1
Landsmál. IV. Frá fyrsta tíð hefir tstenzkur iðaaður verið rajög fábreyttar og einhæfur. Alt til síðustu ára hefir varla verið um annan innl. iðnað að ræða en heimiiisiðn- inn gamla. En hann slóð líka um langt skeið i miklum blóma og átti sinn þátt í því, að við- halda þrótli og sérkennum þjóð- arinnar. Fram til siðustu tima var heimilisiðnaðurinn fær um að klæða, að nærri öliu leyti, alian þorra landsmanna. En nú er sú breyting á orðin að heim- ilisiðnaðurinn er orðinn hverf- andi lítill móts við það sem áð- ur var. En jafnframt hefir visir að öðrum iðnaði komið upp, sem reyndar er enn á byrjunar- stigi, en sú litla reynsia sem fengin er gefur góðar vonir ura framhaldið. Að vísu er ekki hægt að bú- ast við, að fjölbreyttur iðnaður geti þrifist hér á landi vegna sérstöðu landsins og skorts á innl. hráefnum til mikils iðn- reksturs. Eu hinsvegar er á það að lita að í sumum iðnaðar- greinum stöndum við vel að vigi og getum komið upp iðn- stofnunum sem mikillar gagn- semi mætti vænta af. Tóvinnu-iðnaðurinn er sú iðn- aðargrein sem nú er lengst á veg komin, en samt ekki leugra en svo, að mikið vantar til að hann geti fullnægt þörfum lands- manna á þvi sviði. Eins og kunnugt er hefir ísl. ullin verið í lágu verði undan- anfarið og má búasl við að erf- itt verði að afla henni góðra markaða erlendis. En samt er tnegnið at henni flutt út úr land- inu vegna skorts á fullkomnum vinnuvélum til að breyta ullinni í þær vörutegundir sem við annars þurfum að kaupa frá útlöndum. — Hér vantar til- finnanlega stóra og íullkomna tóvinnuverksmiðju, sem fnllnægt geti þörfum landsmanna um al- mennustu og nauðsynlegustu klæðavörur. Margar iðnaðargreinar mætti nefna. sem við ættum að geta rekið til nokkurra hagsbóta þrátt fyrir hráefnaskort og erfiða að- stöðu um margt. En einkum er það eitt sem hér ætti að vera rekið í stórum stíl, en það er áburðarvinnsla úr loftinu. Einn örðugasti þröskuldurinn í allri jarðrækt er áburðarskorturinn og ef nokkuð verulegt á að gera tii nýræktar verður að kaupa áburðinn frá öðrum löndum þar sem skilyrði til framleiðslu á- burðarins eru engu betri en hér. Hér falla miljónir hestafla í vatnsorkunni lausbeislaðar til sjávar ár eftir ár, en sama og ekkert er gert til að hagnýta sér verðmæti þeirra. — í auð- ugu landi með miklum rækt- unarskilyrðum, býr þjóð við kulda, harðrétti og efnaskort vegna þess, að framtak vantar til að færa sér mesta aflgjafann í nyt. — Fyrsta skilyrðið til verulegs iðnreksturs er hagnýt- ing fossanna, og fyr en vatns- orkan er bundin má ekki vænta mikilla framkvæmda á því sviði. — En það þarf að verða sem fyrst. — Gnllfogg kom hingaö kl. 7 t gær- kvöld frá Vcsturlandi með marga farpega. Varö hann aö fara fram hjá Sandi og Ólafsvík vegna veöurs, og kom þvi hingaö fyr en búist var viö í gær. Gengismálið. Umræður á Alþingi. ----- Nl. Á mánud. var framhald fyrstu umræðu um málið. Ásg. Ásg. talaði fyrstur og mælti fastlega með verðíesting krónunnar sem næst núverandi gengi, en áleit hækkun í upp- runalegt verð óframkvæmanlega vegna þeirra afleiðinga sem slíkt mundi hafa fyrir atvinnu- vegi þjóðarinnar. — Var mcgin- kafli ræðu Á. Á. um ósamræm- ið milli þess sem J. Þ. héldi fram í bók sinni Lággengi og í ræðum hans nú á þingi. Ól. Thórs tók næstur til máis og hélt langa og mjög skipulega ræðu og er það fyrstá ræða hans á þinginn. Var hann sammála Á. Á. og Tr. Þ. i flestum höfuðatrið- um, en lýsti sig andstæðan stefnn hækkunarmanna. Er það sam- kvæmt framkomu hans í gengis- nefnd, því þar hefír hann jafnan lagst á móti hraðfara hækkun krónunnar, ásamt Tr. F. Benti ’ hann á hver hætta sjávarút- veginum væri búin ef hækkun- arstefnan ætti að ráða, en þeim atvinnuvegi væri hann kunnug- astur. Sagði hann hækkunina ekki hafa verið gerða samkvæmt viija alþingis enda ætti hún enga stoð i lögum. Áleit hann að krónan væri nú of hátt metin og ætti ekki að koma til mála að hækka hana meira en orðið er. — Fjármálaráðherra svaraði ræðumónnum, en gekk að mestu leyti fram hjá ræðu Ól. Thórs. — Ásg. Asg. talaði aftur, og ennfremur fjármálaráðherra, og að lokum hélt flutuingsm. (Tr.

x

Dagblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.