Dagblað - 14.04.1926, Síða 2
2
DAGBLAÐ
í skuggaheimum.
Borgin sem sækir sólina
npp á fjöilin.
Borgin Rjúkan í Noregi, þar
sem Norsk hijdro (loftáburðar-
verksmiðjan mikla) hefir aðset-
ur sitt, er sannefnd skuggadalur.
Liggur borgin á milii hárra
fjalla og er dalurinn feikna
þröngur. Þar sér eigi sól nema
6 mánuði ársins. Um miðjan
marz sést fyrsti sólargeislinn á
vorin, og er þá haldin sólarhátíð
mikil og vegleg. Hefir verk-
smiðjufélagið gert mikið til að
bæta úr þessu sólarleysi á ýmsa
vegu, t. d. með því að létta
verkafólki aðgang að fjöllunum
í kring. Eru lagðir góðir vegir
á fjöll upp, og þar eiga verka-
menn fjallaskála til dvaiar og
hressingar í frítímum sinum.
Á vetrum eru snjóþyngsli
mikil í Þelamörk og fannkyngi,
og þá eigi sízt á Rjúkan; verð-
ur þá illfært upp á fjöllin, nema
á skíðum, og seinsótt, eins og
gefur að skilja. Hefir því félagið
ráðist í að leggja raf-braut »upp
í sóiina«. Á bún að ná upp á
fjöllin, svo auðvelt sé að kom-
ast á svipstundu upp í sólskin
og háfjalialoft. Var fyrst ætlast
til að fjailbraut þessi yrði sömu
tegundar og Fiöy-brautin í
Björgvin, er iiggur með jörðu
upp fjallshiíðina og í gegnum
tvo stóra hjalla. En nú er komið
að þeirri niðurstöðu á Rjúkan,
að betra sé og ódýrara að leggja
hreina loft-braut. Verður byrjað
á henni innan skamms. Verður
braut þessi um 1 km. á lengd
og nær upp í 500 m. hæð yfir
borgina. Er búist við, að hún
verði öll í einu spenni (c: gangi
öll í lausu lofti enda á milli).
Farþegavagnar eiga að vera tveir,
og gengur annar upp er hinn
fer niður. Kostnaður við loftbraut
þessara er eigi ákveðin tii hlít-
ar ennþá, en búist er við, að
hann muni verða um Va mill.
króna. Á brautin að verða til-
búin að ári.
— Fyrir 25 árum siðan var .
ekkert býli í Rjúkan-dalnum.
Einstöku smaii eða veiðimaður
rakst þangað af tilviljun ein-
stöku sinnum, og á sumrum
komu ferðamenn þangað til að
skoða fossinn. Nú er þar borg
með 9—10,000 íbúum og eru
orkuverin með risavöxnustu
vatnsvirkjunar-framkvæmdum í
heimi.
Borgin.
Kætnrlæknir í nótt er Guðmundur
Guðfinnsson, Hverfisg. 35. Sími 64.
Nætnrvörðnr í Laugav. Apóteki.
Gnðsþjónnsta verður í kvöld í
Aðventkirkjunni kl. 8, séra O. j.
Olsen prédikar.
Björgunarskipið Geir kom hingað
i gærkvöld og mun ákveðið að það
verði hér við land framvegis. Fyrsta
verk hans mun verða að reyna að
ná Ásu út. Er það ekki talið alveg
óhugsandi þrátt fyrir slæma að-
stöðu.
Botnvörpuugarnir. í gær komu af
veiðum: Apríl með 105 tn., Baldur
með 96, Menja með 60 og Snorri
goði með 70 tn. í morgun kom
Hafsteinn með 73 tn.
5 skip komu hingað á áttunda
timanum í gær: Esja, Geir og 3
botnvörpungar.
Á útleið verður leikið annað kvöld
og á föstudaginn, — alþýðusýning
bæði skiftin.
Vélbátnrinn Herinóður fer tii
Borgarness i fyrramálið kl, 6 árd.
— Suðurland er nú uppi í aSlippn-
um« til aðgerðar og fer Hermóður
Borgarnessferðirnar á meðan.
Háskólafræðsla. Fyrirlestur um
samvinnumál flytur Ágúst H. Bjarna-
son prófessor kl. 6 i kvöld í Kaup-
þingssalnum.
Eiríbnr Hjartnrsou rafmagnfræð-'
ingur hefir opnað nýja búð og
vinnustofu i húsum Hita og Ljós
við Klapparstig. Hefir hann þar
ýms ný rafmagnstæki á boðstóln-
um og gerir einnig við gömul eins
og Hiti og Ljós gerði áður.
Peningar:
Sterl. pd.............. 22,15
Danskar kr............ 119,34
Norskar kr............. 99,17
Sænskarkr............. 122,21
Dollar kr. ............ 4,56‘/4
Gullmörk.............. 108,60
Fr. frankar............ 16,05
Hoilenzk gyllini...... 183,31
Dagblað.
Þjóðmála-, Bæjarmála-
og Fréttablað.
Útgefandi: Félag í Reykjavík.
Ritstjóri: Guðm. Porláksson.
Afgreiðsla: Lækjartorg 2. —
Sími 744. Áskrifendagjald kr.
1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f.
Tækifærisverð.
Af 8érstökum ástæðum er
hálf húseign í Vestur-
bænum er til sölu.
Laus til íbúðar 14. maí.
Upplýsingar í síma 1551»
Anglýslngnm í Dag»
blaðið má skila í prentsmiöj-
una Gutenberg eða á afgreiðslv
blaðsins. Sími 744,
Tileinkun.
»Hf. Reykjavíkurannál« er
með þakklæti tileinkuð drápa
sú eftir mig, er birtist í Dag-
blaðinu i gær. Treysti ég Tryggva
bezt að flytja hana á viðeigandi
hátt og með þeim »paþos« og
»himnablikki«, sem hæfir slíku
meistarastykki. Anbefalast hon-
um að láta drápuna óbrenglaða
en innleiða hana þannig: »Hér
hefur eina tíþætta, paþólógiska,
fútúristiska, kúbik-drápu eftir
Leir-fúsa«. Er hann þó — og
aðrir lesendur — beðinn að
leiðrétta þessar prentvillur.
I I. þætti 2. 1.: við, ekki með
(við römmu kvefi).
1 I. þætti 5. 1.: skraddarans,
ekki skradsarans.
í V. þætti 8. 1.: Yndið mitt,
þú Lírumlara (ekki punktur á
eftir: þú).
í VIII. þætti 3. 1.: skáld, ekki
skáldið.
Með beztu kveðjum yðar ein-
lægur. Leir-fúsi.