Dagblað - 19.05.1926, Blaðsíða 2
2
DAGBLAÐ
nokkrum rétti, að Hólavöllur
væri æskilegasti staðurinn fyrir
báskóla og stúdentagarð og fyr
en það er endanlega ákveðið,
hvar þær byggingar skuli vera,
má a. m. k. ekki reisa kaþólska
kirkju á Hólavelli.
Út í samanburð á kaþólskri
kirkju og lúterskri skal hér ekki
farið, það geta aðrir gert. Held-
ur ekki út í samanburð á »Merki
krossins« annars vegar, en
sBjarma og Prestafélagsritinu«
hins vegar. Pá sneið geta þeir
hirt sem eiga. — Dagblaðið hefir
farið lofsamlegum orðum um
Merki krossins, en það fær ekki
skilið, að útlit þess (né innihald)
réttlæti kirkjubyggingu á þeim
stað sem engin kirkja á að vera.
— Framtíðarskipulag bæjarins
er meira virði en kirkjubygging
smásafnaðar, og það er hér
aðalatriðið.
Hætta á íerðum.
Tangaveiki á Isaflrði.
Mjög illkynjuð taugaveiki geis-
ar nú á Isafirði, er talið að hún
eigi upptök sin í mjólk sem
fiutt hefir verið til bæjarins frá
sérstöku heimili og hefir fólki
nú verið bannað að neita henoar.
Milli 20 og 30 manns hafa nú
tekið veikina og eru flestir þungt
haldnir en 2 hafa dáið. Nýja
sjúkrahúsið er fult og hefir
Gamalmennahælið (gamli spftal-
inn) einnig verið tekinn fyrir
taugaveikissjúklinga.
Reynt hefir verið aö hefta út-
breiðslu veikinnar innan bæjar
en það hefir tekist illa og koma
daglega fyrir ný sjúkdómstilfelli.
En engar ráðstafanir hafa verið
gerðar til að einangra ísafjörð
og taka fyrir allan flólksflutning
úr bænum til annara héraða.
Virðist- þó vera full ástæða til
þess þar sem taugaveikin er
mjög illkynjuð og virðist ætla
að verða mannskæð, en hins-
vegar miklar og tíðar samgöng-
ur um þetta leyti árs. — Ætti
að mega vænta þess, að heil-
brigðisstjórnin tæki hér í taum-
ana og reyndi a. m. k. að forða
Reykjavík frá þessum vágesti.
Borgin.
Xætnrlœkuir. Jón Kristjánsson
Miðstræti 3 A. Sfmi 686.
Nætnrvörðnr i Laugav. Apóteki
EldTÍgrslan verður leikinn í 20
sinn i kvöld.
Páll Erllngsson sundkennari er
sjötugur í dag. Ætti sá mæti maður
skilið að honum væri einhver sómi
sýndur i tilefni af afmælinu, fyrir
langt starf og ágætt.
Aoregsfarnrnir úr Karlakór K. F.
U. M. láta mjög vel yfir ferð sinni
sem að öllu leyti var hin ánægju-
legasta. Keptust Norðmenn við að
sýna peýn sem mestan sóma og
var þeim alstaðar tek afbragðs vel.
— Tveir af söngmönnunum Por-
bergur Ólafsson og Sig. Waage
komu ekki aftur heim að pessu
sinni, fóru peir frá Osló til Khafn-
ar og munu dvelja par eitthvað.
Botnvörpnngarnir. í gær kom Mai
af veiðum með 73 tn. Menja kom
inn í morgun með 58 tn. lifrar.
Sáiarrannsöknarfélagið heldur fund
annað kvöld og verður par rætt
um húsbyggingarmál félagsins.
Kl. 7V* I kvöld er pað sem
Johannes FönsS syngur i siðasta
sinn. Verður pessi frægi söngvari
pá vonandi kvaddur á viðeigandi
hátt og þakkað fyrir komuna.
Ekkert sæti má vera óskipað i
Nýja Bíó í kvöld.
Peningar.
Sterl. pd 22,15
Danskar kr
Norskar kr .... 99,21
Sænskar kr 122,11
Dollar kr 4,56‘/i
Gullmörk 108,54
Fr. frankar
Hollenzk gyllini
Norrænir menu í Kanada.
Eftir manntalinu frá 1921.
sem nýlega hefir verið birt, voru
þá 16, 525 íslendingar i Kanada.
Af þeim eru 6776 fæddir á ís-
landi. Danir eru taldir þar 21,126,
Sviar 61,503 og Norðmenn 68,856.
Eignir Dana.
Ungur danskur hagfræðingur
hefir nýlega metið til verðs all-
ar eignir Dana. Telst honum,
að þær sén um 22 miljarða virði,
og er það tiltölulega jafnmikil
eign og fyrir strið.
Dagblað
Þjöðmála-, Bæjarmála-
og Fróttablað.
Útgefandi: Félag i Reykjavik.
Ritstjórí: Guðm. Porláksson.
Afgreiðsla: Lækjartorg 2. —
Sími 744. Áskrifendagjald kr.
1,50 á mánuöi.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f.
Af hverju giftast sumar
stúlkur ekki?
Frh.
5. Ajundna stúlkan. Hún er hin
algengasta. Það verður henni að
falli. Hún fyjirlítur unglinginn,
sem leitar ástar hennar, af þvi
að hann býr yfir lilfinningum,
sem hún þekkir ekki.
Hún byrjar snemma að safna
nöfnum manna, »sem hún átti
kost á«, og er sæl í þeirri trú,
að allur þessi hópur elski sig
von og úr viti. Hún ætlar að
giftast þeim álitlegasta, þegar
henni þykir tími til kominn. En
þegar hún ætlar til að taka,
grípur hún í tómt.
Pá kemst hún að þeirri nið-
urstöðu, að allir karlmenn séu
svikarar. ■ En það hlægir hana
á gamals aldri, að athuga hvað
verður um fornvini sína og hugs-
ar með sér, að hefði hún viljað,
þá væri hún nú sýslumannsfrú,
to^kraskipstjórafrú o. s. frv.
.6 Marglofaða stúlkan. Hún
fær marga hringi og er oft kom-
in á fremsta hlunn. En það
kemur stundum bobbi í bátinn.
Hún er í raun og veru allra
besta skinn. Hún er ekki létt-
úðug eða laus á kostunum —
bara dálitið grunnfær. Ekkert i
þessum heimi hefir neina þýð-
ingu fyrir hana. Hún trúlofast að
áslæðulausu og svíkur aftur að
ástæðulausu, hugsandi með sjálfri
sér, að altaf sé hægt að fé sér
nýja félaga. Hún skiftir um
unnusta eins og aðrir skifta um
hatta. í raun og veru er hún
aðeins barn, litiil einfeldningur
með 16 ára þroska. En margir
dæma hana hart og umhverfi
hennar verður stundum óheil-
næmt. Hún verður að lokum
að fá nýtt leikfang, sem aðrar
konur þykjast of góðar til að
öfunda. • Frh.