Dagblað - 21.05.1926, Qupperneq 2
2
DAG B LAÐ
Leikfélag Reykjavikur.
Þrettándakvöld
eða hvað sem vill.
verður leikið í dag kl. 8 síðdegis í Iðnó. — Aðgöngu-
miðar seldir í dag frá kl. 10—1 og eftir kl. 2.
§ími 12. Sími 12.
þólska kirkjan hafi verið þjóð-
leg, þá verða menn að gæta
sín að fella ekki of fljótt dóma
í þá átt. Kaþólskir munkar
skrifuðu margar af sögunum,
en þær hefðu orðið skrifaðar,
enda þótt engin kaþólska hefði
verið hér. Þær eru: íslenzkur
skáldskapur, islenzk menning,
islenzk sagnaritun og verða um
aldur og œvi tengdar islenzkri
þjóð, en engu sérstöku trúar-
félagi. En óþjóðlegir voru hinir
norrænu biskupar, sem fyrstir
ruddu braut utanstefningum og
skutu máli sinu undir norska
menn.
Satt er það að Jón biskup
Arason barðist gegn dönsku
konungsvaldi, en vart trúi ég
þvi, að hjá honum hafi gætl
meiri þjóðrækni, en þjá Bryn-
jólfi biskup Sveinssyni o. s. frv.
Annar er saga Jóns Arasonar
saga islendings, eins og saga
Brynjólfs Sveinssonar. — Kirkja
Jóns Arasonar var líka sjálfstæð
íslensk kirkja og virtu islenzkir
klerkar að vettugi hégómleg
boð Rómarkirkjunnar, svo sem
ókvæmið o. s. frv.
Latínan er mál kirkjunnar en
móðurmálið er ekki mikils virði
hjá henni. Ég minnist hér of-
sókna þeirra, sem beitt var við
Ignaz Wessenberg, er hann tók
upp á því, að láta syngja
þýzka sálma í umdæmi sínu.
í íslenzku ríkiskirkjunni ráða
íslenzkir menntrúarsetningum og
öllu starfi, en í hinni kaþólsku
ræður kirkjuþing alerlendra
manna öllu þvf, sem gert er
hér á landi í söfnuði páfakirkj-
unnar og sé það borið saman
við staðreyndirnar í næsta kafla,
verður séð að slfkt getur orðið
hættulegt. J. N.
Ath. Oss þótti ekki viðeig-
andi að neita grein þessari um
rúm, enda þótt hér sé rniklu
lengra farið en stofnað var til
i fyrstu af blaðsins hálfu, og
rætt um þær hliðar málsins, er
ritstjórnin lætur sig minna skifta
en það, sem áður var um rætt.
Ritstj.
öylfl kom af veiöum i gær með
45 tn. lifrar. Gulltoppur, kom í
morgun með 100 tunnur.
Glímumennirnir.
(Ur tilk. frá sendiherra Dana).
Glímumennirnir komu til
Kaupmannahafnar á miðviku-
dagsmorgun. Blöðin flytja myndir
og samtöl við glímumenn. Jón
Þorsteinsson vottaði Dansk is-
lenske Samfund þakklæti sitt,
og öðrum, sem hafa hlaupið
undir bagga með kostnaðinn.
Ferðaáætlun er tilbúin, og blöð
út um land hafa þegar getið
glímumanna. Sýningar verða i
Kbh. tvo síðustu dagana i maí.
Lokas5Tning á Allerup Stadion.
Borgin.
Nætnrlæknlr. Friðrik Björnsson
Thorvaldsensstræti 4. Sími 178.
Nœtnrvörðnr i Laugav. Apóteki.
Halldór Kiljan Laxness ætlar að
lesa upp á annan i Hvitasunnu
kafla úr hinni nýju sögu sinni,
»Vefarinn mikli frá Kasmir«. Eins
og mönnum er kunnugt, er Kiljan
mjög skemtilegur fyrirlesari og sag-
an sem hann les upp er stærsta og
nýjasta verk hans.
Dnníel Daníelsson dyravörður í
stjórnarráðinu er sextugur í dag.
i
Lýra fór héðan i gærkvöld. Meða
farþega voru Sveinn Björnsson fyrv.
sendiherra, Jakob Thorarensen skáld
og Jón Bergsveinsson erindreki.
Til Vestmannaeyja íór fjöldi fólks,
m. a. G. Björnson landlæknir og
þingmennirnir úr Vestmannaeyjuro
Jóhann Jósefsson og .Gunnar Ólafs-
son, ásamt konum þeirra.
Gagga Lnnd syngur i kvöld kl. 7,15
í Nýja Bíó. Á skránni verða ýms
fögur lög, eftir Schubert og Bra-
Dagblað
Þjöðmála-, Bæjarmála-
og Fréttablað.
Útgefandi: Félag i Reykjavík.
Ritstjóri: Guðm. Porláksson.
Afgreiðsla: Lækjartorg 2. —
Sími 744. Áskrifendagjald kr.
1,50 á mánuði.
Prentsmiðjan Gutenberg h.f.
hms, og þar að auki ýms islenzk
lög með islenzkum textum.
I’rettándakvöld verður leikið í
kvöld. Búist var við að leiksýning-
ar myndu hætta núna vegna burt-
farar eins leikandans, en hann hef-
ir frestað ferð sinni fyrst um sinn
og verður því leikjð nokkrum
sinnum enn.
Jóhaunés Föns fór með Lýru í
gærkvæld. Munu fáir erlendir söng-
mcnn hafa notið hér slikra vinsælda
sem hann, — þeirra sem til hans
heyrðu, og er það að verðleikum.
Hann söng í síðasta sinn í fyrra-
kvöld, fyrir fullu húsi, og þótti ekki
takast miður en hin fyrri skiftin,
þótt efnið væri nokkuð með öðru
móti.
Jón Björusson óðalsbóndi. aö
Ögmundarstöðum i Skagafirði, dó í
fyrramorgun, 19. þ. m. 83 ára að
aldri, að heimili sinu. Hann bjó
þar allan sinn aldur. Kona hans
var Kristin Steinsdóttir frá Stóru-
Gröf i Skagafirði. Áttu þau 5 börn
og eru 4 þeirra á lífi, 2 bræður
Björn Lárus Margeir, kennari að
Ögmundarstöðum og Björn á Stóru-
Seylu og þær Jónína Kristin og Dýr-
unn gift Pórði Kristinssyni kaup-
manni hér í bæ.
Peningar.
Sterl. pd
Danskar kr
Dollar kr