Dagblað

Eksemplar

Dagblað - 07.06.1926, Side 3

Dagblað - 07.06.1926, Side 3
DAGBLAÐ 3 Með þessu blaði Ðagblaðsins hœttir það fyrst um sinn að koma út á hverjum degi. — Til siendur að útgáfuréttur þess, verði kegptur af félagi, sem œtl- ar að gefa það út i stœrra formi og þarafleiðandi með fjölbregttara efni en hingað til hefir verið kostur á vegna rúmtegsis. — Par sem samniugar eru ekki fullkomlega um garð gengnir, verður það aðeins gefið út einu- sinni i viku, á sunnudög- u m , það sem eftir er af þess- um mánuði, og fá fastir og skil- visir kaupendur það ókegpis gf- ir þann tíma. Útg. Slg. Eggerz hefir ritað eftirtektar- verða grein í Vísi á laugardaginn, um bankamálið og næstu kosningar. Telur hann fyrirkomulag seðlaútgáf- unnar stærsta þjóðmálið sem nú sé á dagskrá og heldur fram að um það eigi næstu kosningar að snúast. Tel- ur hann þessvegna æskilegt að listi íhaldsflokksins falli nú við kosging- arnar. Silfnrbrúðkaup eiga 1 dag, frú Halldóra Björnsdóttir og Þórður Sigurðsson prentari og gjaldkeri í Gutenberg. Esja var á Bakkafirði i morgun. Henry Erichsen heldur siðustu harmonikuhljómleika sína á mið- mikudagskvöldið. Aðsókn að þeim hljómleikum sem hann hefir haldið bæði hér og í Hafnarfirði, hefir altaf verið jafn mikið. Héðan mun hann fara umhverfis land. Fiskafli sídan nm áramót. Talið er að i. þ. m. hafi fiskafli á öllu land- inu 173,269 skpd., en á sama tíma 1 fyrra, var aflinn 183,238 skpd. Þýzka hljómsveitin. Kirkjuhljómleikarnir í gær- kvöld voru svo vel sóttir að dómkirkan var meira en full- skipuð. Meðferð hlutverkanna var ágætt og er sízt ofsögum sagt af snild þessarar hljóm- sveitar. Næstu hljómleikar sveitarinn- ar verða haldnir í Iðnó, annað- kvöld og mun þar m. a. Albert Döscher leika hornkonsert eftir Mozart. Er Döscher álitinn ein- hver bezti hornleikari Þýzka- lands. („Hið andlega eitt er ekki nægi- legt. Það þarf einnig að vera eðlílegt"). („Fremskridt*). Tíðsjá. Bílslys í Færeyjum. Um hvítasunnnleytið vildi til fyrsta bílslysið í Færeyjum. t*að var fermingahátið, og bílstjóri var vá sprettinum« allan daginn. Seint um kvöldið misti hann stjórn á bílnum í vegbugðu einni, og rakst billinn á klett og mölbrotnaði. Meiddust far- þegar og bílstjóri mikið, en lét þó enginn lífið. Látinn byskup. Böckmann fyrv. byskup i Niðarósi (Þránd- heimi) er nýlátinn, 75 ára að aldri. Hann var merkur maður og framúrskarandi vel látinn. Konungskoman. Konungshjónin lögðu af stað á þriðjudag kl. 11 f. h. með »Niels Juel«. Fjöldi manna var viðstaddur, bæði embættismenn af ýmsum stigum og almenning- ur. Voru þar og margir íslend- ingar, meðal annara sendih. tsl. i Khöfn. — »Geysir« er í fylgd með konungsskipinu. Fcðranna fold. maí byrjun. Fað hafði verið rigning, er hann fór úr höfuðborginni, en í Savoya fann hann sólina aftur, nýslegna og glóbjarta sól, er stakk höfðinu upp úr vetrarþokunni, og var þegar farinn að hlýja. Hann var dálítið stirður eftir járnbrautarferðina, þar eð hann hafði verið á ferð alla nóttina, og nú teygði hann úr sjer í sólskininu og fann innilega vellíðan streyma um sig allan. Broshýr náttúran, sem bauð hann velkominn, fylti hug hans og hjarta gleði, og hann þráði að koma heim aftur til sveitalífsins. Er hann steig upp í vagninn, rann honum í hug, hve alt var dimt og ömurlegt, þegar hann kom til Annecy í fyrra. »En hvað maður breytistl hugsaði hann með sér. Þá kærði ég mig skollann og ekkert um átthaga mína. Ég var þreyttur og leiður á slæp- ingslifi minu, en ætlaði samt að halda því á- fram. Föðurleyfð mína ætlaði ég að selja, og ég hafði ekki stigið þar fæti í mörg ár. En ég hætti samt við það, og nú kann ég vel við mig hérna. Og mér geðjast vel að borgarstjóratitlinum, sem þeir hafa sett á mig og ávarpa mig með hérna. Það fylgir honum virðingarvottur. Ferðakisturnar voru nú komnar á vagninn, og þeir ætluðu að aka á stað. Þá kom hár maður og gráskeggjaður, andlitið eins og skorið í tré, stik- andi slórum og kallaði: — Herra Halandel herra Halandi! — Eruð það þér, herra Brenaz. — Málið er unnið frá upphafi til enda. Fa- veraz sagði mér, að þér munduð koma með morgunlestinni, og svo langaði mig til að segja yður þessar gleðilegu fréttir, undir eins og þér kæmuð út úr klefanum. — Þakka yður fyrir. Og hvenær féll dóm- urinn? — í gær. Þetta er alveg spánýtt. — Ég óska yður til hamingju, herra lögmað- ur. Menthon-hjeraðið á yður að þakka vatns- leiðslu sína. Sýslunefndin mun færa yður þakk- ir sínar. Hinn gamli lögmaður hristi höfuðið. Hann var ekkert gefinn fyrir hólið, og hann var of ærlegur til að 'reikna sér meira en það, sem honum bar. — Mikill hluti þessa heppilega árangurs er yður að þakka, herra Halande. Ég bygði vörn mfna á hinúm ágætu og skýru upplýsingum, er þér höfðuð gefið mér af málinu. Þeir afréðu að mætast, þegar dómurinn yrði lesinn upp, og svo seig gamli vagninn á stað, svo marraði í hjólunum. — Hefir héraðið unnið málið? spurði Faveraz

x

Dagblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblað
https://timarit.is/publication/605

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.