Okrarasvipan - 15.12.1932, Page 4
Einkennileg
Með stefnu til sáttanefndar,
útgefinni 2. þ. m., krefst Einar
nokkur Jónsson, Spítalastig 10
hjer í bæ, þess, að jeg endur-
greiði sjer víxil að upphæð 8000
kr., er hann kveðst hafa greitt
Magnúsi Sæmundssyni kaupm.,
Skólavörðustíg 13, en að vixli
þessum er Einar samþykkjandi,
en jeg útgefandi. Nú vill svo til,
að Magnús Sæmundsson hefur
fengið dóm á mig fyrir þessum
sömu 8000 krónum, og hefi jeg
greitt Magnúsi SæmundBsyni
dóm þennan að fullu, eins og
eftirfarandi vottorð sýna:
Afrit.
Samkvæmt beiðni Ara Þórð-
arsonar, viðurkennist, að jeg hefi
með höndum vixildóm uppkveð-
inn í gestarjetti Reykjavikur 29.
mars 1930, í málinu: Pétur Ja-
kobsBon gegn Ara Þórðarsyni.
Dómur þesBi er út af vixli að
upphæð kr. 8000,00 — átta þús-
und — krónur, útgefnum af
nefndum Ara þ. 26. Nóv. 1929,
og samþyktum til greiðslu í ís-
lands banka 15. jan. 1930. Þessi
vixill hefir aldrei verið eign mín,
heldur eign Magnúsar Sæmunds-
sonar kaupmanns, Skólavörðu-
stig 13 hjer í bænum, og er víx-
illinn því innheimtuvixill í mín-
um höndum, en mál út af hon-
um verið rekið í minu nafni.
Það skal tekið fram, að sam-
þykkjandi þessa umrædda víxils
er Einar Jónsson, Spítalastig 10
hjer í bænum, og yfir honum hef-
ur verið fenginn dómur sjerstak-
lega. Fyrir þeim dómi hefur ver-
ið gert fjárnám í Vs hluta hús-
OKRARASVIPAN
nálaferli.
eignarinnar nr. 10 við Spítala-
stíg, það þinglesið og framselt
til Magnúsar Sæmundssonar, en
með þvi að jeg hefi ekki getað
fengið leyfi nefnds Magnúsar
Sæmundssonar til að kvitta
nefndan dóm á Ara Þórðarson,
framsel jeg honum ekki dóminn
að svo stöddu máli.
Rvik, Kárastíg 12,
12. Desember 1932.
(sign.) Pjetur Jakobsson.
Vitundarvottar:
(Bign.) Sverrir Sigurðsson.
(sign.) Sigurður Pálsson.
Afrit.
Jeg undírritaður lýsi því yfir,
að jeg tel ekki lengur til skuld-
ar hjá Ara Þórðarsyni, Njáls-
götu 15, og get jeg að mínu
leyti fallið frá þvi, að gjaldþroti
haldi áfram í búi hans.
Reykjavik, 20. Maí 1930.
(sign.) Magnús Sæmundsson.
Það einkennilega í máli þessu
er, að svo virðist, sem jeg eigi
að tvíborga þennan vixii, bæði
Magnúsi og Einari. Auk þess
sem það er óvanaleg aðferð, að
samþykkjandi vixils fari að
ganga að útgefandanum, og get-
ur slikt illa samrýmst hinum
gildandi vixillögum. — Það varð
eðlilega ekkert af þvi, að sætt
tækist milli okkar Einars fyrir
sáttanefndinni, og situr við það.
Einar hefur enn ekki stefnt
mjer fyrír bæjarþing. En nú
skeður annað einkennilegt. Jeg
heyri sagt, að búið sje að stefna
nokkrum vitnum í máli þessu
fyrir bæjarþing, án þess jeg sje
þar tilkvaddur. Skilst mjer ekki,
hvernig hægt er að stefna vitn-
um í máli, sem aldrei hefur
komið fyrir bæjarþing, er ó-
þingfeBt, er með öðrum orðum
ekki til. — »Margt er skrítið i
Harmoniu*, sagði karlinn.
S k r í 11 a.
Fyrir nokkrum árum hafði
dómari nokkur i kaupstað hjer
á landi sökudólg fyrir rjetti, en
þótti sökudólgurinn eitthvað ó-
þjáll og ekki svara sjer Bem
honum likaði. Sinnaðist því dóm-
aranum og varð þetta að orði:
»Þú ert verri en andskotinn,.
n æ r r i því eins vondur og
Metúsalem. —
Dnglegir krakkar,
sem vilja selja »Okrarasvipuna«
á götunum, komi á afgreiðsluna
á Bergstaðastræti 19. Eintakið
kostar 20 aura, en sölulaun eru
5 aurar. — Eldra fólk getur
líka fengið að selja blaðið ef
því sýnist svo.
Verðlannselnlann
Á morgun (föstud.) og allanæstu
viku geta duglegir og ráðvandir
drengir og telpur, og eins eldra
fólk ef vill, fengið að selja 25
aura sögubækur, frá prentsmiðj-
unni áBergstaðastræti 19. Salan
byrjar kl. 10 f. h. Þeir, sem
selja 250 bækur fá 5 kr. verð-
laun. Þeir sem selja 150 fá 3
kr. Þeir sem selja 100 bækur
fá 2 kr. og þeir sem selja 50
til 75 fá 1 kr í verðlaun. Auk
verðlaunanna eru 5 aurar í sölu-
laun af hverrí bók.
Prentsmiðjan á Bergataðastræti 19.