Okrarasvipan - 03.02.1933, Blaðsíða 2
OKBAEASVIPAN
ekkert samneyti hafa við »Júristann hans
Medda«. — Ritleikni þín í »Svindlarasvip-
unni« er heldur ekki vel til þess fallin, að
þurka af þjer skítinn og skarnið. — Að svo
mæltu má jeg ekkí missa af meira rúmi i þínar
þarfir í þetta Binn. En jeg skal hafa þig í huga
Beinna, vertu viss, því það skal aldrei um mig
epyrjast, að mig skorti málfæri gegn illþýði
því, sem safnast hefur utanum Metúsalem Jó-
hannsson, sem aðstoðarlið, gegn mjer, við
eaurblaðsútgáfu þá, er það nefnir »Svindlara-
svipuna«.
Ari Þórðarson.
Fj árdráttnr.
Hefur Metiisalem Jóhannsson,
með aðstoð Péturs Jakobssonar,
féflett fátœka ekk|u?
í Aprílmánuði 1931 var jeg á ferð hjer í
Reykjavík í þeim erindum að kaupa hús, því
jeg hafði í hyggju, að flytja hingað til bæjar-
ins þá um vorið. Jeg hitti fyrir mjer mann, sem
ég þekti og benti hann mér á húseignina nr.
161 við Laugaveg, og taldi mig á að tala við
eiganda hússins, Metúsalem Jóhannsson, Ingólfs-
stræti 16. — Við Metúsalem áttum tal um kaup
á húsinu, og tók hann það fram, að þegar kaupin
yrðu gerð, skyldi jeg greiða sér í peningum
6500 krónur til greiðslu upp í kaupverð húss-
ins, og til að greiða stimpilgjald og þinglestur
á afsalsbréfinu. — Þann 18. máí 1931 kom jeg
heim til Metúsalems. Var þá Pétur Jakobsson
þar staddur. Metúsalem kvað afsalíð vera tilbúið,
og ekkert annað eftir en að ég bórgaði, og að
skrifað yrði undir afsalsbréfið. Afhenti ég þá
Metúsalem, að Pétri áhorfandi, 6500 krónur í
peningum, eins og umtalað var að ég greiddi
honum, þegar kaupin færu fram. Tók Metú-
salem við þessum peningum, taldi þá og Ijet
þá niður. Skrifuðum við svo undir afsalsbréfið
og var Pétur annar vitundarvotturinn. Stóð þá
Metúsalem npp, fór fram i forstofuna og kall-
aði til manns af götunni, og var hann annar
vitundarvotturinn á afsalsbréfinu. Að þessu
loknu kvaðst Metúsalem ætla að sjá um þing-
lestur á afsalsbréfinu, og varð það eftir hjá
honum. Standsetning á húsi þessu kostaði mig
alt að 3000 krónum, og var þá aleiga mín
komin í húsið.
Reykjavík, í Janúar 1933.
Jóhanna A. Jónsdóttir.
Frumrit.
Stimpilgjald kr. 267,75.
AFSALSBRÉF.
Ég, Metúsalem Jóhannsson, Ingólfsstræti 16
hér í bænum, viðurkenni hér með, að ég sel og
afsala til Jóhönnu A. Jónsdóttur, Sundstræti 35
á ísafirði, eignarrétti mínum yfir húseigninni nr.
161 við Laugaveg hér i bænum, ásamt öllu
múr- og naglföstu, sem eigninni fylgir og fylgja
ber, og áBamt eignarlóð, er húsi þessu fylgir,
og öllum mannvirkjum á henni, alt fyrir um-
samið kaupverð, kr. 26,776,56 — tuttugu og
sex þúsund sjö hundruð Bjötíu og sex — krón-
ur og 56/ioo °g hefir kaupandinn greitt mér and-
virði hinnar seldu eignar eins og hér segir:
Kaupandinn hefir tekið að sér að greiða sem
sína skuld skuld til veðdeildar Landsbankans f
Reykjavík, upphaflega að upphæð kr. 10,400,00
— tíu þúsund og f jögur hundruð — krónur, nti
að eftirstöðvum kr. 9776,56 — níu þúsund sjö
hundruð sjötiu og sex — krónur og 5B/ioo áhvíl-
andi 1. veðrétti hinnar seldu eignar.
Kaupandinn hefir tekið að sér að greiða, sem
sína eigin skuld, víxilskuld til Landsbankans i
Reykjavík, upphaflega að upphæð kr. 2200,00
— tvö þúsund og tvö hundruð — krónur, nú
að eftirstöðvum kr. 1000,00 — eitt þúsund —
krónur, áhvilandi 2. veðrétti hinnar seldu eignar.
Kaupandinn hefir greitt eftirstöðvar kaup-
verðsins, kr. 16,000,00 — sextán þúsund —
krónur með veðbréfi útgefnu til handhafa.
Frá 14. þ. m. fær kaupandi allan arð hinnar
seldu eignar, enda greiði hún af eigninni allar
skyldur og skatta frá sama tima og vexti af
lánunum áhvilandi 1. og 2. veðrétti.
Eignin afsalast i því ástandi, sem hún nú er