Okrarasvipan - 03.02.1933, Blaðsíða 4
OKRARASVIPANI
Besta þorskalýsiö
í bænum selur Verslunin BJ0RNINN, Bergstaðastræti 35. Sími 4091. "Wi
Sköfatnaðar-'flatnlngarmn.
Fjrirapurn. í blaði þvl, sem út er
komið af »Okrarasvipunni« sje jeg, að Metú-
salem Jóhannsson hefur látið flytja heim til sin
á bilum heilmikið af skófatnaði úr skófatnaðar-
verBlun þeirri við Óðinstorg, er Sigmundnr
Jóhannsson veitti forstöðu, og það nokkrum
dögum áður en sú verBlun gaf sig upp sem
gjaldþrota. Nú er spurningin, sem þjer, herra
ritstjóri, ef til vill, getið upplýst mig um:
Hafa skuldheimtumenn í búi skófatnaðar-
verslunarinnar gert nokkrar ráðstafanir til
þess að grenslast eftir, hvernig á þessum
flutningi Metúsalems stóð. Eða kannske Metú-
salem sé búinn að borga allan brúsann?
Kaupsýslumaður.
S v a r. Mér er ókunnugt um, hvort nokkuð
hefur verið aðhafst í þessu máli.
R i t s t j.
Metúsalem og Co.
Enginn þeirra manna, sem að »Svindlara-
svipunní* stendur í raun og veru, hefur þóttst
geta verið þektur fyrir það, að koma hreint til
dyraogbera ábyrgð á blaðinu. — Heldur hefur
þetta þokkalega kompaní narrað örvasa gamal-
menni, slituppgefið, og lamað á sál og líkama,
Ólaf Þorsteinsson, Grettisgötu 20 A, til þess að
bera ábyrgð á innihaldi blaðsins, sem mun
vera alveg einBtakt í sinni röð að mislukkuð-
um frágangi. — Þar er alstaðar beinst að minni
lítilfjörlegu persónu, og þeim »maunkostum«,
sem mig eíga að prýða — með tilhlýðilegum
tilvitnunum i heilaga ritningu og önnur helgirit.
— Rit8tjórinn, Pétur Jakobsson, varast sem af
tekur að minnast nokkuð á svindilmál þau, er
jeg, í »Okrarasvipunni«, gerði að íhugunarefni,
og sem hann svo mjög er viðriðinn. Þar er
ekkert minst á Skófatnaðarflutninginn frá Bkó-
búðinni við Óðinstorg eða víxlabrask þeirra
fjelaganna, Péturs og Metúsalems, eða önnur
svindilmál, sem jeg mintist á. — Þeim kump-
ánum er auðsjáanlega ekki Ijúft, að rótað sé
upp i viðskiftamála-ýldunni, Bem þeir leika sér
i. — En jeg mun samt reyna að halda mjer
við málefnið, — reyna að draga fram I dags-
ljósið ýms óþokkaviðskifti þeirra, sem almenn-
ingur til þessa hefur litið fregnað af. — Þeim
tekst ekki til lengdar að láta svindlarabrögð
Bín kafna í skömmum og svívirðingum um
mig. Jegj mun Bjá um það. — En að þeir hafa
fengið Ólaf karlinn auma til þess að ábyrgjast
ritmensku sína og mentunarskort, ber leiðin-
lega mikinn vott um fádæma varmensku þeirra
og kjarkleysi. — A. Þ.
Okrarasvlpan er til sölu á þessum
stöðum: 1 bókabúðunum á Laugavegi 68 og
Laugavegi 10. — Á Bergstaðastræti 19 (skó-
smíðaverkstæðinu) og á Baldursgötu 16 (uppi).
Enn fremur hjá blaðasölunum á Lækjartorgi.
Prentsmiðjan á BergstaðaBtræti 19.
Akraness-kartöflur,
mv þær bestu á íslandi, fást í VERSLUNINNI á ÖÐINSG0TU 30. Slml 4548.