Okrarasvipan - 26.05.1933, Blaðsíða 1
OKRA RASVIPAN
Blað um okus>, ijárdrátt og viðskiita-melnföng af ýmsu t»gl.
Utgefandi og ábyrgðarmaður Ari Þórðarson.
5. tölublað. Föstudaginn 26. Mai 1933. 1. árgangur.
Einstaklings framtak er til sanns
almúgans gagn og sómi,
og með guðrækni grandvars manns
gullvægur náðarblómi.
Eins þótt íbúðarhús
afbreunist hreint i grús
undir húslestri hans,
hjálpa mun aBsúrans;
þjenar á flestu’ hinn frómi.
(Úr „Hugvekju-sálmum").
„Hertoginn af Brandenbnrg".
Um það leyti sem Metúsalem Jóhannsson var
búsettur á Akureyri, fyrir nokkrum árum, urðu
þar stór-brunar sem oftar, og var Metúsalem
eitthvað við þá bruna riðinn. Að 'minsta kosti
var hann kallaður fyrir rjett út af brunum
þessum og varð það til þeBS, að hann fluttist
burt frá Akureyri og settist að vestur í Bitru-
firði. — Nokkru seinna komu menn til Akur-
eyrar þaðan veptan að, og voru þeir meðal
annarB spurðir 'frjetta úr Bitrunni, og leystu
þeir úr spurningum öllum eftir beztu vitund.
En einni Bpurningu, er einn háttsettur borg-
ari lagði fyrir þá, gátu þeir þó fyrst í stað
ekki svarað, en hún var svona:
• Hvernig líður hertoganum af Brandenburg?«
Þeir þektu engan hertoga í Bitrufirðinum, og
það var ekki fyr en þeim var Bagt, við hvern
átt væri, að þeir gátu leyst úr spurningunni.
En við hvern heldurðu að hafi verið átt,
lesari góður?
Skattsvik.
Metúsalem og talan SB.
Þess er getið í einu blaðanna hjer í bænum,
að upp hafi komist ógurleg skattsvik um einn
alþektan borgara bæjarins, en nafns mannsins
er þar ekkí getið. Blað þetta getur upplýst
lesendur sina um það, að þessi alþekti, eða
rjettara sagt »alræmdi« borgari er enginn ann-
ar en MetÚBalem Jóhannsson, Það hefur vitn-
ast um þennan dánumann, þennan »vin vors
og blómac, eins og Pjetur Jakobsson orðar
það, þegar hann nefnir nafn hans, að hann er
eigandi að 35 þúsund króna »handhafa«-skulda-
brjefi, með veði í húseign við Laugaveg, og
hefur honum einhvern veginn gleymst, gamla
manninum, að telja þessa eign sína fram til
skatts. Afsökunin fyrir gleymakunni getur
varla verið önnur en sú, að hann er svo ríkur,
að hann veit ekki aura sinna tal. — Þá hefur
og þesaum »vini vors og blóma« gleymst að
telja fram 15 þúsund króna »handhafa«-skulda-
brjef, með veði í húseign Páls hæztarjettar-