Nýja stúdentablaðið - 01.12.1936, Síða 6
6
NÝJA STÚDENTABLAÐIÐ
ist lieilbrigðisstjórnunum að láta framkvæma skipu-
lagða leit meðal fólksins að smitberum berkla, sára-
sóttar (syphilis), lekanda og annarra smitandi sjúk-
dóma. Þetta afskiptaleysi í heilbrigðismálunum er ör-
lagaþrungnara og skuggalegra en svo, að lijá þvi verði
komizt að álíta það bina stærstu vanrækslusynd þeirra,
sem með völdin fara.
Fyrir nokkrum árum skrifaði eg sjúkrasögu 3ja ára
gamallar telpu. Móður hennar bafði grunað, að ekki
væri allt með felldu bjá litlu dótturinni og leitaði því
af sjálfsdáðum læknis. Hann lét framkvæma rannsókn
á blóði telpunnar, og kom þá i ljós, að sjúkdómurinn
var syphilis, meðfæddur. Fyrir nokkrum mánuðum sá
eg þessa sömu telpu aftur. Eg gleymi ekki þeirri sjón.
Telpan var þá orðin, að lieita mátti, sjónlaus og beyrn-
arlaus og lömuð á líkama og sál. Hún var orðin að
aumingja, að idiot, af völdum þess sjúkdóms, sem hún
bafði fæðzt með og gengið með árum saman á næstu
grösum við, eða öllu lieldur innan um, fjöldann allan
af beilbrigðisfulltrúum þjóðarinnar, sem öllum var, af
skiljanlegum ástæðum, ókunnugt um hið raunverulcga
ástand bennar og móðurinnar, þar til læknis var leilað
■—• í ótíma. Nánari rannsókn leiddi í Ijós, að foreldr-
ar telpunnar og systkini voru öll með sama sjúkdóm
og hún sjálf, og þá upplýstist um leið, að foreldrarnir
böfðu bæði tekið sjúkdóminn, áður en þau voru gefin
saman. Ef dregnar eru saman staðreyndirnar í þessu
máli, þá verður ljóst:
1. að brúðhjónin voru bæði sýkt af syphilis.
2. að þau voru gefin saman af embættismanni þjóð-
félagsins, sem ekki vissi neitt um sjúkdóm þeirra.
(Prestsverk eitt af mörgum slíkum).
3. að börn þeirra lijóna lilutu sypbilis í vöggugjöf
(sypbilis congenita).
4. að beilljrigðisfulllrúum þjóðarinnar var ókunnugt
um þau sjúklegu fyrirbrigði, sem voru árum sam-
an að gerast á heimilinu.
5. að afleiðing þessa afskiplaleyis var meðal ann-
ars sú, að eitt barnið á heimilinu verður aum-
ingi allt sitt líf.
Hver einasti læknir þekkir mörg hliðstæð tilfelli.
Þessi litla telpa er ekki sú eina, sem þjóðfélagið vernd-
ar á svo eftirminnilegan liátt. Ilún er eitt barn af mörg-
um, sem eru leiksoppar i höndum tortímingarafla, er
fá að leika lausum bala í þjóðfélaginu — afskiptalaus
að mestu. Saga þessarar telpu er hnefabögg framan
í íslenzka lækna. Og heilbrigðisstjórninni ætti liún að
flytja nokkurn lærdóm. Heilbrigðisstjórn, sem væri ó-
móttækileg fyrir þennan lærdóm, væri betur komin úti
í bafsauga.
Það liggur nærri að minnast í þessu sambandi at-
burðar, er gerðist i íslenzku stjórnmálalífi um svipað
leyti, sem sór sig i ætt við þau afskipti, sem nefnd voru
í upphafi þessarar greinar. Þegar verkamennirnir í
Bréf
frá róttækum stúdent—
um í Kaupmannahöfn.
Kaupmannahöfn, 31. október 1936.
Snemma i þessum mánuði stofnuðu róttækir stúdent-
ar liér í Kaupmannaliöfn félag, er gefið var nafnið
„Kyndill“. Nú þegar er um helmingur þeirra íslenzku
Flafnarstúdenta, sem bér eru við nám, orðnir meðlimir
þess. Fundir eru haldnir annan bvern sunnudag. Eru
þar flutt fræðandi erindi og um þau rætt, siðan er sam-
eiginleg kaffidrykkja og að lokum upplestur eða aðr-
ar dægrastyttingar. Tvö fræðslunámsslceið eru þegar
hafin. Annað um efnalega söguskoðun, leiðbeinandi
Sverrir Kristjánsson, stud. mag., bitt er um hagfræði,
leiðbeinandi Ólafur Björnsson stud. polit.
Það er þó tæpast rétt, að rekja ekki feril „Kyndils“
lengra aftur. Telja má, að hann sé beint framhald af
félagsskap, sem róttækir stúdentar bér i IFöl'n bafa haft
með sér síðustu árin, en liefir eingöngu slarfað sem
fræðsluhringur. Eftir þvi sem samtök þessi liafa eflzt
og þroskazt, befir vaxið upp viljinn til að gera verk-
svið þeirra stærra, og í haust var félagið formlega stofn-
að, lög samþykkt og stefnan ákveðin. Stjórn félagsins
skipa: Hermann Einarsson, stud. mag., Ólafur Björns-
son, stud. polit. og Óskar Bjarnason, stud. polyt.
Tilgangur félagsins er sá, „að safna saman róttækum
og frjálslyndum kröftum meðal íslenzkra menntamanna
Beykjavík ráku af liöndum sér óvenjulega fólskulega
hungurárás og notuðu til áréttingar nokkra stólfætur
og plankaenda á tiltölulega mjög friðsamlegan liátt, ef
borið er saman við alþekktar bardagaaðferðir höfuð-
óvina þeirra, þá stofnsetti ríkisvaldið ríkislögreglu.
Ríkislögregla þessi kostaði mikið fé á íslenzkan mæli-
kvarða, mörgum sinnum meira fé en hin fyrsta, skipu-
lagða leit að syphilitiskum sjúklingum og smitberum
á Islandi myndi hafa kostað.
Orskasambandið milli hvítliðans og hins sypliilitiska
idiots leynir sér ekki.
Um berklana má segja nokkuð svipað og það, sem
hér er sagt um sárasóttina. Læknarnir eru þess ekki
umkomnir, að framkvæma hina skipulögðu leit að berkla-
smitberunum. Afleiðingarnar eru óskaplegar, eins og
allir vita. Afskiptaleysið hefnir sin.
Það er framtíðarinnar, að losa sig við það afskipta-
leysi, sem hér hefir verið gert að umtalsefni. í ríki so-
cialismans verður leitað að berklaholunni og syphilis-
sárinu. í því ríki verða það frekar Röntgen-geislar, sem
sendir verða gegnum mannslíkamann, lieldur en byssu-
stingir og kúlur.
DaníeJ Á. Daníelsson.