Merki krossins - 01.11.1939, Síða 3

Merki krossins - 01.11.1939, Síða 3
Heilag'ur Páll postuli segir: »Lim- irnir eru margir en líkaminn einn«. »Kris,tur er höfuðið«, segir hann enn- fremur. »Þegar allur líkaminn er út frá honum samanfeldur og samtengd- ur og sérhver taug innir sína þjón- ustu af hendi, með starfskrafti, er svarar því sem hverjum einstökum er gefi,nn, þá verður það til þess, að líkaminn vex og uppbyggist í kær- leika«. 1 þessum líkama Kinsts vinnur sér- hver limur sitt starf, sem er eign allra hinna limanna, eijns og sagt er í fyrsta Korintubréfi: »Guð setti lík- amann svo saman, að hann gaf þeim, sem síðri var, því meiri sæmd, til þess, að ekki, yrði ágreiningur í lík- amanum, heldur skyldu limirnir bera sameiginlega umhyggju hver fyrir öðrum. Og hvort heldur einn limur þjáist, þá þjást allijr limirnir með hon- um, eða einn limur er í hávegum hafður, samgleðjast allir limirnir honum«. — Þessi orð heilags Páls postula kenna oss um hið dásamlega samfélag heilagra, það er að segja réttlátra manna hér á jörðu, og ef vér skiljum þetta, þá höfum vér fyr- irmynd til þess að skilja hið umfangs- meira samfélag heilagra, sem sam- einar allar sálir réttlátra manna, sem eru í þessu lífi og í öðru lífi„ Þetta samfélag er hið lifandi samband á milli sálna réttlátra hér á jörðu og þeirra, sem eru skilnar við í kærleika, Guðs, hvort sem þær eru þegar hjá Guði eða þar, sem þær eiga að verða hreinsaðar. Því eins og sagt er í Op- inberunarbókinni: »Ekkei-t óhreint getur komist í himnaríki«. Vér eigum að minnast hinna fram- liðnu, en af því sem sagt er hingað til, getið þér skilið, að vér munum ekki tala um þær sálir, sem eru þeg- a,r hjá Guði, því þær þurfa enga hjálp, en aðeinsi um þær, sem eru skildar við en þurfa ennþá á hiálp að halda; vér nefnum sameinmgu þeirra: Hina líðandi kirkju. Á meðan vér erum hér í heiminum, eigum vér að ávi,nna oss kærleika Krists, með því að breyta eftir því, sem hann hefir skipað oss; vér eigum að vinna meðan dagur er, því eins og Kristur segir ossi: »Það kemur nótt, þegar enginn getur unnið«. Heimur- inn er akurinn, sem lætur illgresið spretta eins vel og hveitið. 1 öðru lífi er eilíf uppskera, þar getur enginn aukið hamingju sína, þar getur eng- inn áunnið sér neitt framar. Til þess að líta Guð, á sálin að vera, hreinsuð af hinum minstu blettum, hún á að vera laus við allar illar tilhneiging- ar, ekki hinn minsti ágreiningur má vera milli, hennar og Guðs, hún á að vera eftir boði Krists »fullkomin, eins og hinn himneski, faðir er fullkom- inn«. En eru slíkar sálir til? Eigum vér ekki að spyrja með orðum ritn- ingarinnar: »Hver fær staðist fyrir Drottni, þessum heilaga, Guði?« Vér vitum úr sögunni, að aðrir eins menn hafa verið til og enn eru slíkir menn uppi, sem eru svo fullkomnir, en reynslan sannfærir oss um það, að flestir menn skilja við án þess að hafa náð því takmarki; þeir skilja við, án þess að hafa lagt til sinn siö- asta skerf til eigin fullkomnunar. Þessar sálir eru að vísu sælar. af því þær eru vissar um að þær munu sjá Guð, að þær munu ekki fara á mis við hina eilífu sælu, því það myndi, vera gagnstætt miskunnsemi Guðs að dæma þær til eilífrar glöt- unar vegna smásynda, sem þær eru með, en það myndi ekki síður vera gegn réttlæti hans að krefjast ekki 3 Merki krossins

x

Merki krossins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.