Merki krossins - 01.11.1939, Síða 6

Merki krossins - 01.11.1939, Síða 6
Elísabet Leseur Hér hefst stutt framhaldssaga um merkilega konu, sem giftist trúlaus- um manni. Eftir að hún var dáin snerist maðurinn aftur til kristninn- ar og gerðist munkur af smábræðra- reglu. Elisabet Leseur var veraldarkona, »em gerði prýðilega skyldur sínar í stöðu sinni. Svo kemst eiginmaður hennar að orði til þess að benda vel á það, að dagbók hennar, sem sýnir svo glöggt framúrskarandi. hjarta- gæzku hennar, er ekki eftir konu í klaustri eða, eftir konu, sem heldur sig fjarri samkvæmislífinu, Enginn þarf því að segja um rit hennar: >Þetta er að vísu allt. saman gott og blessað, en það er mér ofvaxið. Eg mun aldrei komast í sömu kringum- stæður hvað mitt sálarlíf snertir, geta gengió ei.ns á brattann. og hafa gagn af þessari fyrirmynd. Hvernig getur maður lifað svo grandvöru líferni í hversdagslegu, amstri sánu«. Þeim, sem hugsar svo, skjátlast algerlega, því Elísabet Leseur var kona, sem li,fði í heiminum eins og hver önnur veraldarkona. Faðir hennar, sem fæddist á Korsiku, var málaflutnings- maður við dómstól í París, og virtur mjög af viðskiftamönnumi og stétta- bræðrum sínum. Elísabet. var þrítug, þegar hún fór að skrifa dagbók sína; það er skaði, ekki sízt fyrir sálarlíf manna að það skuli ekki vera fleiri, sem halda dagbók, það myndi ef til vill vera notadrýgra en vel haldin kassabók eða húshaldsibók. Hún var því ung þá og á bezta skeiði. »Við fórum þá oft út«, segir Felix Leseur, »höfðumi búið hús okkar afar þægi- lega, lifðum mjög ríkulega, og fórum oft í skemtileg ferðalög sem voru okkur báðum mjög til ánægju«. 1 anda naut. hún innilega alls þess fagra sem náttúran sjálf eða hugvit manns- ins hefir að bjóða. Hún var prýðijiega mentuð, kunni latínu og ensku, skrif- aði og talaði reiprennandi. rússnesku, og var að ná valdi á ítölsku, þegar mikil veikindi ásóttu hana í árslok 1913. Hún kunni að meta listina í öllum myndum hennar: málaralist, mynd- höggvaralist, tónlist og bókmenntir. Ferðir hennar um Spán, Italíu, Norð- ur-Afríku, Grikkland, Austurlönd, Rússland og Þýskaland höfðu gefið henni fastan og fínan smekk. Tal hennar va,r lifandi, skemtilegt, spenn- andi, og skilningur hennar leiftur- fljótur. Hún var altaf glöð í instu fylgsnum sálarinnar og beitti sér til þess að vera það altaf. Hún álei,t gleð- ina vera dygð, og það var alveg rétt hjá henni. Þunglynda menn og þung'- lyndar þjóðir skortir eitthvað, og á síðustu æfiárum sínum minti hún oft á það, að hin helga Teresa bauð systrum sínum að vera, altaf glaðleg- ar. Teresu þótti ekkert vænt um nöld- urseggi. Elísabet nöldraði ekki; þvert á móti: »Það heyrðist altaf hinn ljúfi hlátur hennar, altaf jafn hi'essandi, og hreinskilinn. Svipur hennar vai meira en fagur, hún var eftirtakan- ‘lega tigin í framkomu si,nni og við- móti, framúrskarandi góðgjörn, eftir- lát, brosandi og ástúðleg. Hún kunni meistaralega að taka á móti gestum; með einu orði sagt, hún var fullkom- in húsfreyja,«. — Það er ennþá eigin- maður hennar, sem segir þetta, en á öllu þessu getum við séð, að hún var Merkikrossinti

x

Merki krossins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.