Merki krossins - 01.11.1939, Page 7

Merki krossins - 01.11.1939, Page 7
falleg, tíguleg Parísarfrú, andlega vel þroskuð og prýðilega mentuð. Og það er auðvelt að þekkja hana undir* eins, aftur, þegar við sjáum ljósmynd- irnar, sem eiginmaðurinn leggur fyr- i,r lesandann. Þær bera glöggt meö sér það áhrifamikla, fas, sem einkenn- ir ósvikna, kaþólska, franska konu, sér í lagi hefðarkonu Parísarborgar. Myndin, sem prentuð er fremst í bók- inni: »Bréf um þjáninguna« og var tekin 1905, eftir að hún hafði mist systur sína, Juliette, og »hin líkam- lega og andlega þjánijng hennar hafði lagt eilífðarsvip yfir ásjónu hennar«, er fjarska fögur. Þessi mynd er »frá helgunartímabili hennar«, segir mað- ur hennar, og, ef vér lítum á hana með athygli, förum vér að skilja eitt- hvað af því, sem kristnifræði kennlr oss um líkama hinna, endurrisnu. Svipur hins fallega andlits er mjög léttur, fínn og andrænn. Augun, sem lýsa svo mikilli þjáningu, borinni af þeirri hamingju, sem sameiningin við Guð veitir oss, líta út yfir heiminn til Guðs, sem er uppspretta, allrar dýrð- ar, sælu og fegurðar. Þjáningarlíf. Æfi hennar segir þeim, sem líta að- eins á hið ytra, fátt, sem er frásagn- arvert. Hún var mjög rík, mikið veik, og dó barnlaus, þegar hún var 48 ára að aldri. Hún þjáðist mjög, bæði, lík- amlega og andlega. Eiginmaður henn- ar segir oss frá þessu með fáum en áhrifapiikium orðum. »Líkamleg þján- ing: Æfi Elísabetar var einn sjúk- dómur. Frá því hún var barn, þjáð- ist hún af lifrarsjúkdómi, sem kvaldi hana altaf og magnaðist. eftir því sem stundir liðu fram«. — 1 uppvextinum stofnaði taugaveiki lífi hennar í hættu. Árið 1889, tæplega mánuði eftir að hún giftjst, fékk hún alvar- legt kast af sjúkdómi sínum, svo að hún komst á grafarbakkann. Við vor- um í sveit, og það var aðeins frábær- lega góð hjúkrun, sem bjargaði henni; hún varð að liggja kyr í 8 mánuði, var flutt aftur til Parísar í sjúkra- vagni og á handbörum var hún bor- in inn í húsáð, sem hún hafði útbúió með svo mikilli ánægju á meðan við vorum trúlofuð. Henni batnaði aldrei fullkomlega. Frá því í apríl 1908 neyddist hún til að breyta lífsháttum sinum og liggja oftast á sjúkrabeði, af þvi að hún fékk mjög oft veikinda- köst, sem voru hættuleg og vöktu mik- inn ótta. 1 byrjun júlímánaðar 1913 ásótti hana sá kvilli fyrst, sem átti að leiða hana til bana,; það var hræði,- legur sjúkdómur, sem með miklum kvölum, þó henni létti á milli, var fyr- ir hana nokkurskonar krossganga upp á Kalvaríufjall æfi hennar. Hún dó 3. maí 1914, 48 ára gömul, eftir að hafa verið 10 mánuði með þessum sjúkdómi. Þetta var hin líkamlega þjáning, en sálin hláut einnig sinn skerf. Elísabet lifði í f jölskyldu, sem naut kærleika, friðar og samlyndis í rík- um mæli. Hún elskaði ekki aðeins systkini sin, heldur einnig frændur sína, er hún auðsýndi þá ást, sem hún gat ekki auðsýnt börnum sínum, því Guð lét hana vera barnlausa. Þess- vegna féll henni það mjög þungt að missa frændfólk sitt. Árið 1889 dó faðir hennar úr inflúenzu, eftir þriggja daga legu. Hún var þá sjúk og gat ekki kvatt hann í hinzta sinn. Vi,ð jarðarförina. var lagð'ur krókur á leið, til þess að hún gæti kvatt föð- ur sinn úr legubekknum sínum. Ári,ð 1901 dó elzti bróðursonur hennar, 3 ára að aldri. Elísabet elskaði hann Merki kronius 7

x

Merki krossins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Merki krossins
https://timarit.is/publication/611

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.