Sunnudagsblaðið

Ataaseq assigiiaat ilaat

Sunnudagsblaðið - 20.09.1925, Qupperneq 3

Sunnudagsblaðið - 20.09.1925, Qupperneq 3
Sunnudagsblaðið. 3 nunnur. Þegar hún var á barnsaldri gekk hún á fund Leo XIII. páfa, ásamt föður sínum, og beiddist leyfis að ger- ast nunna. En páfinn neitaði, vegna æsku hennar. Beið hún þolinmóðlega, uns hún varð sextán ára. Dvaldi hún síðan í átta ár í Lisieux-klaustri. Hún var tuttugu og fjögra ára, er hún andaðist, og var fáum kunnug, nema stallsystrunum í klaustrinu. Kona að nafni Margaret Mary Lukes skrifar um systur Therese í ameríska blaðið »The Washington Star«. »Ást hennar á guði var svo einlæg og traust hennaráhonum svo takmarka- laust, að allir, sem voru nálægir henni, fundu áhrif hins góða, fyrir hana. Eftir beiðni nunnu einnar í klaustr- inu skrifaði hún æfisögu sina, sem hún kallaði »sögu sálar sinnar«. Áhrif þeirr- ar bókar voru geysilega mikil. Þó bókin væri skrifuð á afskektum stað í Frakk- landi, þá leið ekki á löngu, þangað til búið var að þýða hana á flest tungu- mál heimsins. Bók hennar var ekki saga um fullkomið líf, heldur sagði hún í henni með látlausum orðum, frá dag- legri baráttu sinni og hugarstríði, hvern- ig hún reyndi að lauga sál sína hreina í sólskini guðs Alföður. Rétt áður en hún dó hét hún því, að láta »rigna rós- um«. Er hún dó batnaði systur einni í klaustrinu af langvarandi veikindum. Og nunna ein, sem á þeirri stundu lá á bæn í klefa sínum, sagði, að loftið í klefanum hefði skyndilega orðið þrung- ið mikilli angan, eins og af fjólum. Og ýmislegt annað varð orsök þess, að menn lærðu að elska hana og hétu á hana sér til hjálpar, á stundum neyðar og hörmunga. Hvað sem vísindamenn segja og hin- ir vantrúuðu, þá verða hin góðu áhrif systur Therese aldrei afmáð. Miljónir manna út um gervallan heim nefna nafn hennar í bænum sínum, biðja til guðs sins gegnum hana. Fjögur hundruð manna, sem sumir koma að úr öðrum heimsálfum, koma daglega og krjúpa við gröf hennar. Við helgiathöfn í Lisieux, þar sem hún dó, voru 3 kard- inálar viðstaddir, 14 biskupar og 500 prestar, en aðkomumenn voru fleiri en byggja alt Island. I stríðinu var hún átrúnaðargoð róm- versk-kaþólsku hermannanna. Braziliska þjóðin sendi silfurkistu, er líkami henn- ar var í lagður. Cosgrave, forseti írska fríríkisins, lagði fána með skjaldarmerki írlands á gröf hennar, og vottaði ást hinnar irsku þjóðar á henni. Talið er, að 44 milj. ritlinga og bóka hafi verið skrifaðar um hana. Það var sigur henn- ar á sjálfri sér, sem hóf hana. »Eg veit það«, sagði hún, »því eg hefi reynt það, að riki föðursins er hið innra í oss«. Afgreiðsla blaðsins er opin á sUnnudögum til hádegis. ' ■ ' ' ' Fjölbreyttast og smekklegast úrval til tækifærisg'j afa. Silfurvörur Frá Georg Jensen, þær fallegustu sem flytjast til landsins. Gullúr, — Silfurúr, — Armbandsúr. Stærst og fallegast úrval sem sést hefir hér á landi. Nýjustu gerðir beint frá Svissneskum verksmiðjum. — Öll úr aftrekt afbragðs- vel og ábyrgð tekin á réttum gangi. Trúlofunarhringar. Altaf nóg úr að velja, verðið eftir þyngd. Allir geta fengið við sitt hæfi. Ágröftur samstundis.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.