Sunnudagsblaðið

Issue

Sunnudagsblaðið - 11.04.1926, Page 3

Sunnudagsblaðið - 11.04.1926, Page 3
Sunnudagsblaðið. 137 Vorvörurnar eru komnar aflur i afarmiklu og fjölbreyttu úrvali, og miklum mun ódýrari en verið heíir, sökum verðlækk- unar erlendis og tolllækkunar hér. — Sérstaklega skal vakin athygli á allskonar tilbúnum kvenfatnaði, með mikið lægra verði en þekst hefir hér áður. Einnig hafa allar eldri vörubirgðir verið lækkaðar i samræmi við núgildandi lægsta verð. Coilí <3acoðsen. Úr kvikmyndinni »Brúður fossfarans«. Irar Lykke, forsætisráðherra Norð manna. ómaði hin fegursta sönglist, og voru þar kvæði sungin á vixl með karl- manna og kvenna röddum. Konungur- inn hlustaði með mestri eftirtekt á vísu, sem ambátt nokkur var að syngja, og var eins og hún vekti hjá honum einhverja óljósa endurminn- ingu. »Manstu þá af lysting ljúfri, Létta, hunangsþyrsta bý! Mangó-blómið kært þú kystir, Kúrðir langa stund hjá því? Æ, því fórstu að flökta í burtu, Faldir þig á öðrum stað, Djúpt í lótos-blaða bikar, Bý mitt! hvernig gastu það?«. Þegar þessi vísa var sungin til enda sneri konungurinn sér að Mata- via og sagði: Með hvilíkum töfrakrafti gripur sönglistin hjörtu vor! Þegar andinn er orðinn linur og lúinn, þá megnar hún að gefa honum aftur sina fyrri stælingu, og eins getur hún gert það að verkum, að eitt sérstakt tilfinningar-ástand mannsins verður yfirgnæfandi. Þessi skilnaðarvísa, sem verið var að syngja, hefir nú gert mig einhvern veginn svo angurværan. Er ekki þetta undarlegt? Og af hverju getur það komið, að menn, sem þó annars eru sælir, verða gagnteknir af þessari angurblíðu tilfinningu, þegar þeir annaðhvort hlusta á inndæla sönglist eða horfa á fagrar myndir? Er það sprottið af óljósri endurminn- ingu um unaðsemdir, sem við ein- hvern tíma höfum notið fyrir löngu siðan? Eða bendir þessi blíða tilfinn- ing til einhvers sambands við elskað- ar verur, sem við höfum þekt í vorri fyrri tilveru? Meðan konungur þannig var að reyna að gera sér grein fyrir hugar- ástandi sinu, kom inn þjónn nokkur og mælti: »Heill sé konungi vorum með sæmd og sigri! Hér eru fyrir utan margir einbúar frá Hemakúta- fjalli. Þeir eru komnir hingað með konu, sem hefir skýlu íyrir andliti, og segja þeir, að hún sé send í viss- um erindagjörðum af Ivanva hinum helga«. Frh, Kvikmyndir. Brúður fossfarans. í sex þáttum. Mun vekja sérstaka eftirtekt vegna þess, að þetta mun hin frægasta finska kvik- mynd, sem gerð hefir verið. Kvikm. þessi mun að mörgu svipa til hinnar ágætu kvikm. »Blómið blóðrauða«, sem hér var svo vel sótt. Allir leikendurnir eru finskir. Aðalhlutverk leika: Heidi Korhonen, er leikur Hönnu Iisakki, og Oiva Soini, er leikur Antti, straumfarann fífldjarfa. Tvær myndir úr þessari kvik- mynd eru birtar í blaðinu í dag. Don Garlos. þetta er stórfengleg kvik- mynd í 8 þ. Aðalhlutverk eru leikin af víðkunnum þýskum leikurum, t. d. Conrad Veidt, Dagny Servais, Eugen Klöpfer. Ennfremur Aud Egede Nissen og Martin Herzsberg. Sagan gerist á Spáni um 1600. Kvikm. er áhrifamikil, vel leikin og afar skrautleg. Valontino og Pola Negrl. Amerísk blöð birta þá fregn, að Pola Negri og Valentino séu trúlofuð. Pola Negri sagði í viðtali við blaðamann, er hún var spurð hvað hæft væri í þessu, að hún og Valentino ætluðu að giftast eftir 4 mánuði, ef tilfinningum þeirra verður eins varið þá og nú. Constance Talmndage, ameriska kvikmyndaleikkonan, er nýgift breskum manni, kapt. Alstair Mackintosht. Tveir póstflngmenn, flugu nýlega frá New York City til Chicago á 5 stundum og 5 minútum og settu þar með nýtt met. Betty Bronsson heitir ameriska leikkonan, sem lék Madonnu í Ben Húr, af mikilli list. Betty Bronson var óþekt, uns hún lék i Peter Pan. Vegna leiks síns i þeirri kvikm. fékk hún hið vandasama hlutverk í Ben Húr.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/615

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.