Sunnudagsblaðið

Útgáva

Sunnudagsblaðið - 09.05.1926, Síða 2

Sunnudagsblaðið - 09.05.1926, Síða 2
152 Sunnudagsblaðið. Sakúntala eða Týndi liriii“;m’iiin. Fornindversk saga. (Framh.). Einbúarnir bönduðu henni frá sér. »Vertu kyr«, sögðu þeir, »annaðhvort er maður þinn að freista þín og þá mun hann síðar meir kannast við ranglæti sitt og friðmælast við þig, eða hann heldur þú farir með fals og svik og þá hneppir hann þig í ánauð en ánauðin er vel þolandi, þegar samvizka þín segir þér, að þú hafir talað hreinan sannleik«. Sakúntala varð við þetta svo yfir- komin af örvæntingu að hún fórnaði grátandi höndum til himins og kall- aði hástöfum: »Ó, dauði! frelsaðu mig frá þessu lífi!« Koungurinn fann að hin ókunna lcona var fastlega sannfærð um að hún segði hreinan sannleik, og gat hann nú ekki lengur ímyndað sér, að hún vísvitandi vildi draga á tálar, heldur mundi hún sjálf vera á tálar dregin af öðrum. Hann gat ekki heldur annað en hrærzt til með- aumkunar, þegar hann horfði á hug- stríð þessarar fríðu yngiskonu. »Nei«, sagði hann við hallarprestinn og hristi höfuðið »eg man ekki til að eg hafi nokkurn tíma séð þessa konu. Og samt get eg ekki haldið, að allt þetta sé tóm uppgerð. Nú svnist mér það vera glæpur að útskúfa henni, ef hún skyldi vera eiginkona min. En ef svo er, að hún villist á mér og eg tek hana til mín, þá drýgi eg kanske meiri synd með því að taka annars manns konu. Seg mér nú, hvað þér þykir ráðlegast; hver syndin er að þínu áliti stærri: útskúfun eiginkonu eða sambúð við annarlega konu?« »Synd er synd«, svaraði hallarprest- urinn, »það er mitt ráð, að þú upp kveðir ekki allt of bráðan dóm: haltu Sakúntölu eftir og prófaðu þína liðnu æfi«. »Svo skal gera, sem þú segir. Taktu hana með þér og hafðu hana í þinni ábyrgð«. Presturinn greip þegar um hönd Sakúntölu og dró hana með sér hálf- nauðuga um leið og þeir einbú- arnir voru að fara. Sakúntala kvaddi þá sorgbitin og vafraði svo með prest- inum út úr höllinni. Hún átti nú að fylgjast heim með honum í hús hans og lá leiðin fram hjá dísa-vatninu. Sakúntala gekk seinlega og grátandi með hinum æruverðuga presti, sem leiddi hana, en hann var síns vegar næsta hugsandi út af allri aðferð konungsins og gat með engu móli skilið í henni. Þá bar svo til, að þau sáu ljósbjarma mikinn alt í kring um sig, og í sömu svipun leið af himni ofan geislandi og guðdómlega fögur kona, sveipuð björtu skýi. Hún hreif Sakúntölu úr höndum prestsins og hvarf með hana á augabragði upp í himininn. Konunginum brá mjög er hann fréttti, hvernig Sakúntala hafði horfið, »Ekki man eg neitt til þess«, sagði hann íhugafullur, »að eg hafi nokkurn tíma átt þessa konu, og þó er hjarta mitt einhvern veginn svo órólegt, að mér liggur við að leggja trúnað á sögu hennar«. Hann friðaðist þó smámsaman, og að fáum dögum liðnum var enginn, sem mintist á þenna atburð. Pá bar svo til að fátækur fiskimað- ur i Sakravatara veiddi stóran rauð- karpa og fann í kviði hans hinn feg- ursta gimsteinshring. Fiskimaður fór til kaupmanns með hringinn og hugði sér til hreifings að selja honum hann fyrir mikið fé. Kaupmaður lítur á hringinn og sér að á hann er grafið nafnið: Dússíanta, ásamt ríkismerki konungs. Hann taldi þá sjálfsagt, að fiskimaðurinn mundi hafastolið hringn- um og lét draga hann fyrir dóm. Dómarinn staðfesti grunsemd kaup- mannsins og var svo fiskimaðurinn dreginn fyrir borgarstjórann og tekinn undir málspróf af honnm og mátti þola illa meðferð af þjónum hans. Þá hafði og borgarstjórinn jatnframt sent einn af embættisþjónum sínum á kon- ungs fund með hringinn og skyldi hann afhenda honum hann og spyrja um leið, hvaða hegningu þjófurinn ætti að sæta. Konungurinn kannaðist undir eins við hringinD, að það var sá hinn sami sem hann hafði gefið Sakúntölu. óð- ara en hann sá hringinn voru heil'tar- álög Dúrvasa horfin. Allt hið umliðna rifjaðist upp fyrir honum og stóð deginum ljósara fyrir hugskotsaugum hans. Mest sveið honum, að hann hafði ekki lagt neinn trúnað á orð einbúans, sem gat þess til að Sakún- tala mundi hafa týnt hringnum þegar hún baðaði sig i Sakravatara. Hann lét embættisþjóninn samstundis frá sér fara og fékk honum meðferðis digran gullsjóð handa fiskimanninum, sem sat í varðhaldi fullur örvænting- ar. Nú varð hann fegnari en frá verði sagt, þegar hann var leystur úr fjötr- unum og komst heim aftur með full- ar hendur fjár. Nú slepti konungurinn sér í djúpri hrygð og var engu sinnandi. »Hvernig var eg blindaður?« sagði hann við sjálfan sig, »af hverjum ára var eg tryltur, að eg skyldi útskúfa slikri dýrðar-konu? Var hún ummynduð með töfrum eða var myrkri slegið yfir hugskot mitl?« Hann hélt hendinni fyrir enni sér og starði út í bláinn. Síðan hljóp hann eins og óður um hallarsalina og kall- aði harmandi á Sakúntölu. »Sakún- tala var mín rétta eiginkona«, sagði hann, »og þegar eg rak hana frá mér hef eg ekki getað verið með öllu ráði«. Alt frá þessum tíma hafnaði kon- ungurinn öllum glaðværðum lífsins. Aldrei kom honum svefn á auga, heldur lá hann andvaka hverja nótt og á daginn lokaði hann sig inni i herbergjum sínum til þess að geta svalað sorginni í næði. Það var siður á Indlandi að fagna vorinu með hátíðahaldi, en nú lagði konungur bann við þvi. Dagurinn var fyrir hendi þegar hátíðin átti að hald- ast, og alt var í fegursta blóma: him- ininn og jörðin voru þrungin af frjó- semd og blíðu vorsins; þá bað gyðjan Sanúmati guðinn Indra orlofs að mega svífa niður á jarðríki undir himneskri hulinsblæju til þess að vera í sambúð menskra manna um stundar- sakir og hyggja að háttum þeirra. Hún kom þá rakleitt að lystiskógi þeim, er Dússíanta hafði flutt í úr aðsetursborg sinni. Og er hún gekk þar ósýnileg á meðal gæslumanna skógarins, þá heyrði hún þá varla tala um annað en Sakúntölu og konunginn, hvað hann væri orðinn sturlaður og hvað sárt hann iðraðist eftir að hafa útskúfað henni. »Hann hefir nú ekki lengur af neinni gleði að segja«, sagði einn þjónninn við annan þjón í hálfum hljóðum, »og ekki lætur hann þegna sína framar sjá sig; hann byltir sér andvaka í hvílu sinni og þegar hann talar við einhvern, þá ruglar hann saman nöfnunum og kemur með svo undarlegar spurningar, að vel mætli draga í efa, hvort hann einu sinni er með öllu ráði«. »Hefirðu tekið eftir því«, hvislaði hinn þjónninn enn þá lægra, »hvernig kraptar hans þverra og hvað hann er dapur í yfirbragði? Fjörið er horfið úr augum hans og roðinn úr kinnum hans. En svo mjög sem hann hefir gengist fyrir, þá gr hann samt prúð- menni enn sem fyr. Hann er eins og gimsteinn, sem hefir rýrnað við slípun, en er þó gimsteinn eftir sem áður«. þjónarnir hættu þessu tali, því nú heyrðist mannamál. Konungurinn kom sjálfur og var Malavia með honum. »Matavía!« sagði konungurinn stilli- lega og tók um handiegg hróður síns, »eitt er sem eg lengi hef ætlað að spyrja þig, en at því eg er svo sinnu- laus af söknuðinum eftir Sakúntölu, þá hefir mér altaf gleymst það. Eg man það vel að eg játaði fyrir þér ást mína á Sakúntölu í einbúalundi Kan- va og sagði þér alt; hvernig stendur á því, að þú hefir ekki minst á það með einu orði síðan eg kom heim aftur? Var fyrir þér eins og mér, að þú hafðir gleymt því?« »Nei«, svaraði Matavía, »ekki var það; eg man enn þá glögl hvað þú varst hrifinn, þegar þú talaðir um Sakúntölu, en eg man líka, að þú bællir nokkru við, sem varð til að villa mig; þú sagðir að þér væri engin alvara og þetta væri ekki annað en gaman. Nú ásaka eg heimsku mína, að þetta skyldi villa mér sjónir. Mér

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/615

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.