Dagur verkalýðsins - 01.04.1930, Síða 1
Dagur verkalýdsins
Útgefandi: Jafnadarmannafélagid Sparta
Reykjavik, april 1930
1. att a* í
Hvers vegna heldur verkalýðurinn fyrsta maí hátíðlegan?
Eftir Rósu Luxemburg1
Hugmyndin um verkalýöshá-
tíðisdag til þess að berjast fyi'ir
átta stunda vinnudegi kom fyrst
upp í Ástralíu. Árið 1856 ákváðu
verkamenn þar í landi að láta ’
alla vinnu hvíla einn dag og halda
samkomur og skemtanir til að
bera fram kröfu sína um átta
stunda vinnudag. 21. apríl var
valinn til hátíðahaldanna. Fyrst í
stað hugðu þeir að halda slíkan
kröfudag aðeins í þetta skifti, ár-
ið 1856. En slík voru áhrif þessa
fyrsta hátíðisdags á verkalýð
Ástralíu, svo vekjandi og uppörf-
andi reyndist hann, að þeir tóku
það ráð, að halda slíkan hátíðis-
dag á hvei'ju ári.
Sú er líka raunin á, að ekkert
er betur fallið til þess að glæða
kjark verkalýðsins og trú hans á
sjálfum sér, en samtök fjöldaus
um að leggja niður vinnu. rivað
getur blásið þrælum verksmiðj-
anna kjark í brjóst, ef ekki her-
sýning á þeirra eigin hðssveit-
um? Hugmyndin um verkalýðshá-
tíð náði því fljótt hylli og barst
frá Ástralíu til annara landa og
ioks var hún tekin upp af verka-
lýð allrar veraldar.
Verkamenn í Ameríku urðu
fyrstir til að fylgja dæmi stétta-
bræðra sinna í Ástralíu. Árið 1886
völdu þeir 1. maí, sem almennan
hvíldardag frá vinnunni. Á þeim
degi lögðu 200.000 verkamenn
niður vinnu og kröfðust 8 stunda
vinnudags. Næstu árin gátu þeir
ekki haldið daginn hátíðlegan
vegna ofsókna af hálfu stjómar-
valdanna.*) En 1888 tóku þeir
aftur ráð sín saman og ákváðu að
halda næsta hátíðisdag 1. maí
1890.
Á meðan þessu fór fram, hafði
verkalýðshreyfingin í Evrópu tek-
ið -miklum framförum. Stórkost-
legt jarteikn þess var alþjóða
verkamamiaþingið 1889. Á þessu
þingi voru 400 fulltrúar saman
komnir og þar var ákveðið að
gera átta stunda vinnudag að að-
alkröfu. Kom fram tillaga frá
íulltrúa frönsku verklýðsfélag-
anna, Lavigne verkamanni frá
Bordeaux, að halda skyldi al-
mennan verkalýðshátíðisdag til
þess að bera fram kröfu þessa.
Fulltrúi amerísku verkamannanna
benti á að félagar hans hefðu
valið 1. maí 1890. Varð það til
Fótatak jafnaðarstefnunnar
Rússland, hvert leiðir þú oss?
*) Mögnuðust var hreyíingin í Chi-
cago. Verkfallið vegna átta stunda
vinnudagsins hélt áfram eftir 1. mai.
4. mai var kastað sprengju i kröfu-
göngu, sem lögreglan réðist á og má
telja víst að það hafi verið verk
flugumanns. Foringjar hreyfingarinn-
ar, anarkistarnir (stjórnleysingjarn-
ir) Spiess, Parson og fl. voru kœrðir
fyrir morðtilraun, dœmdir til dauða
án sönnunargagna og hengdir 11.
nóv. 1887. (Átta píslarvottar amerísku
verkalýðshreyfingarinnar urðu sörnu
glœpsamlegu „réttvísinni" að bráð
og þeir Sacco og Vanzetti). þýð.
þess, að þingið ákvað að þessi.
dagui' skyldi haldinn hátíðlegur ,.
af verkalýð allra landa. jj
Eins og í Ástralíu fyrir 30 ár- j
um, hugðu verkamenn einnig í
þetta skifti að halda aðeins eixm
kröfudag. Þingið ákvað, að verka-
lýður allra landa skyldi halda
kröfugöngur fyrir átta stunda
vinnudegi 1. maí 1890. Um endur-
tekning hátíðahaldanna á næstu
árum var ekki rætt. Enginn gat
séð það fyrirfram að það myndi
heppnast eins framúrskarandi vel
og raun varð á, að koma hugmynd
þessari í framkvæmd, og engum
kom til hugar að hún myndi svo
skjótlega vinna hylli verkalýðsins.
En maíhátíðin 1890 nægði til þess
að sýna mönnum fram á, að slíka
hátíð yrði að endurtaka á hverju
ári.
Fyrsti maí er boðberi kröfunn-
ar um átta stunda vinnudag. En
þó að þeirri kröfu verði fullnægt,
verður ekki hætt að halda 1. maí
hátíðlegan. Á meðan verkamenn
berjast gegn borgarastéttinni og
stjórninni, á meðan öllum kröfum
þeirra er ekki fulinægt, verða
þær bornar fram fyrsta maí með
kröfugöngum og hátíðahöldum.
En þegar birtir af degi og betri
tímar koma og verkalýður allrar
veraldar hefir hrist af sér hlekk-
ina, einnig þá mun 1. maí verða
haldinn hátíðlegur til minníngar
um þrautirnar og baráttuna.
jaftiaðarmannaíélagíð Sparta
Jafnaðarmannafélagið Sparta
var stofnað í nóvember 1926.
Stofnendur voru um 20, flestir
félagar úr Jafnaðarmannafélaginu
(gamla).
Lög félagsins mæla svo fyrir,
að það starfi á grundvelli hinn-
ar vísindalegu jafnaðarstefnu, er
þeir Karl Marx og Friedneh
Engels hafa skapað og tilgangur
þess er að vmna að framgangi
kommúnismans. Félagið hefir
sett sér það verkefni, að safna
framsæknasta hluta íslensks
verkalýðs í pólitískan floúk, til
þess að auka stéttavitund verka-
lýðsins og gera hann hæfan til að
berjast þeirri stéttabaráttu, sem
fær honum að lokum fullan sigur
í hendur. Félagið, og sá flokkur,
sem um það myndast. telur það
skyldu sína að standa í broddi
fylkingar í hagsmunabaráttu
verkalýðsins og er þemar skoð-
unar að þeirri baráttu hljóti að
lykta þannig, að verkalýðurinn
sigri að fullu og taki ríkisvaldið
í sínar hendur og stofni alræði
öreiganna til þess að byggja upp
þ j óðskipulag j af naðarstef nunnar.
Slíkt breytingarstig byltingarinn-
ar álítur félagið nauðsynlegan
áfanga á leiðinni að hinu endan-
lega marki, sem er stéttalaust
þjóðfélag frjálsra vinnandi
manna.
Sparta hefir lagt mikla áherslu
á fræðslustarfið og á fundum fé-
lagsins hafa altaf öðru hvoru ver-
ið haldnir fræðandi fyrirlestrar
um þjóðfélagsmál og stjórnmál
og auk þess um ýms menningar-
mál. Lesflokkur hefir starfað í
vetur, og hefir um skeið haldið
fundi vikulega. Menn hafa komið
saman og lesið Kommúnistaávarj)-
ið og skýrt það, beint spurning-
um liver til annars og leyst úr
þeim eftir því, sem kostur var
á. Félagið á nú orðið allgott bóka-
safn. Safn þetta gefur meðlimum
félagsins kost á meiri fræðsiu um
jafnaðarstefnuna og kommúnism-
ann en nokkur önnur stofnun hér
í bæ getur látið í té.
Af öllum málum hefir Sparta
látið sig verkalýðsmálin mestu
skifta. Lét félagið semja frum-
varp til laga um atvinnuleysis-
tryggingar og -bera það fram á
Alþingi 1926. Allir þingflokkar
hafa verið sammála um að svæfa
frumvarp þetta og þegja það í
hel. Enginn verkamaður má gera
hinu sameinaða íhaldi það til
eftirlætis að vera ókunnugur
frumvarpi þessu. Náið ykkur í
þingtíðindin og lesið það.
ÖIl árin, sem Sparta hefir starf-
að hefir hún gert sér far um að
undirbúa hagsmunamál verkar
lýðsins í verkalýðsfélögunum. I
þessu starfi sínu hefir félaginu
orðið allmikið á gengt. Mörg af
stærstu og -bestu skrefunum, sem
verkalýðsfélögin hafa tekið, hafa
verið undirbúin í Spörtu. Sparta
hefir engin önnur áhugamál en
þau, sem um leið eru hagsmuna-
mál allrar stéttarinnar.
En það vantar mikið á að allir
verkamenn skilji baráttu vora
enn þá. Og þó að þeir séu hlyntir
starfi voru, þá hafa þeir ekki
ennþá skilið það til fullnustu að
verkalýðm-inn verður sjálfiu- að
hrinda af sér okinu. Það verður
að vera verk fjöldans, en getur
aldrei orðið verk fárra manna,
jafnvel þó þeir hafi samúð allrar
stéttarinnar. Vantraust verkalýðs-
ins á sjálfum sér er okkar versti
fjandi. Enginn verkamaður, sem
hefir stéttavitund hefir leyfi til
að vera áhorfandi. Það er bein-
línis skylda hans við stéttina að
taka virkan þátt í starfínu Ef
hann telur sig skorta þekkingu
til þess, verður það að vera hans
fyrsta verk, að afla sér hennar.
Ef hann telur sig vanta haifileika
til þess, þá verður hann að þroska
þá hæfileika, sem hann hefir.
Annars er alt slíkt misskilnmgur.
Hver einasti verkamaðiu- hefir
hæfileika til að vinna jafnaðar-
stefnunni gagn, hver á sinn hátt.
Alt sem vinst, er árangurinn af
samstarfi fjöldans, og hver mað-
ur hefir verið nauðsynlegur
hlekkur í keðjunni. Hver maður,
sem tekur þátt í starfinu, á sinn
skerf- í því sem vinst. Enginn
má hugsa sem svo: Það munar
ekki um mig.
Sparta hefir lagt stund á, að
láta hvem og einn taka þátt í
starfinu. Félögunum hefir verið
skipað niður í nefndir og Hin
ýmsu viðfangsefni hafa verið
fengin nefndunum í hendur til
úrlausnar.
Félagið telur nú um 50 með-
Hvað er að gerast í Rússlandi?
Hvað er að gerast í landinu, sem
lokai* öllum kii'kjum, hefir sett
guð almáttugan af og hengir alla
presta, eftir því, sem Morgunblað-
ið og Vísir segja? Raunar hafa
hinir „hengdu“ prestar mótmælt
fregnum þessum og láta vel yfir
sér. En hvað gerir það? Morgun-
blaðið og Vísir vita betur (!!)•
Sannleikurinn er sá, að í dag
eru þúsund ára draumar mann-
kynsins að rætast í Rússlandi.
Fjöldinn, hinar vinnandi stéttir,
verkamenn og bændur treysta nú
ekki lengur á guð og gaddinn og
umhleypinga auðvaldsskipulags-
ins; þeir hafa tekið mál sín í
eigin hendur. Þeir fylgja nú ekki
lengur boðum kristindómsins og
yfirráðastéttanna að láta hverjum
degi nægja sína þjáningu; nú
hugsa þeir fyrir morgundeginum.
Þeir fylgja nú ekki lengur dæmi
sjómannsins, sem lætur reka fyrir
straumi og vindi; nú stýra þeir
fleyi sínu eftir öllum vísindaleg-
um reglum siglingafræðinnar.
Þeir fyigja nú ekki lengur dæmi
villimannsins, sem bendir priki
sínu til himins og biður um regn
um sama leyti og almanakið fræð-
ir oss um að regntíminn sé í
nánd. Eins og stjörnufræðingur-
inn reiknar út brautir himintungl-
anna, reiknar nú rússnesk alþýða
út framleiðsluþróun sína og
menningarþróun á komandi árum.
Og mann sundlar af tölum þeirra
eins og af tölum stjörnufræðings-
ins.
Hin stórkostlega áætlun um
framleiðsluþi’óun Rússlands á ár-
unum 1928—1933 markar því ein-
hver hin stærstu tímamót í sögu
mannkynsins. Hingað til hafa
mennirnir verið þrælar fram-
leiðslutækjanna; nú eygjum vér
framundan oss þann tíma, er
mennirnir stjórna sjálfir þróun
framleiðslunnar eins og stýri-
maðurinn skipi sínu og nota
framleiðslutækin til blessunar
fyrir alt hið vinnandi mannkyn.
Á hverjum degi heyra nú rúss-
neskir verkamenn fótaták jafn-
aðai'stefnunnar í verksmiðjunum.
En þó er ein villa í fimmára-
áætluninni. Hún er alt of varlega
reiknuð, alt of hógvær. Áætlunin
gerði ráð fyrir að öll iðriaðar-
framleiðslan myndi aukast um
20% árið 1929—30, en þunga-
vöruframleiðslan myndi aukast
um 22,5%. En sú varð raunin á,
að öll iðnaðarvöruframleiðslan 6x
um 30%, en þungavöi-uframleiðsl-
limi. Það er alt of fáment. Það
leggur alla stund á að fá verka-
menn til að gerast félagar. Engar
aðrar kröfur eru gerðar til verka-
manna, sem gerast vilja félagar,
en að þeir vilji berjast sameigin-
lega með oss að hagsmunamálum
j verkalýðsins.
Félaginu er það ljóst, að það
getur ekki komið áhugamálum
sínum í framkvæmd, nema verka-
lýðurinn fylki sér um það. Verka-
menn, gerist félagar og fáið sam-
starfsmenn ykkar til að gera slíkt
hið sama. Enginn, sem ekki lætur
sér á sama standa um málefni
verkalýðsins, má láta sig vanta
frá starfinu.
an, sem er undirstaðan undir öll-
um stóriðnaði um 45% eða alt að
því um helming þess, sem áður
var. 7 stunda vinnudagurinn og
4 daga vinnuvikan náðu miklu
meiri útbreiðslu en gert var ráð
fyrir. En þó hefir veruleikinn á
engu sviði gert áætluninni aðra
eins skömm til, eins og um þjóð-
nýtingu landbúnaðarins. 1 febrúar
síðastliðnum var meira en helm-
ingur af landbúnaði allra Ráð-
stjórnarríkjanna í höndum sam-
yrkjubúa og ríkisbúa! Telja má
víst að aðeins örlítill hluti af
landbúnaði Rússlands verði í
höndum einstakra manna haustið
1933. 1 einu vetfangi hefir veru-
leikinn gert broddborgarana
hlægilega, sem halda því fram, að
jafnaðarstefnan geti aldrei náð
til landbúnaðarins. Rússnesk al-
þýða keppir nú að því, að fram-
kvæma fimmára-áætlunina á fjór-
um árum, en gera má ráð fyrir að
það takist á mun skemri tíma.
Lítum nú á framtíðina og ger-
um ráð fyrir að þróunin haldi
áfram með sama hraða og nú.
Raunar má telja víst að þróunin
verði mikiu örai'i, en það er betra
að láta veruleikan fara fram úr
áætluninni, en að láta borgarana
hælast um sviknar vonir.
Að 13 árum liðnum verður fram
leiðslan 28 sinnum meiri en nú,
og eftii’ 18 ár verður hún 100
sinnum meiri. Þá verður hún 5
sinnum meiri en öll framleiðsla
Bandaríkjanna, en nú sem stend-
ur er helmingurinn af allri iðn-
aðarframleiðslu heimsins í hönd-
um Bandai'íkjanna. Eftir 13 ár
verða vinnulaunin 4 til 5 sinnum
hærri en nú. Eftir 2 ár, í hæsta
lagi, verður hvergi unnið lengur
en 7 stundir á dag og vinnuvikan
hvergi lengri en fjórir dagar. 1938
mun ekki verða unnið lengur en
6 stundir á dag, en 5 stunda vinnu
dagurinn mun vei'ða kominn í
framkvæmd í síðasta lagi árið
1943. (Á því herrans ári er
samningur íslendinga við Dani út-
runninn. Ætli það kunni nú ekki
að vera fullsnemt, að ræða af
kappi um endumýjun hans. Ver-
ið gæti að atburðimir í Rússlandi
settu eitthvert strik í reikning-
inn). f nánustu framtíð verður
alt atvinnuleysi horfið með öllu.
Á næstu 15 árum mun jafnaðar-
skipulagið ná slíkum vexti í Rúss-
landi að engin þarf að vinna sér
til lífsviðurværis fyr en hann er
tvítugur eða eftir að hann er
fimtugur. Almenn skólaskylda
mun svara til mentaskólanáms
nú, svo að mentun allrar alþýðu
mun standa feti framar mentun
stúdenta í auðvaldslöndunum. Það
er því enginn vafi á því, að ef
Rússland fær að halda friði, mun
núlifandi kynslóð verða aðnjót-
andi allra yfirburða jafnaðar-
stefnunnar.
Hvemig er þá ástandið og
hvernig em horfumar í auðvalds-
löndunum? Alstaðar ríkir at-
vinnuleysi, neyð og hörmungar.
Almenn kreppa hefir skollið yfir
hið fyrirheitna land auðvaldsins,
Bandaríki Ameríku og þaðan
breiðist hún út yfir allan auð-
valdsheiminn eins og fellibylur.
Launin lækka, vinnudagurinn
lengist, skattamir hækka, tollam-
ir hækka, vinnuhraðinn er auk-