Fréttir - 08.05.1926, Side 1
FRÉTTIR
Laugardaginn 8. maí.
1926
Prentsmiðja Vesturlands, ísafirð!
■1.
Lítið blað —
litili formáli.
Svo sem vænta má, hafa marg-
ir menn hér S bæ fundið til þess
hve leiðin!egt það er, — og oft
jafnvel bagalegt — að fá eigi
fréttir úr umheiminum oftar en
venja hefir verið, eða einu sinni
í viku — i blöðunum hér,
Eigi er þetta síst tilfinnanlegt
þá er slik tiðindi gerast sem nú
í Englandi.
Fyrir því ríða „Fréttir" úrhlaði.
Er þeim ætlað að koma ut dag-
lega með nýjustu fregnir, bæði
erlendar og innlendar, svo sann-
ar og réttar sem föng eru á.
Vitanlega hefir þetta talsverðan
kostnað í för með sér. — sím-
skeyti o. fl. — og er því verð
blaðsins nokkuð hátt — 20 au.
btáðið.
Ýmsir munu kjósa að „Fréttir"
verði bornar heim til þeirra, og
eru þeir vinsamlegast beðnir að
gera aðvart um þaö í prentsmiðj-
unni.
Allsherfar verkfalliá
breska.
5 miljónir þátttakenda.
Það er, svo sem kunnugt er af
blöðunum, hafið fyrir nokkru og
taka þátt í því um 5 miljónir
manna, bæði á sjó og landi.
Helstu tiðindi af því fara hér á
eftir.
í dokkunum.
Að kvöldi þess 5. lenti trysk-
ingum niðri við dokkurnar i Lond-
on. Tóku verksfaílsmenu vörubila,
sem voru að flytja vörur og veítu
þéim Í sjóinn. Einn maðurlét lífið
í bardaganum en margir særðust.
Stjórnarblaöið.
Eins og kunnugt er, þá eru öll
blöð i Englandi hætt útkomu vegna
verkfallsins. Stjórninni hefir þó
tekist að halda úti einu blaði.
5. þ. m. gerðu verkfallsmenn
tilraun til þess aö hindra útbýt-
ingu þessa blaðs — Churchiil er
ritstjóri þess — eu iögreglán bar
sigur úr bítum í þeirri viðureign