Hænir - 10.11.1923, Blaðsíða 4
2
HÆN I R
1. tbl.
i
Seyðisfirði
hafa fyrirliggjandi:
Appelsínur
Epli
Vínber
Kartöflur
Mjólk, 2 teg.
Ke^, 3 teg.
Maismjöl
Haframjöl
Rúgmjöl
Hveiti, 2 teg.
Rúsínur
Sveskjur
Súkkulaði, 5 teg.
Grænsápu
Handsápur
Sóda
Kaffi
Export
Cylinderolíuna „RAPID“
Símskeyti
(frá fréttaritara Hænis).
Ak. ö/n.
Þýzkaland f uppnámi.
Ægilegar dýrtíöaróeirðir hófust á mánudag í Berlín, og halda
áfram sem Qyðingaofsóknir. Allar búðir Gyðinga rændar. Búist við
bióðugum atbiirðum um alt rfkið í dag (9 nóv.). Vopnaðir herflokkar
vaða uppi í Bayern, Saxlandi, Thúringen, Pommern, Mecklenburg,
Slesíu og Austur-Prússlandi. Ríkisstjórnin gerir ráðstafanir til varnar
Berlínarborg og krefst stuðnings allra stétta.
Frakkar
eru reiðubúnir til að ráðast inn í Þýzkaland ef þjóðernissinnar nái
völdum þar.
Rfnarlýðveldið
er liðiö undir lok. Belgir hafa skift um steínu og svift skilnaðar-
menn vopnum.
Noregur:
Landsfundur kummunistanna norsku, hefur synjað úrslitakröfum
frá Moskva um aö hallast að fyrirtnælum þaöan rneð 163 atkvæðum
gegn 103, og er meiri hlutinn farinn úr alþýðusambandinu í Moskva.
Meirihluti Stórþingsins norska hefur lagt til að Kristjanía heiti Osló.
Tyrkland
er orðið lýðveldi og forseti þess Mustapha Kemal.
Reykjavík.
Þrír menn hafa horfið í höfuðstaðnum með hokkurra daga milli-
bili, og þykir þetta eigi einleikið. Maður hefir verið settur í gæzlu-
varðhald, sem grunaður er um að vera valdur að hvarfi eins mannsins.
Barðastrandasýsla:
Hákon Kristófersson B ? atkv.
Andrés Jóhannesson F
Dalasýsla:
Bjarni Jónsson frá Vogi B 420 atkv.
Theodór Arnbjarnarson F 316 —
Snæfellsnessýsla:
Halldór Steinsson B 666 atkv.
Guðmundur Jónson J 214 —
Jón Sigurðsson F 24 —
Mýrasýsla:
Pétur Þórðarson, B sjálfkjörinn.
Jón Sigurðsson tók framb. aftur.
Borgarf jarðarsýsla:
Pétur Ottesen B sjálfkjörinn.
Reykjavík:
Jón Þorláksson B
Jón Baldvinsson J
Jakob Möller B
Magnús Jónsson B
Héðinn Valdemarsson J
Lárus Jóhannesson B
Hallbjörn Halldórsson J
Magnús V. Jóhannesson J
B-iistinn, listi borgaraflokksins,
fékk 4944 atkv. og kom þannig
að 3 mönntim, en A-Iistinn, listi
jafnaðarmanna, fékk 2492 atkv.
og kom að 1 manni.
Úrslit kosninganna hafa orðið
þau að- Borgaraflokkurinn hefir
fengið 21 sæti, Framsóknarflokk-
urinn 11, Jafnaðarmenn 1 og 1
er óráðir.n, Magnús Torfason 1.
þm. Árnesinga. Framsóknarflokkur-
inn hefur unnið á í 4 kjördæmum:
S-Múlasýslu, Eyjafj.sýslu, Stranda-
sýslu og V-ísafj.sýslu. einn þing-
manni í hverju, en aftur á móti
tapað í 5 kjördæmum, 1 þingsæti
í hverju: Vestm.eyjasýslu, Árnes-
sýslu, Rangárv.sýslu, V-Skaftafells-
sýslu og Akureyri. Keyndar er ekki
gott að gizka á hvar Magnús
Torfason ræður sig í skiprúm, en
snúist hann í lið Framsóknar-
flokksins, verður þar jafnt á skipaö
að höfðatölu og fyrir kosningar,
þar til útséð er um N-Múiasýslu.
En ekki ætlandi að henni verði
jafn mislagðar hendur og S-Múla-
sýslu. Því mestum undrum sætir
það í þessum kosningum, að
fella Magnús Gíslason, sýslumann,
jafn ágætan mann og gáfaðan
frá kosningu, en velja í hans stað
Ingvar Pálmason, að honum
ólöstuðum, sem manni. Kosning-
arnar í Strandasýslu og V-ísa-
fjarðarsýslu bera reyndar heldur
slælegan vott um stjórnmálalegan
þroska kjósenda. En þrátt fyrir
þessa vinninga mun nú Fram-
sóknarflokknum finnast svipur
sinn anpar en var fyrir kosning-
arnar, og sem hrunið hafi blóm-
knappur úr kórónu sinni er Akur-
eyringar lögðu foringjann að velli,
forseta sameinaðs þings.
Af 12 jafnaðarmönnum og
kommunistum sem í kjöri voru
náði aðeins'l kosningu.
Að landskjörnu þingmönnunum
meðtöldum, en N. Múlasýsiu
ótalinni, er þá flokkaskipun þannig:
25 Borgaraflokksmenn,
13 Framsóknarflokksmenn,
1 Jafnaðarmaður og
1 óráðinn.
Kokkur orð.
Þar eð ég hef nú ákveðið að
hætta blaðútgáfu og blaðamensku
hér eystra, og snúa mér að öðr-
um störfum, vil ég biðja hið nýja
blað að bera öllum lesendum blaða
þeirra, er ég hef stjórnað, beztu
þakkir og kveðjur. Vænti ég, að
mér gefist í framtíðinni kostur á
að ná tali þeirra í riti, þótt á ann-
an hátt verði en áður. Vil ég
óska þess fyrir hönd hins nýja
blaðs, að það megi ná til sem
flestra og verða iesendum og rit-
stjóra að gagni og gleði.
Seyðisfirði,7.dag nóvembermánaðar 1923
Quðmundur Q. Hagalín.
."-O-- ■' —
Frá bæjarstjórnarfundis.þm.
Það nýmæli var þar á ferðinni,
að Haraldur Guðmundsson, verk-
stjóri, sótti um lausn úr niður-
jöfnunarnefndinni. Eftir all-miklar
umræður samþ. bæjarstjórnin að
verða við þessari beiðni hans,
nokkuð fyrir þá sök, að það upp-
lýstist á fundinum, að heilsu hans
væri þann veg farið, að honum
þætti sér hollara, að vera ekki
bundinn við þesskonar störf, en
þó frekar vegna hins, að mönn-
um var Ijóst, að flokkur sá, er
stóð að kosningu -hans í niður-
jöfnunarnefndina, gerði það að
honum þvernauðugum. Annars
leit meirihluti bæjarstjórnar svo á,
réttilega, að tæplega væri gerlegt
að verða við svona löguðum
beiðnum, því fleiri gætu á eftir
komið, og óheppileg skifti á mönn-
um á miðjum kjörtímabilum, og
skjóta þá inn í slíkar nefndir
mönnum, sem ókunnir væru störf-
unurn.
í sambandi við þetta þykir rétt,
að benda hvaða flokki sem er á
það, að það er mjög óheppilegt,
að þröngva mönnum, þótt góðir
og starfhæfir séu, tif starfa opin-
berra mála. Enda er það sjaldn-
ast þörf. Venjulegast nógir tilleið-
anlegir, þótt það séu stundum
þeir, er síður skyldi.
Fyrir fundinum lágu einnig
beiðnir frá ungfrú Elízabet Bald-
vins, um að fá e,ina kenslustofu í
barnaskólanum til epskukenslu 3—
4 tíma í viku, og frá Hermanni
Þorsteinssyni, erindreka, fyrir hönd
Fiskifélags íslands, um að fá eina
kenslustofu í barnaskólanum fyrir
sjómannanámskeið, sem á að
halda hér frá 19. þ. m. til l.febr.
næstk., eða í rúma 2mánuði aðfrá-
dregnum hátíðunum. Bæjarstjórn-
in sam|oykti með 8 atkv. gegn 1
að leyfa báðum umsækjendum að
nota kenslustofurnar endurgjalds-
laust, með ljósi og hita. En synd
væri að segja að þetta gengi
orðalaust af, og ekki laust við að
vikið væri frá efninu.
Að því er sjómannanámskeið-
ið snertir má geta þess, að þetta
verður í síðasta sinn, sem það
verður haldið, og ættu menn því
að nota tækifærið.
Pianókensla.
Nokkrir nemendur geta
fengið tilsögn í píanóspili.
Emilía Bjarnadóttir
Talsími 38
2, hefti
af Þjóðsögum og sögnum Sig-
fúsar Sigfússonar er nýbyrjað að
prenta hér í prentsmiðjunni, og
búist við að prentun þess verði
lokið í janúar næstk. Þetta hefti
verður nálega þrefalt stærra en 1.
heftið og heitir sá flokkur Vitrana-
sögur.
Verður útgáfa þessa heftis jafn
vönduð og hin fyrsta.j og kápu-
myndin hin sama.
Hænir
kostar í lausasöhi 25 aura. Þeir, sem
gerast vilja fastir kaupendur, tilkynni.