Hænir


Hænir - 23.03.1925, Qupperneq 1

Hænir - 23.03.1925, Qupperneq 1
Q^'XJÍXX iXXXU1XXXLX * 1iX'tl iiÁt.iíXXX.. : Ritstjóri og ábyrgðarm. : Sig. Arngrímsson | Talsími 32 :: Pósthólf 45 ! Kemur út einu sinni í viku; minst 52 blöð á ári. Verð 6kr. árg. Gjaldd.l. júlí, inn- anbæjar ársfjórðungslega 3. árg. Seyöisfirði, 23. marz 1925 12. tbi. Ræða Jóns Þorlákssonar við 1. umræðu fjárlaganna í Neðri deild 10. f. m. Nl. Gengið. Gengi íslenzku krónunnar var í byrjun ársins 53.8% af gullverði, lækkaði síðan fyrstu mánuöi árs- ins og náði Iágmarki 12. marz; var það þá 46,8% af gullgildi. Síðan hækkaði gengið, stóð í maí og júní nálægt 50% af gullverði, og hækkaði úr því jsfnt og þétt upp í 63.1% af gullverði í árslok. Hækkun hélt einnig áfram eftir áramótin, og gengið er nú um 65.4% af gullverði. Auðvitað er það hin mikla framleiðsla, sam- fara hagstæðari verzlun, en undan- farin ár, sem hefir gert þessa hækkun mögulega, en að hækk- unin hefir gengið jafnt og rólega, án þess að gengið sveiflaðist upp og niður, er að minsta kosti að talsverðu leyti að þakka starfi nefndar þeirrar, gengisnefndarinn- ar, sem skipuð var á miðju árinu, samkv. ákvörðun laganna um gengisskráningu og gjaldeyrisverzl- un frá 4. júní f. á. Vegna þess, hve gengið ver lágt allan fyrrihluta ársins, hefir meðalgengi peninga vorra yfir árið í heild, ekki verið nema hér um bil 53% af gullverði, og hefir meðalgengið ekki orðið svo lágt nokkurt undanfarið ár, hafði t. d. verið um 59% árið 1923. Seðlaútgáfan. í sambandi við gengi pening- anna, þykir mér rétt að gera grein fyrir seðlaútgáfu bankanná á árinu, og skiftum stjórnarinnar af henni. f byrjun voru seðlar í umferð frá báöum bönkunum tæpar 6 milj. kr.. og 1. apríl var upphæðin komin niður í 51/* milj. kr., hvort- tveggja lægra en verið hafði nokkru sinni á sama tíma árs síðan 1918. 1. júlí var veltan komin upp í 6.4 milj. kr., og var þetta líka lægra en verið hafði á sama tíma síðan 1918. Eftir gildandi lögum átti ís- landsbanki að draga inn 1 miljón kr. af seðlum sínum fyrir 31. okt., en 30. júní skrifaði bankastjórnin ráðuneytinu og benti á, að gjald- miðilsþörfin mutidi ekki leyfa þennan inndrátt, án þess, að aðrir seðlar væru gefnir út í staðinn, og vegna hækkandi verðlagsmundi þurfa þar til viðbótaraðra miljón, og lagði til, að ríkisstjórnin hlut- aöist til um, aö Landsbankinn setti í umferð samtals 2 milj. króna, samkv. heimild í lögum nr. 7. frá 4. maí 1922. Um þetta var leit- að álits stjórnar Landsbankans, og taldi hún í svari sínu 12. júlí eigi mögulegt að framkvæma lögmæt- an seðlainndrátt án stórfeldrar röskunar á atvinnulífi þjóðarinnar, en leggur hins vegar mikla áherzlu á, að seðlaútgáfan sé takmörkuð svo freklega sem unt er, og þess vegna haft aðhald sem mest má vera. Eftir tillögu þessarar banka- stjórnar var svo Landsbankanum, með bréfi 17. júlí, heimilað að setja í umferð l1/2 milj. kr. íseðl- um, en báðum bönkunum tilkynt, að ráðuneytið legði „áherslu á það, að hvorugur bankinn noti aukningu seðlamagsins til aukinna útlána í neinni mynd, og að stjórn- ir beggja bankanna geri alt sem í þeirra valdi stendur, til þess, að draga inn sem mest af umferða- seðlunum í haust, þegar gjaldmið- ilsþörfin væntanlega fer að minka. Þessi aukning reyndist ónóg. Ýmist eftir beinni beiðni Lands- bankans eða eftir meðmælum frá honum, var honum með sömu skilyrðum heimilað að gefa út til viðbótar: 30. sept. 1 milj. kr. 7. okt. J/2 milj. „ 31. okt. milj. „ Samtals var þá búið að gera ráðstafanir til að setja í umferð 33/4 milj. kr. umfram þær 6 milj er íslandsbanki mátti hafa úti eftir 31. okt., og gömlu Landsbankseðl- ana 8/í milj. kr., eða seðlaveltan var komin alt aö ÍO1/^ milj. króna. Samkvæmt skýrslum bankanna hefir seðlaveltan í heild verið á mánaðarmótum: 30. sept. 1924 9 milj. 979 þús. 31. okt. 1924 10 milj. 015 þús. 30. nóv. 1924 8 milj. 984 þús. 31. des. 1924 8 milj. 621 þús. 31. jan. 1925 8 milj. 295 þús. Hámarki náði seðlaveltan í nóv. snemma, komst upp í ÍO1^ milj. kr., og mun aldrei áður hafaorð- ið eins mikil, nema haustið 1919 og 1920. Þessi mikla aukning seðlavelt- unnar, var auðvitað mjög varhuga- verð, og ráðuneytinu var það Ijóst, að skylt var að neyta allra ráða til þess að sporna á móti henni. Ástæðan fyrir seðlaþörf bankanna haustmánuðina var yfirleitt ávalt ein og hin sama, nefnilega kaup þeirra á erlendum gjaldeyri. Þeir hafa á liðna árinu keypt erlendan gjaldeyri fyrir eitthvað 17 milj. kr- um fram það, er þeir seldu. Þennan mismun urðu þeir að borga með ísl. krónum. Nokkuð greiddu jeir með skuldajöfnuði við selj- endur; þar að auki gátu þeir not- að afborganir, sem þeim guldust frá öðrum hérlendum skuldanaut- um. En þetta reyndist ekki nóg, seðlaaukningu þurfti til viðbótar. — Sú spurning liggur nærri, hvernig farið hefði, ef neitað hefði verið um seðlana, og svarið ligg- ur í augum uppi. Þá hefðu þeir orðið að hætta að kaupa þann erl. gjaldeyri sem bauðst; verð hans hefði hríðfallið í bili, meðan framboðið var mest, en hækkað síðan aftur. Ef neitað hefði verið að nokkru eða öllu um þær 2xjv, miljónir, sem heimilaðar voru á einum mánuði, frá 30. sept. til 31. okt., einmitt þegar útflutningur og sala á aðalafurðum landbúnaðar- ins var að byrja, þá hefði þar af leitt stórkostlegt verðfall á einmitt þeim erlenda gjaldeyri, sem fékst fyrir þessar afurðir, og þar meö óverðskuldað stórkostlegt tap fyrir landbúnaðinn. Undir þessum kring- umstæðum varð ráðuneytið að telja sér skylt að heimila þá seðla- útgáfu, sem þurfti til þess, að bankarrir gætu haldið erlenda gjaldeyrinum í því verði, sem gengisnefndin skráði. Þetta er í eðli sínu alveg hið sama, sem að leyfa seðlabanka á venjulegum tímum, að gefa útseðla til að kaupa fyrir þá gull, og það er jafnan talið sjálfsagt. En hitt væri alveg óleyfilegt, að prenta seðla til þess að lána þá út. Slíkt leiðir beint út í verðfall pening- anna. Og þegar svona stendur á, að óvenju mikla seðla hefir þurít að láta úti vegna kaupa á gulli eða erl. gjaldeyri, þá er ekki nóg að hafa útlánin meðan seðlavelt- an er að aukast; það verður að hefta þau þangað til svo mikið er inn komið af seðlunum aftur, að seðlaveltan þykir hæfileg. Slík út- lánahöft eru ekki annaö en brýn og óhjákvæmileg ráðstöfun til þess að halda uppi genginu, eða gildi peninganna. Bankarnir, gjaldeyrisnefnd og ríkisstjórn aðvara. Þetta hefir bæði bönkunum, gjaldeyrisnefndinni og stjórninni verið Ijóst. Bankarnir sendu út að- vörun til skiftavina sinna um að- hald í ráðstöfunum, og ráðuneyt- ið sendi, eftir beiðni gjaldeyris- nefndarinnar, áskoranir í sömu átt til allra sparisjóða og sveita- stjórna. Seðlaveltan hefir líka far- ið minkandi seinustu mánuðina, en þó er hún ennþá svo mikil, meira en þriðjungi hærri en í fyrra á sama tíma, að full ástæða ertil að fara varlega. Ég hefi viljað skýra nokkuð ít- arlega frá þessu, bæði vegna þess, aö málið er í sjálfu sér svo mik- Isvert, og vegna þess að stjórnin hefir orðið fyrir dálitlu aðkasti út af því, að hún vildi ekki um mán- aðamótin okt,—nóv., þegar seðla- veltan var sem allra hæst, neyða -andsbatikann til að byrja á lán- veitingum, samkv. lögum frá 4. úlí f. á., um stofnun Búnaðarlána- deildar. Þessi lánadeild tók svo til starfa jafnskjótt og inndrætti seðla var svo langt komið, að með nokkru móti þótti forsvaranlegt að hvetja til þess, að nokkur banka- lán yrðu veitt, og það var ekki fyr en um síðustu mánaðamót. Horfurnar. Þá læt ég útrætt um liðna árið að sinni, og sný mér að þeim við- fangsefnum, sem fram undan eru. Skal ég þá fyrst drepa lítjð eitt á almennar horfur. Gdðæri freistar til áræða. Það er almenn reynsla, að góð- ærið freistar manna til ýmiskonar áræða og framkvæmda, jafnvel til léttúðar og eyðslu. Sagan sýnir greinilega, að góðæri í fjármálum, eða hækkandi hagsveifla, stendur aldrei nema örfá ár í senn, og endar með fjárkreppu, sem verð- ur því harðari og skaðvænni fyrir atvinnulífið, sem menn hafa verið örari til áræðanna og léttúðugri á uppgangsárunum. Þessu lögmáli lútum vér eins og aðrir. Á róleg- um tímum virðist hækkun hag- sveiflunnar, eða góðærið í fjár- málum, geta staðið yfir í 3 til 5 ár, en á umbrotatímum vilja sveifl- urnar verða tíðari og styttri. Er skemst á að minnast, að síðasti uppgangstíminn hjá oss stóð ekki nema rúmlega eitt ár, 1919, og á eftir kom sú fjárkreppa og hrun, sem vér höfum ekki yfirstigið til fulls ennþá. Vér megum nú ekki við því, að sá uppgangstími, sem byrjaði snemma á síðastliðnu ári, endi með einu hruni. Fram- kvæmdamennirnir í landinu veröa að liafa glöggar gætur á því, að ráðast nú ekki í annað eða meira en það, sem þeir geta af eigin efnum fleytt yfir næstu fjárkrepp- una, þegar hún kemur. Gengishækkun raskar jafnvægi milli tilkosnaöar og afraksturs. Auk hinnar almennu vitneskju um það, að sérhver uppgangstími endar með fjárkreppu, eru í þetta sinn tvær sérstakar ástæður fyrir hendi, sem gera það knýjandi

x

Hænir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hænir
https://timarit.is/publication/620

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.