Hænir - 23.03.1925, Qupperneq 3
HÆNIR
þar sem þær eru beztar, íþvíefni
finnum vér enga fyrirmynd betri
en fjármálastjórn vors eigin lands
eins og hún var fram að styrjöld-
inni miklu.
Þjóðarsorg.
(Helgað minningu sjómannanna,
er fórust í mannskaðaveörinu
7.-8. febrúar 1925.)
Enginn flýr eitt um skref
örlaga skapadóm;
veraldar vegabréf
verða þá innantóm.
„Þegar að kemur kall
kaupir sig engi frí".
Hinum á hœla skall
hurð, eða nœrri því.
Fátt segir einum af.
Ei mun það vafi neinn:
SkipsÖgn í hyldjúpt haf
hverfur sem maður einn.
Alveg í einum svip
yfir lykst báran há.
Afskráir alla og skip
Ægir í skyndi þá.
Þetta er hið ægiiegasta sjóslys,
sem orðið hefir hér á landi, og
er sannkallaður alþjóðarharmur,
því að þarna hafa horfið hinir
röskvustu menn, úr öllum lands-
fjórðungum, Og hvað var mann-
tjón ófriðarþjóðanna í styrjöldinni
miklu á móts við það manntjón,
sem orðið hefir í liði íslenzku
sjómannanna á þessum vetri? —
Það var hverfandi, þrátt fyrir all-
ar vígvélarnar. Er það ekki sorg-
legt, að okkar fámenna þjóð skuli
greiða slíkan skatt, að jafnvel sé
þyngra en tárum taki? Og er það
þá ekki eðlilegt, að maður geti
ekki trúað því fyr en í seipustu
lög, að forlögin séu svo grimm
sem raun er á? En það er fagur
vottur um hugsunarhátt íslendinga,
að einkis hefir veriö látið ófreist-
að til þess að leita uppi hin horfnu
skip og reyna að bjarga þeim.
Mun það í annálum haft, svo lengi
sem land er bygt, þá er skipafloti
héðan ieitaði dögum og vikum
saman um þvert og endilangt
Qrænlandshaf.
Veörið mikla.
Það brast á íslenzka fiotann,
sem þá var vestur á „Hala“, um
hádegi laugardaginn 7. febrúar.
Varð það með svo skjótri svipan,
að slíks munu ekki þekkjast dæmi,
enda umhverfðist sjórinn í einu
vetfangi, og ekki var hægt að ráða
við neitt. Hið síðasta, sem menn
vita um þá „Leif hepna“ og
„Robertson", er það, að þeir voru
skamt hvor frá öðrum, þegar veðr-
ið skall á, en skip þau, er næst
þeim voru, mistu brátt sjónar á
þeim. Veðrið hélzt óbreytt í hálf-
an annan sólarhring, en þá tók
þ /í heldur að slota. „Leifur hepni"
var með talsverðan afla, en um
hitt skipið vita menn síður, hvort
það hafði veitt nokkuð að ráði.
Manntjónið.
Á „Leifi hepna“ voru þessir
33 menn:
Gfsli M. Oddsson, skipstjóri,
Skólavörðustíg 3 B.
Ingólfur Helgason, 1. stýrimaður,
Hafnarfirði.
Ásgeir Þórðarson, 2. stýrimaður,
Bergstaðastr. 37.
Valdemar Árnason, 1. vélstj. Hverf-
isgötu 16.
Jón Halberg Einarsson, 2. vélstj.
Njálsgötu 39 B.
Magnús Brynjólfsson, loftskeytam.
Lindargötu 14.
Jón Cornelius Pétursson, bátsm.
Vesturg. 25 B.
Ólafur Jónsson, matsv. Laugav. 38.
Sigmundur Jónsson, Laugaveg 27.
Stefán Magnússon, Njálsgötu 32 B.
Jón Guðmundsson, Frakkast. 23.
Ólafur Qíslason, Hverfisgötu 32.
Þorbjörn Sæmundsson, Bergþ.g. 4.
Oddur Rósmundsson, Bergþ.g. 7.
Ólafur Brynjólfsson, Lindargötu 14.
Jónas Quðmundsson, Akranesi.
Sveinbjörn Elíasson, Bolungavík.
SigurðurQuðmundsson, Önundarf.
SigurjónJónsson,Bergstaðastr.30B.
Helgi Andrésson, Mjóstræti 4.
Jón Sigmundsson, Laugaveg 50.
Jón Hálfdánarson, Hafnarstr. 18.
Randver Ásbjörnsson, Rauðarárst. 9.
Jón Jónsson, Austurstræti 11.
Sigurður Lárusson, Bröttugötu 6.
Sigurður Jónsson, Miðstræti 8 B.
Sigurður Albert Jóhanness., Hvg.16.
Sveinn Stefánsson, Miðhúsí Qarði.
Þorlákur Einarsson, Rúfeyj.,Breiðaf.
Jón Sigurðsson, Sveinseyri, Dýra .
Ólafur Þorleifss., kyndari, Vatnsst.4.
Björgvin Kr. Friðsteinsson, kyndari,
Laufásveg 27.
Jón Stefánsson, Sauðagerði C.
Á „F. M. Roþertson" voru 29
íslendingar. Þessi eru nöfn þeirra:
Einar Magnússon, skipstjóri, Vest-
urgötu 57.
Björn Árnason, 1. stýrim., Lauf. 43.
Sigurður Árnason, 2. stýrim., frá
Móum, Kjalarnesi.
Bjarni Arnason, Grund, Kjalarn.
Bjarni Eiríjcsson. bátsm., Hafnarf.
Jóhann Ó. Bjarnason. Óðinsg. 17 B.
Gunnl. Magnússon, Vesturgötu57.
Einar Helgason, matsv., Patreksf.
Anton Mngnússon, frá Patreksfirði.
Halldór Guðjónsson. Njálsg. 36 B.
Erlendur Jónsson, Hafnarfirði.
Þórður Þórðarson, Hafnarfirði.
Tómas Albertss., frá Teigi íFljótshl.
Sigurjón Guðlaugsson, Hafnarfirði.
Valdemar Kristjánss. Bræðrabst.24 A
Halldór Sigurðsson, Akranesi,
Óiafur Erlendsson, Hafnarfirði.
Ól. Bjarni Indriðason, Patreksf.
Árni Jónsson ísfjörð, Þingh.str. 15.
Jón E. Ólafsson, Keflavík.
Einar Hallgrímsson, Hafnarfirði.
Magnús Jónsson .loftskeytam. Flatey
Jón Magnússon. Grettisgötu 53 A.
Vigfús Elísson, Hafnarfirði.
Óli Sigurðsson, Norðfirði.
Egill Jónsson, Hafnarfirði.
Óskar V. Einarsson, Vesturg. 30.
Kr. Karvel Friðriksson, Reykjavík.
Jóhannes Helgason, hjálparmatsv.
Hafnarfirði.
Auk þess voru á Skipinu 6 Eng-
lendingar. Enski skipstjórinn hét
C. Beard.
Sorgarathöfn.
Þögn! — Hið svarta sorg&rský,
er svifið hefir norðri í,
nú byrgir alla útsýn vona
um afturheimt landsins góðu sona;
og reiðarslagsins dómsorð dynur:
Dáinn er faðir, bróðir, vinur!
Og harmi lostin hnípir þjóð,
til himins stíga andvörp hljóð.
Við hjarta fslands hneit
sá hjör er hvassast beit.
< V
Sorgarathöfn ter fram hér í bæn-
um í dag sins og skýrt var frá í
Dagblaðinu á Sunnudaginn. Gengst
bæjarstjórn fyrir því og fulltrúar
útgerðarmanna og sjómanna í sam-
einingu. Verður athöfnin með svo
miklum hálíðleikablæ, að slíkt hef-
ir ekki þekst hér á landi áður.
Öll vinna og öll umferð á sjó
og landi á að stöðvast kl. 2 stund-
víslega og fullkomin kyrð að hald-
ast í 5 mínútur. Sérhver maður á
að staðnæmast þar sem hann er
þá, og allar samræður eiga að
íalla niður bæði úti og inni um
allan bæ.
Minningarguðsþjónustur verða
síðan haldnar bæði í Dómkirkj-
unni og Fríkjrkjunni kl. 3 og verð-
ur reýnt, eftir mætti, aö sjá svo
um, að ástvinir hinna látnu kor.-
ist þ r að á undan öðrum.
í Dómkirkjunni talar séra Bjarni
Jónsson og í Fríkirkjunni séra
Árni Sigurðsson.
Á Alþingi verða engir fundir í
dag, en forseti sameinaðs þings
og formenn sjávarútvegsnefnda
beggja deilda taka þátt í sorgarat-
höfninni í Dómkirkjunni.
Skeyti frá H. H. konunginum.
Prins Knud viöstaddur sorgar-
athöfnina.
Svolátandi skeyti barst forsætis-
ráðherra í gær frá konungi:
„Drotningin og ég vottum aö-
standendum hjartanlega hlut-
tekningu.
Sonur minn veröur fyrir mfna
hönd viöstaddur sorgarathöfn-
ina“.
M.b. Sölveig.
Á hann hefir verið minst hér í
blaðinu áðurog sagt frá því, hverj-
ir menn voru á honum. Eins og
kunnugt er, voru sex menn á
þeim bát og fórst hann í sáma
rokinu og botnvörpungarnir
Ýmislegt um skipin.
Af skipshöfninni á „Leifi hepna“
voru 12 menn kvæntir og láta
eftir sig 31 barn. Helgi Andrésson
var faðir 1. stýrimanns. Hann var
gamall þilskipsformaður að vest-
an.. Fyrir mörgum árum hvolfdi
undir honum hákarlaskipi; velti
skipið sér um kjöl og reisti sig
aftur á hinn bóginn, og misti
Helgi engan mann. — Mun slíkt
eins dæmi hér á landi og þótt
víðar sé leitað. Magnús Brynjólfs-
son og Ólafur Brynjólfsson voru
bræður. Ólafur Gíslason var bróðj
ir Guðm. G. Hagalíns skálds.
Flestir af þessum mönnumvoru
á bezta aldri. Þrír bræður frá Mó-
um á Kjalarnesi voru á „Róbert-
son“, Björn, Siguröur og Bjarni
Árnasynir. Hinn síðastnefndi læt-
ur eftir sig konu og 7 börn ung.
Erlendur Jónsson lætur eftir sig
konu og 5 börn, Þórður Þórðar-
son konu og 10 börn. Jón Magn-
ússon konu og 3 börn, Egill Jóns-
son konu og 6 börn, Bjarni Eiríks-
son konu og börn, Kr. Karvel
Friðriksson konu og börn, Árni
Jósson ísfjörð 3 börn, en tvö
þeirra eru uppkomin. Einar
Magnússon skipstjóri lætur eftir
sig ekkju og 2 börn. Bróðir hans,
Gunnlaugur, var á skipi meðhon-
um. Bjarna Eiríksson tók út af
„Kára Sölmöndarsyni" í fyrra, og
var það sérstakt lán, að hann
náðist þá lifandi. — Jón Ólafsson
var bróðir Guðbjarts Ólafssonar
skipstjóra.
(„Dagblað“ 10. marz.)
Ennfremur má geta þess, að
Ólafur Þorleifsson, kyndari á Leifi
hepna, var frá Bæ í Lóni í Aust-
ur-Skaftaf.sýslu, sonur Þorleifs ÓI-
afssonar bónda þar. Var Ólafur
sál. um skeið kyndari á Goðafossi,
mesti myndarmaður.
Hluttekning hér. Þess gleymd-
ist að geta í síöasta blaði, að hér
á Seyðisfirði var sýnd hluttekning
í minningarathöfninni lO.þ.m. með
flöggum í hálfa stöng um allan bæ
og á Goðafossi, sem var staddur
hér á norðurleið, vinnustöðvun
og klukknahringingu í 5 mínútur.
Símfregnir.
Rvík 18/b. FB.
Komunistaóeirðir
urðu nýlega í Halle í Þýzkalandi,
fjöldi særðir og sjö drepnir.
Frá Peking er símað að Sun-
Yat Sen* sé dauður.
Genffregn hermir, að Chamber-
lain segi Breta ekki geta að-
hylst Genfsamþyktina.
Frá Alþingi.
Tryggvi flytur þingsályktunartil-
lögu um að sklpa 5 manna nefnd,
ti! þess, að rannsaka Krossanes-
málið. Efri deild feldi stjórnar
frumvarp um hækkun sóknargjalda.
í neðri deild var sjúkratrygging-
arfrumvarpi stjórnarinnar með
rökstuddri dagskrá vísað frá alls-
herjarnefnd. Allsherjarnefnd hefir
klofnað á frumv. um bannlaga-
breytinguna. Árni frá Múla og
Jón Kjartansson vilja ekki svifta
lækna lyfseðlaheimild, ræðismenn
rétti til þess, að flytja inn vín til
heimilisþarfa, né skip vínveitinga-
rétti.
Sveinn í Firði og fleiri flytja
hvalveiðafrumvarp. Eitt atriði þess
er um heimild til að, veita
sérleyfi til hvalveiða gegn endur-
gjaldi í ríkissjóð. Breyting á lögum
um fiskiveiðar eftir aðra umræðu
*Nafnkunnur stjórnmálamaður (lýðveld-
issinni) kjnverskur, lýðveldisforseti des.
1911—marz 1912.