Hænir - 24.08.1926, Blaðsíða 3
HÆN I R
Tilkynning.
Undirritaður hefir opnað bókbandsvinnustofu í Bjarka (áður sölu-
búð Páls A. Pálssonar). Þar verður unnin allskonar bókbandsvinna.
Töskur, veski o. þ. h. verður tekið til ágyllingar.
Vinnustofan afgreiðir alt svo fljótt sem unt er, en aðaláherzla er
ögð á vinnuvöndun. Aðeins bezta efni verður notað.
Kjörorð vinnustofunnar er: Vönduð vinna fyrir sanngjarnt verð.
Seyðisfirði 21/s. 1926.
Fougners-bókband.
S. Fougner-Johansen.
Farkennara vantar
næsta vetur í Reyðarfjarðarhrepp. Laun samkvæmt launalögunum,
Umsóknir sentist fyrir 15. seftember n. k.
Fræöslunefndin,
,iarta‘ m.s., þrímöstruð,
bygð 1919 í Arendal, 300 smál. brutto, 218smál.
netto, með Skandia-motor 120 hestöfl, sparneyt-
inn. Hraði 8 míl. hlaðin- 2 mótorspil á dekki,
tvær lúgur, 2 akkeri með 150 faðma keðju, með
spánýjum seglum.
Skipið er raflýst og nothæft til flutninga og
fiskiveiða, sérstaklega síldveiða. Til sölu nú þeg
ar og er í Færeyjum.
Semja má við
Þór. B. Guðmundsson
Seyðisfirði,
sem einnig gefur allar upplýsingar um verð og
annað. Símnefni: Tobogi
Væri ekki vit fyrir Seyðfirðinga að undirbúa sig undir síld
veiðina næsta ár, með því að kaupa strax þetta skip, t. d. með
hlutaféla^sstofnun ?
Cementog timbur
hvergi ódýrara en í verzluninni
St. Th. Jónsson.
Frá Berlin: Stjórnin hefir sent
Danastjórn mótmæli vegna þess,
að íslenzkt varðskip í maí hafi
aðvörunarlaust skotið á þýskan
togara.
Frá Vínarborg: Nágrannar
Búlgara eru sáióánægðir yfir sí-
feldum óeirðum á landamærunum
af völdum búlgarskra bófa. Júgó-
slavía, Qrikkland og Rúmenía hafa
sent harðorð mótmæli. Seinustu
fregnir eru þær, að Búlgörum og
Júgóslövum hafi lent saman og
að 100 séu fallnir.
Innflutt var í jú)í fyrir kr. 4,112,
725,00; þar af til Reykjavíkur kr.
1.658,896,00.
Kristinn Guðmundsson, af
Rauðasandi, hefir verið gerður
doktor við háskólann í Kiel.
Tveir togarar eru nú að ís-
fisksveiðum.
Rv. 2%. FB.
Frá Moskva: Deilur halda áfram
meðal stjórnarinnar, en uppreist-
arfregnirnar eru álitnar uppspuni
nágrannaþjóða.
Frá Berlfn: Þjóðverjar og
Belgíumenn semja um að hjálpa
til að endurreisa frankann. Sam-
tímis er samið um hvort Þjóð-
verjar skuli fá aftur héruðin Eupen
og Malmedy.
Frá London: í gær var sam-
eiginlegur fundur fulltrúa námu-
manna og námueigenda haldinn
samkvæmt beiðni Cooks, til að
ræða friðarskilmála.
Frá Akureyri: Síldveiðin geng-
ur treglega. Um 50,000 tunnur
saltaðar og kryddaðar hafa veiðst
í öllum veiðistöðvum norðan-
lands, en samtímis í fyrra 120,000.
Samkvæmt síldveiðaskýrslu Fiski-
félagsins var 15. ágúst búið að
flytja út 45,632 tunnur, en sam-
tímis í fyrra 102,294 tunnur.
...............•
Vélbátur sekkur.
Menn bjargast við illan ieik
Vélbáturinn „B!iki“, eign Hall-
dórs kaupmanns Jónssonar, lagði
af stað héðan síðastliðið mánu-
dagskvöld áleiðis til Bakkafjarðar
meö fullfermi af salti og öðrum
vörum og færeyskar. róðrarbát í
eftirdragi, sem átti einnig af fara
til Bakkafjarðar. Er kom norður
á Héraðsflóa, að aflíðandi nóttu,
gerðist sjór all-úfinn og dimt yfir.
Þóttust bátverjar verða þess varir,
að báturinn hyggi á eitthvert rek-
ald í sjónum, án þess þó að geta
séð hvað þaö væri. Varð skamt
þess að bíða, að afleiðingar kæmu
í Ijós, því þegar kom að bátnum
ákafur leki, sem ekki varð við
ráöið. Bátverjar, sem ekki voru
nema tveir, neyttu allrar orku við
dæluna, tii þess að reyna að
fleyta farinu til lands, en lekinn
óx stöðugt, unz þeir sáu aö engi
voru önnur ráð til bjarga lífinu en
að yfirgefa Blika, en reyna að
fleyta sér á „færeyingnum" aðlandi.
annað var ekki að gera en
leyta lendingar við Unaós, en þó
lítt fýsilegt, því brimsævi var við
ströndina. Þar sem þeimsýndistlík-
legast að renna að landi, í Stapavík,
var stórgrýtisurð fyrir. Lentu þeirþar
í hrakningum. Mest, er þeirhöfðu
tekið með sér úr Biika, tók út úr
bátnum í brimlendingunni, og út-
sogiðvarnærri því búið að taka bát-
inn og annan manninn, vélarmann-
inn, en formanninutn tókst með
snarræði og dugnaði að bjarga.
Komust þeir svo loks heim aö
Unaós, sem er stundargöngu frá
lendingu, og fengu þar hinar beztu
viðtökur og aðhlynningu. Og hing-
að komu þeir landveg á miðviku-
dagskvöld.
Formaður var þessa ferð Jón
Árnason skipstjóri, en vélarmaður
bátsins Sveinbjörn Ingimundarson.
Ungfrú Thorstina Jackson,
mentakonan íslenzka, býst viö að
koma hingað til Seyðisfjarðar
seint í þessum mánuði. Líklega
hingað frá Akureyri á „Guðrúnu“
um 15. þ. m. Hefir hún þá með
sér áhöld til að sýna myndir að
vestan, hér og víðar. Hún er út-
)úin með tvo fyrirlestra, antian
um íslendingabygðirnar í heild
sinni, en hinn um Dakota-bygð-
irnar, sem bygðareinkenni, og seg-
ir þar nákvæmlega frá frumbýl-
ingslífinu og framþróuninni, og
sýnir þá einnig nokkuö af öðrum
myndum, merkum einstaklingum
o. fl. Hún óskar helzt að flytja
báða þessa fyrirlestra hér, ef fólk
vill hlusta á, sem varla þarf að
draga í efa. Þar að auki hefir hún
mikinn hug á að flytja einn fyrir-
lestur á Kóreksstöðum, og jafn-
vel á Egilsstöðum, ef tími leyfir.
í Reykjavík og annarsstaðar sem
hún hefir talað og sýnt myndir er
stöðugt húsfyllir.
Forsætisráöherra Jón Þorláks-
son, fór snöggva ferð til útlanda
fyrirskömmu, og mun koma heim
snemma í næsta mánuði. Situr
hann þingmannamótið norræna í
Kaupmannahöfn, og með honum,
úr flokki íslenzkra þingmanna,
Klemenz Jónsson.
Landskjörsatkvæðin. Atkvæða-
tala E-listans hafði óvart mis-
prentast í síðasta tölublaði. Þar
stóð niðurstöðutalan 1312, en átti
að vera 1213 atkv.
Ógiid voru 150 atkv., og höfðu
því alls 14,097 kjósendur greitt
atkvæði En við landskjörið 1922
voru alls greidd 11962 atkvæði.
Dálítið höfðu nöfn verið færð
til á listunum, mest á D-lista. At-
kvæði hinna nýkjörnu þingmanna
féllu þannig:
Jón Þorláksson 5469% atkv.
Magnús Kristjánsson 3383% „
Jón Baldvinsson 31574/o „
Og varamennirnir:
Þórarinn Jónsson 4583 atkv.
Jón Jónsson 2889 „
Jónína Jónatansdóttir 2636 „
Páll Þorleifsson, cand. theol.
frá Hólum, var einasti umsækj-
andinn um Skinnastað í Axarfirði,
og kosinn prestur safnaðarins með
yfirgnæfandi atkvæðafjölda. Enda
hafði hann fengið áskorun frá all-
mörgum sóknarmönnum um að
sækja um embættið. Páll dvelur
nú sem stendur í Svíþjóð ogmun
ekki koma heim fyr en um miðj-
an vetur.
Silfurbrúðkaup áttu þau hjón-
in Ingibjörg Friðgeirsdóttir og Þór-
hallur JDaníelsson á Höfn í Horna-
firði, sunnudaginn 22. þ. m. Var
mikill vinafagnaður á heimili þeirra
um kvöldið er stóð alt til
morguns, meö ræðuhöldum, söng
og öðrum gleðskap.
Sverrir Johansen frá Reyðar-
firði hefir opnað bókbandsstofu
hér í bænum sem sjá má af aug-
Iýsingu á öðrum stað hér í blað-
inu. Má Seyðfirðingum vera gleði-
efni, aðfá hingað vandaðan bók-
bindara.
Gestamargt óvenjulega, hefir
verið hér í sumar. Fjöldi fólks,
sem héðan hefir flutst, hefir heim-
sótt Seyðisfjörð. A Esju fóru héð-
an frú Guöný Jónsdóttir frá Ak-