Hænir - 23.11.1927, Page 3
H Æ N I R
3
Símfréttir.
Rv. 19/u. FB.
Réttarhöld í Hnífsdalsmálinu
halda áfram. Rannsóknardómarinn
óskar þess getið, að hann í rétti
í Hnífsdal í dag, hafi fundið höf-
und atkvæðaseðils, er hann áður
taldi ritaðan af Friðbjörgu Frið-
riksdóttur í Hnffsdal. (Staðarnafnið
líklega skakt, mun eiga að vera
Bolungarvík). Sýkna Kristjáns Ól-
afssonar hreppstjóra í Bolungar-
vík þar meö sönnuð að hálfu og
sennlega öllu leyti.
Erlent: Frá Moskwa: Trotsky
og Sinovief hafa verið reknir úr
flokknum.
Rússneska stjórnin óttast bylt-
ingu. Fréttaritari Daily Mail álítur
að margir kommunistar muni
styðja Trotsky. r
Fregn frá Riga hermir, að Stalin
óttist að herinn geri byltingu. Sagt
að stjórnin hafi flugvélar reiðu-
búnar tif flótta.
Frá PiIIsburg: Gasgeymir
sprakk, 52 biðu bana, 500 meiddir.
Frá París: Frakkland og Jugo-
slavía hafa gert með sér hersamn-
ing. Tilgangurinn virðist sá, að
vinna á móti Balkanskaga-áform-
um Mussolinis.
Frá Róm: Stórráð fascista hefir
stofnað nýja þingdeild í stað
núverandi neðrimálsstofu, sem að
eins fascistar eru kjörgengir til.
Vinnuveitendur ákveða í samráði
við stórráðið hverjir verði í kjöri
í hvert sinn.
Aflasala togara í Englandi góð.
Togarinn „Maí“, á’Ieið til Eng-
lands, rakst á skozkan togara, er
•sökk. Maí flutti skipshöfnina til
Aberdeen. Nánari fregnir ókomnar.
Dánafregn: Brynjólfur Árna-
son lögfræðingur á Akureyri and-
aðist aðfaranótt 14. þ. m. eftir
langvatandi nýrnasjúkdóm. Bryn-
jólfur lauk stúdentsprófi í Rvík
1910 og heimspekisprófi við Hafn-
arháskóia árið eftir. Stundaði síð-
an laganám nokkur ár, en lauk
ekki prófi.
Málaflutnings- og innheimtustörf
stundaði hann á Akureyri síðustu
árin og þótli bæði duglegur og
samvizkusamur. Stjórnmál lét hann
og inikið til sín taka, og ritaði all-
mikið á því sviði í „íslending".
Kristneshælið var vígt 1. nóv.
að viðstöddu miklu fjölmenni.
Vígsluráeðu hélt Gunnar Benedikts-
son prestur að Saurbæ, en aðal-
ræðuna flutti Ragnar Ólafsson
konsúll á Akureyri og afhenti rík-
isstjórninni bygginguna. Þá töluðu
einnig Jónas Jónsson dómsmála-
ráðherra, Guðm. Björnsson land-
læknir og Guðjón Samúelsson
húsameistari ríkisins. Er hælið
framúrskarandi vandað og full-
komið í alla staði. Norðl. blöðin
höfðu eftír landlækni úr ræðu
hans, að „ekkert heilstihæli í heimi
væri fullkomnara en þetta“.
En hann hefir leiðrétt þetta
og segist hafa sagt, að „hælið
vaeri svo vandað og vel gert í alla
Síldaraflinn 1' ár varö sem hér segir:
Saltað. Kryddað. Selt til síldarolíu
tn. tn. verksm. hl.
safjarðarumdæmi 4774 2611 161381
Siglufjarðarumdæmi . . . . 112208 49969 222750
Akureyrarumdæmi 45501 6601 213073
Seyðisfjarðarumdæmi. . . . 18333 •
Samtals 180816 59181 597204
Afli árið 1926 97242 35097 112426
1925 215011 39099 220073
Samtals hefir verið saltað og kryddað hér á landi í sumar 239997
tunnar af síld, og þar að auki selt til síldarolíuverksmiðjanna 597204
hektolítrar, sem hefði orðið rúmar 790000 tunnur, ef saltað hefði
verið, svo aflinn er alls um 1030000 — ein miljón og þrjátíu þú&.
tunnur. — Þar að auki veiddu Norðmenn hér við land í sumar, sem
saltað var utan landhelgi og flutt til Noregs, 181784 tn. — Af salt-
aðri Íslandssíld hafa því komið á markaðinn á þessu hausti 362600
tunnur, og 59181 tunnur af kryddaðri síld.
staði, að það væri á við allra
vönduðustu heilsuhæli á Norður-
öndum, stór eða smá, og að það
væri líka fyrsta heilsuhæli í heimi,
sem væri hitað upp með jarðhita".
Hælið kostaði V2 miljón kr. og
var helmingurinn samskotafé. Vel
að verið á fáum árum. Treysta
Austfirðingar sér að leika slíkt
eftir í sjúkrahúsmálum sínum?
Læknir hælisins er Jónas Rafn-
ar, * yfirhjúkrunarkona Sólbjörg
Bogadóttir, aðstoðahjúkrunarkona
Steinunn Jóhannesdóttir, ráðskona
Ása Jóhannesdóttir frá Fjalli, ráðs-
maður Eiríkur Brynjólfsson og
vélstjóri Bjarni Pálsson.
Jón Þorláksson fyrv. forsætis-
ráðherra hefir verið kosinn full-
trúi f bankaráð íslandsbanka í
stað Dana, er áður skipaði það
sæti. Er þannig einum íslenzkum
manni fleira íbankaráðinu en áð-
ur var, og þeir þar með orðnir
svo margir, að hægt er að skjóta
á lögmætum fundi í bánkaráðinu
í Rvík, hvenær sem þurfa
þykir. Mun það flestum gleðiefni
að umráð og stjórn bankans kom-
ist í það horf, að verða að sem
mestu í höndum íslendinga. —
Alþýðublaðið hefir verið með
glósur út af þessari vlturlegu ráð-
stöfun dönsku hluthafanna í ísl.-
banka, að velja íslending í b^nka-
ráðið og reynir með því, að leiða
athygli manna frá „ölmusagjöfun-
um“ alræmdu. Virðist þó munur-
inn nokkuð ótvíræður á því, að
íslenzkur maður taki sæti útlend-
ings í stjóru eigi þýðingaminni
fjárstofnunar í landinu en banka,
eða hitt, að íslenzkir menn þyggi
fé af útlendingum til áhrifa á
íslenzk stjórnmál, munurinn, völd-
in í hendur fslendinga eða úr
höndum þeirra.
Hátiðarljóðin 1930. Undirbún-
ingsnefnd hátíðahaldanna hefir sent
út tilkynningu um hátíðarljóðin.
Ætlast hún til að íslenzk skáld
keppi um verðlaun fyrir að yrkja
þau. Séu verðlaunin 2000 kr., 500
kr. og 300 krónur. Er þetta til-
kynt að því ’tilskildu, að Alþingi
veiti fé til verðlaunanna.
Nýr fslenzkur doktor. Uelgi
Tómasson geðveikralæknir á Kom-
mune-spítalanum í Khöfn hefir
gert merkar rannsóknir og upp-
götvanir á því sviði. Mun hann og
nú hafa varið doktorsritgerð við
Kaupmannahafnarháskóla, um þessi
efni, sem þegar hefir verið prent-
uð. Mun hann vera fimti íslenzki
læknisfræðidoktorinn. Á undan
hafa verið: Jón Gíslason frá Mó-
gilsá, um 1800, Jón Hjaltalín,
1839, Jón Finsen, 1874 og Jónas
Jónassen, 1882.
Prestskosningin á Akureyri
fór fram sunnud. 6. þ. m. Taln-
ingu atkvæða er nýlokið. flest at-
kvæði fékk séra Friðrik Rafnar á
Útskálum, 761 atkv. og er því
löglega kosinn. Séra Sveinbjörn
Högnason á Breiðabólstað fékk
397 atkv. og hinir umsækjendurn-
ir séra Sigurður Einarsson í Flat-
ey og séra Ingólfur Þorvaldsson í
Olafsfirði, annar 47 og hinn 57
atkv.
íslendingar látnir erlendis. Um
síðustu mánaðamót lézt frú Jóna
Fanöe, kona L. Fanöe afgreiðslu-
manns Eimskipafélagsins í Kaup-
mannahöfn, en dóttir Björns Krist-
jánssonar alþingismanns. Var hún
stödd í París er hún andaðist.
4. þ. m. lézt á Alland-heilsuhæli
í Austurríki Hrafnkell Einarsson,
Þorkelssonar, fyrv. skrifstofustjóra
Alþingis, 22 ára að aldri. Var hann
kominn að því að Ijúka embætt-
isprófi í hagfræði.
Leynivínsalar all-margir hafa
verið „teknir til bæna“ undanfarið í
Reykjavík. Sumir gamlir forhertir
„syndarar" og aðrir nýlega brot-
legir. Dómar hafa verið uppkveðn-
ir í undirrétti yfir nokkrum: Gesti
Guðmundssyni, 8 mánaða betrun-
arhúsvinna og 2000 kr. sekt, en
til vara ef sektin verður ekki greidd,
65 daga einfalt fangelsi, Sigurði
Berendsen, 8 mánaða betrunahús-
vinna og 2000 kr. sekt (með sömu
vararefsingu), Birni Halldórssyni,
80 daga fangelsi við venjulegt
fanga viðurværi og 2000 kr. sekt,
eða 65 daga einfalt fangelsi, ef
sektin er eigi greidd, Magnúsi
Hannessyni, 400 kr. sekt, til vara
20 daga einfalt fangelsi, ef sektin
eigi er greidd. Birni Magnússyni,
einnig 400 kr. sekt og sama vara-
refsing. — Dómur ófallinn, er síð-
ast fréttist, yfir þremur, sem teknir
voru til rannsóknar og einn játað
brotið.
Er þetta hin venjulega haust-
hreinsun í Reykjavík. — Sumt af
áfenginu hafa þeir keypt af vín-
bruggurum í borginni á 20—24
kr. lítirinn, en þeir selt aftur í
staupatali með sæmilegri þóknun!
Bruggararnir sem uppvíst hefir
orðið um hafa ekki enn fengið
sinn dóm.
Þórólfur Sigurösson frá Bald-
ursheimi tók við ritstjórn „Dags“
á Akureyri, með blaðinu sem út
kom 28. okt. s. I.
Kristján Kristjánsson söngvari
kom hingað á Esju, til þess að
vera viðstaddur jarðarför föður
síns. Dvelur hann hér nokkurn
tíms.
Stutt svar til „Jafnaðarm." bíð-
ur næsta blaðs. það sýnist ekki
þörf á því löngu. Svo áberandi er
varnarleysið. •
Árangur af fyrirlestri S. Fougn-
er-Jóhansen, síðasta sunnudag
verður getið í næsta blaði.
[Framh. frá 1. bls.]
meira. Hann á hæfileikann til að
heilla það fram. Hann er einn af
þessum fáu, sem allstaðar er á
verði til að bera hönd fyrir höf-
uð þeirra, sem fyrir aðkasti verða,
og þá hef ég engan þekt, sem
hefir gleggra auga fyrir öllu því,
sem er Ijótt og ógöfugt, alt slíkt
hatar hann af öllu hjarta. Engan
hefi ég heyrt tala fegur um ætt-
jarðarástina, drenglyndið, ástina,
gleðina og hugsjónirnar en hann,
og heldur ekki riokkurn með jafn
innfjálgri óbeit á ódrengskapnum,
dáðleysinu.slæpingshætti og nautna-
sýki sem hann. Hann hefir jafnvel
yfir að ráða grískri fegurðardýrk-
un í anda og efni og þróttmikilli
norrænni drenglund. Auðvitaö er
hann gáfumaður, en það er ekki
það, sem skapar honum mesta
vinsemdirnar. Sjálfur ber hann ekki
nema tilhlýðilega virðingu fyrir
mannvitinu, og eitt sinn hefir hann
sagt eitthvað á þessa leið: „Held-
ur vildi ég vera Sveinn Dúfa, held-
ur en Sturla í Hvammi, er sagt
var um: „Enginn frýjar þér vits, en
meira ert þú grunaður um græsku“.
Og þarna finnum við einn höfuð-
þáttinn í Iífsskoðun séra Magnús-
ar, sem er trúin á sigrandi máttþess,
sem gott er og göfugt, fórnarlund-
ina, sem alt gefur en einkis krefst.
Kennari og skólastjóri er hann
með afbrigðum góður. Hann setur
engar skólareglur, allar reglur og
öll lög eru óskrifuð og meira að
segja ótöluð í skóla séra Magnús-
ar, og þó er skólabragur svogóð-
ur, að vart yrði á betra kosið.
Hann á þennan sjatdgæfa hæfileika,
að koma að stjórn án þess að
hafa nokkur orð, og kemur það
meðfram af því, að maðurinn er
svo vinsæll, að það vill enginn
gera á móti vilja hans. En er þá
ekki bönnuð öll gleði og glaum-
ur í kennaraskólanum? Síður en
svo. Enginn elskar meira gleðina
en skólastjórinn sjálfur, þessa
saklausu gleði, sem veitir óbland-
inn unað, og sjálfur er hann einn
af þeim, sem altaf flytur sólskinið
með sér hvert sem hann fer. Hann
á altaf til þetta hlýja viðmót sem
bræðir klakann úr sérhvers manns
sefa. Það slær vopnin úr höndum
spjátrungsins, en glæðir kjark og
traust hins lítilsiglda.
Eins og áður er tekið fram, er