Skutull - 13.01.1928, Qupperneq 3
SKUTULL
3
■ÁAAAAAAAAÁÁAAAAAAAAAAAAAii
◄ Kaffibrensla Reykjavíkur. ►
M Kaffibætirinn SÓLEY «r garðar úr boatu efnum og með
nýtíaku vélum. Yaxandi notkun bana sýnir, að mjög þvorra
fordómar gegn íslenskri nýiðju, en trú manna á getu ís-
lendinga sjálfra vex.
^ Brent og malað kaffi frá Kaffibrenslu Reykjavíkur er best.
btvtyyvtvyvvyyyyttyytttttSí
5. Toll- og banngœsla.
Svohljóðandi tillaga var borin
upp og samþ. með öllum gr. atkv.
gegn 3:
„Fundurinn telur ráðstafanir
stjórnarinnar til aukinnar toll-
gaeslu og banngæslu, stefna í rótta
átt, og skorar á alþingi að veita
fé til þess, að slík gæsla verði
aukin og efid sem best.“
6. Tollar.
Svohlj. tillögur lagðar fram og
samþyktar með öllum greiddum
atkv.:
1. „Fundurinn skorar á alþingi,
að vinna að því að afnema sem
fyrst tolla af nauðsynjavörum, en
afla rikiasjóði tekna þannig:
a. Með beinum sköttum á tekjur
og eignir.
b. Með ríkisfyrirtækjum og
verslun.
c. Með háum verðtolli á óhófs-
og munaðarvörum.“
2. „Fundurinn skorar á alþingi,
að leggja minst 20 kr. útflutnings-
gjald á hvert tonn af herturn
fiskiúrgangi (úrgangsskreið), sem
flutt er óunnið út úr landinu/
7. Strandvarnir.
Svohljóðandi tillaga borin fram
og samþ. með samhlj. atkv.:
„Fundurinu skorar á alþingi, að
auka landhelgisgæsluna og gera
sum varðskipin svo úr garði, að
þau sóu jafnframt björgunarskip
og skólaskip fyrir sjómenn.
Jafnframt telur fuudurinn n&uð-
syn á, að kornið verði i veg fyrir,
að upptæk veiðarfæri komist tafar-
laust í hendur sökudólganna, eins
og nú á sór iðulega stað.“
8. Sveitasijórnarmál.
Svohlj. tillögur lagðar fram og
samþ. með öllum greiddum atkv.;
1. „Fundurinn skorar á alþingi,
að lækka aldurstakmark til kosn-
ingaróttar og kjörgengia til syeita-
og bæjarstjórna, í 21 árs aldur’“
2. „Fundurinn skorar á alþingi,
að setja lög um forkaupsrótt kaup-
staða að lóðum og mannvirkjum,
einnig um forkaupsrétt að jörðum
í aðliggjandi hreppum.“
9. Fátækramál.
Svohljóðandi tillaga borin upp
og s&mþykt með öllum greiddum
atkv.:
„Fundurinn telur að svifta beri
þá menn fjárræði, sem veittur er
,sveitastyrkur vegna óreglu, leti
eða ómensku, en annar fátækra-
styrkur megi ekki varða róttinda-
missi. Jafnframt telur fundurinn,
að vinna beri að því að gera alt
landið að einu framfærsluhóraði
og skattleggja sveitafólögin hlut-
fallslega eftir íbúatölu þeirra, til
þess að standast ko=itnaðinn.“
Fleira var ekki gert.
Fundi slitið.
Magnús ólafsson,
fundarstjóri.
Guðm. G. Kristjánsson,
fundarritari.
Góður hver genginn.
„Nú var Hans orðiim hreinn og
fínn — hann var dauður.“ G. P.
E. Kórúlf heitir misskilinn hug-
vitsmaður hór í bæuum.
Hann seldi áður recept handa
þyrstum mönnum, en var sviftur
rótti til þeirrar iðju og þeim
tekjum er hún veitti. Kætti það
alla nema sjálfan hann.
Þótti honum örvænt. um sinn
hag og tók i raunum sinum að
stæla J. B., eyðufyllir Mogga.
Birtir Vesturland það hugrauna
fóstur. Hlaut það nafnið „Vor-
draumur“. Byrjar með væmnu lofi
um Gest Pálsson, ritsnillinginn
góðkunna, sem mesta og innileg-
asta samúð hafði með olnboga-
börnum mannfólagsins, en vægði
i engu andlegum feðrum Páls
Jónssonar og hans nóta, enda vein-
uðu þeir ámátlega undan vopnum
hans, bitru og nöpi'u háðinu.
Það virðist þvi kynlegt að sjá
rit hans lofuð í Vesturlandi, en
nú .er ekki hætt við skeytum frá
Gesti — haun er dauður. —
Ihaldsandinn talar líka í „Vor-
draum“ Kórúlfs.
Þeír sem best hafa skilið Gesb
og starfa vilja í hans anda —,
framfara og mannfólagsvinirnir —
eru í augum þassa bókmentafræð-
ings „Spillinga-Gestir“ nútímans-
„Láðverskar“ þröngsýnis sálir á
dögum G. P. höfðu sama álit á
honum.
Þetta er sjaanlegt samræmi.
íhaldið er altaf eins. Ofsækir
snillingana meðan þeir lifa, en
dekrar við þá dauða.
Hugvitsmaðurinn E. Kórúlf er
„personification“ af því.
W* VERSLIÐ VIÐ KAUPFÉLAGIÐ.