Skutull - 15.04.1928, Qupperneq 1
bSKOTDLLs
Útgefandi: Verklýðssamband Vesturlands.
YI. ÍR.
Umdæmisþing.
8. þing TJíndæmiastúkunnar nr.
6 var sett í Góðtemplarahúsinu
á ísafírði, a£ U. Æ. T. Jónasi
Tómassyni, þriðjudaginn 27. mars
1928 kl. 61/, e. h. að aflokinni
guðsþjónustu í Isafjarðarkirkju, þar
sem sóra Halldór Koibeins pré-
dikaði.
Mættir voru 29 fulltrúar frá 11
stúkum.
Unglingastúkur eru alls 10 í
umdæminu með 676 meðlimum.
Fólagar í undirstúkum í um-
dæminu eru 1. febr. s 1. 758, í
fyrra 690, fjölgað um 68 á árinu.
Helstu framkvæmdir voru: Stofn-
un st. Yöku á ísaf., barnastúkna
á Hesteyri, Sæbóli og Látrum og
bygging templarahúss á Patreksf.
Kosnir á stórstúkuþing:
Gestur 0. Gestsson,
síra Guðm. Guðm. og
Björn Guðmundsson, Núpi.
Til vara:
Sigurður Jónsson skólastj,
A.uður Sigurgeirsdóttir og
Helga Tómasdóttir.
Þessar tillögur voru samþyktar:
1. „Umdæmisstúkan nr. 6 á ísa-
firði skorar á alþingi:
a.) Að lögleiða bindindisfræðslu
sem skyldunámsgrein í þeim
skólum, sem ríkið styrkir
og fela fræðslumáiastjóra eða
fræðslunefnd, í samráði við
framkvæmdanefndStórstúkunn-
ar, að hafa eftirlit með, að því
ákvæði verði hlýtt og að kensl-
an só i höndum þeirra manna,
sem til þess eru færir og alment
eru viðurkendir að vera vel-
viljaðir bindindi.
b) Að fela fræðslumálastjóra eða
fræðslunefnd að ná hagkvæm-
um kaupum á skuggamyuda-
vólum fyrir skólana og að
styrkja þá skóla, sem þær
kaupa, með helmingi verðs
þeirra.
c.) Að fela fræðslumálastjóra að
ísafjörður, 15. apríl 1928.
útvega myndir, fyrir skugga-
myndavólar, um skaðsemi á-
fengis og tóbaks, og lána skól-
unum þær ókeypis, eftir föstum
reglum.“
2. „Umdæmisstúkuþingið skorar
á framkvæmdanefnd Stórstúkunnar
að vinna að því, að hér á landi
verði tekin upp bindindisvika í
skólum og verðlauna ritgjörðir
barna um bindindismál, að dæmi
Finna.“
3. „Umdæmisstúkan felur fram-
kvæmdanefnd sinni að leita til
húsnefndar góðtemplara á ísafirði,
um ókeypis húsnæði fyrir safnið,
þar sem flestir geti notið þess.
Ennfremur að auglýsa um stofnun
safnsins og notkun og bjóða að
geyma handrit, er varða vort mál.“
4. „Umdæmisstúkan nr. 6 felur
fræðslunefnd sinni að útvega sér
upplýsingar um bækur, blöð og
tímarit á norðurlandamálunum og
ensku, er fjalla um bindindis-,
áfengis- og bannmál, og gefa þeim
stúkum í umdæminu, sem óska að
eignast slík rit, leiðbeiningar um,
hvar helst só hægt að fá þau.“
5. „Umdæmisstúkuþingið felur
framkvæmdanefnd sinni að semja
frumvarp að skipulagsskrá fyrir
bókasafn sitt og leggja það fyrir
næsta þing.“
6. „Útbreiðalustarfsemi hór í um-
dæminu verði hagað líkt og í
fyrra, sérstakur maður, einn eða
fleiri, fenginn til að boða regl-
una og efla stúkur, eftir fyrirmæl-
um framkvæmdanefndar Umdæmis-
stúkunnar nr. 6.“
7. „Umdæmisstúkan nr. 6 skorar
á Stórstúkuna að efla eftir megni
minningarsjóð Sigurðar Eiríks-
sonar.“
8. „Fundurinn skorar á fram-
kvæmdanefnd Umdæmisstúkunnar
að vinda bráðan bug að því,
að bæta úr húsnæðisvandræðum
stúkDa þeirra í umdæminu, er þess
hafa brýnustu þörf.u
9. „Umdæmisstúkan hlutist til
um það, að fyrirlestur hr. læknÍ9
Yilm. Jónssonar, er hann flutti
17. tU.
fyrir templurum á ísafirði 28. mars
1928, verði komið á prent til út-
býtingar meðal góðtemplara, ef
kostur er.“
10. „Umdæmisstúkan nr. 6 vott-
ar núverandi landsstjórn þakkir
fyrir aukið tolleftirlit og aðrar
framkvæmdir bannlögunum til efl-
ingar.u
11. Samþ. að haustfundur Um-
dæmisstúkunnar verði haldinn á
ísafirði.
Kosnirembættismenn fyrirnæsta
starfsár: #
U. Æ. T. Jónas Tómasson,
U. Kansl. sira Guðm. Guðmundss.,
U. Y. T. Rebekka Jónsdóttir,
U. G. U. T. Guðm. Jónss.frá Mosdal,
U. G. L. S. Pálmi Kristjánsson,
U. Bit. Ólafur Magnússon,
U. Gjk. Vigfús IngvarssoQ^
U. Kap. Arnfríður Ingvarsdóttir,
F. U. Æ. T. Bergþóra Árnadóttir.
(Ofanrituð mynda framkvæmda-
nefndina).
Skipaðir embættismenn:
U. Organl. Anna Ingvarsdóttir,
U. Dr. Ástríður Ebenezerdóttir,
U. V. Einar Halldórsson,
U. Utv. Helgi Guðmundsson,
U. A. B. Eyjólfur Árnason,
U. Adr. Hólmfríður Jónsdóttir,
U- Boðb. Halldór Óiafsson, ritstj.
í sambandi við þingið var haldið
fræðslukvöld á ísafirði miðviku-
daginn 28. mars kl. 8. Hóldu þeir
þar fyrirlestra Björn Guðmunds-
son, kennari á Núpi, um bind-
indisfræðslu í skólum, hr. hóraðs-
læknir Vilm. Jónsson, um bannlög
og bindindi og Valdimar össurar-
son, kennari -á Núpi, um alþýðu-
fræðslu.
Var að fyrirlestrunum gerður
hinn besti rómur.
Þinginu var slitið hinn 29. mars
kl. 5.10 e. h. Um kvöldið hóldu
templarar á ísafirði samsæti fyrir
aðkomna fulltrúa. Fór það að öllu
leyti prýðilega fram.