Skutull - 15.04.1928, Qupperneq 3
SKUTULL
S
f
Utsvflr.
Skrá yfir átsvör á ísafirði er til sýnis á skrifstofu bæjarins,
16. til 29. aprílmán. þ. á., að báðum dögum meðtöldum.
Kærur aendist formanni niðurjöfnunarnefndar,. meðan skráin
liggur frammi.
Ólafar Gnnnlangsson,
faðir minn, andaðist 13. þ. m.
k heimili fóstursonar síns, Naust-
vik í Strandasýslu, nær þvi átt-
ræður að aldri.
Hann var hinn mesti atorku-
og iðjumaður til hvers sem hann
gekk, og um langt skeið einn
meðal bestu bænda i Strandasýslu.
Bjó síðast á Reykjarfirði.
Hór er því lokið langri og starf-
samri æfi, er hefir sína sögu að
geyma, þótt ekki verði hér skráð.
Mun eg jafnan minnast hans sem
ágæts föður, er mér kemur ávalt
til hugar, þegar eg heyri góðs
manns getið.
Halldór Ólafsson.
styrktarsjóðsreikninganna: Finnur
JónsBon og Jón G. Maríasson.
Samþykt tillaga frá Yiim. Jóns-
syni, um að sameina lögregluþjóns-
starfið og innheimtu bæjargjald-
anna; var oddvita falið að auglýsa
starfið til umsóknar fyrir 20. þ. m.
Frá. alþingi.
Alþingi hefir nú afgreitt sem
lög frumvarp um að safna atvinuu-
leysisskýrslum, sem öllum verka-
lýð eru mjög nauðsynlegar, en
íhaldinu þyrnir í augum.
Þá er frumvarp Erlings og
Ingvars, um síldareinkaaölu, einnig
orðið að lögurn, lxtið breytt.
Frumvarp Haraldar Guðmunds-
sonar, um brejrtingu á lögum um
utankjörstaðarkoaningar, er líka
orðið að lögum. Það á að koma í
veg fyrir að utankjörstaðaratkvæði
verði föÍRuð, eins og íhaldið hefir
gert undanfarið.
Frumvarp xjm breytingar á Lög-
um um Landsbanka íslands er
koruið til þriðju umræðu í efri
deiid og nær sennilega fram að
ganga. Stærsta breytingín er, að
ríkið lætur Landsbankanum stuðn-
ing sinn í té, með ábyrgð, sem
íhaldið tók áður af með lögum.
Yantrauststillögu á stjórnina, frá
ihaldinu, út af því að framkvaema
ekki lögin um að gera alla starfs-
menn á varðskipunum að föstum
embættismönnum, var vísað frá
með rökstuddri dagskrá frá Sveini
í Firði.
Þingi verður sennilega slitið 16.
þ. m.
Óvinir Bakkusar.
Eftirfarandi skýrsla sýnir fjölda
templara í ýmsum löndum og öll-
um álfum jarðarinnar, 31. janúar
1927.
I. Evrópa,
1. Svíþjóð . . 212 380
2. Noregur. . 84230
3. England . 78 661
4. ÞýakaJand 47 562
6. Skotland . 36404
6. ísland . . . 9174
7. Danmörk . 7 219
8. Sviss. . . . 6868
9. Önnur lönd 19 674 502 172
II. Bandarikin . . 15511
HI. Canada .... 6 348
IV. Afríka
V. Astralía. . . .
VI. Aaía ......
Samtals 537 889
I stúkum,sem standa beint
undir Hást. (og í U. S. R.) 1 479
Alls 539368
Skýrsla þessi nær jafnt yfir
undirstúkur sem unglingastúkur,
en ekki sýnir hún þó fyllilega
allan fjölda templara í heímin-
um, sökum þess að skýrslusöfnun
hefir víða verið ábótavant, þar á
m^ðal má nefna ísland, og auð-
vitað hafa tölurnar breyst á síðast-
liðnu ári.
Mislukkaðar atviunubætur.
Bæjarfógetinn hór hefir nýlega
kveðið upp dóma í meiðyrða- og
skaðabótamálum þeim,sem Hannes
Halldórsson og Jón Grímsson höfð-
uðu á Finn Jónsson, vegna'um-
mæla í fréttaskeyti.
Skaðabótakröfur þeirra kumpána,
10 þúsund til hvors, voru að engu
hafðar. En í máli Hannesar var
Finnur dæmdur í 60 kr. sekt og
60 kr. málskostnað, og í máli Jóns
Grímssonar 120 kr. í sekt og 70
kr. í málskostnað.
Páll Jónsson lögfræðingur sótti
bæði málin og fékk 20 krónur
sekt hjá dómaranum, í öðru mál-
inu, fyrir ósæmilegan rithátt.
Vcstfirsku bátarnir
eru nú allir komnir að sunnan,
nema einn. Hefir þeim vel hepn-
ast vertíðín. Má afii þeírra, yfir-
leitt, heita sæmilegur, frá 130—
150 þúsund pund á bát; er það
að vísu talsvert minna en í fyrra,
enda ekki jafn dýru verði keyptur
og á undanförnum vertíðum, því
að þessu sínni hefir enginn maður
týnst af vestfirsku skipi, né þau
orðið fyrir nokkru öðru tjóni, var
tíð þó ill og stormasöm fyrrihluta
vertíðarinnar.
Hrefnuveiði.
Þorlékur Guðmundsson frá Saur-
um kom hingað síðastl. laugar-
dag með hrefnu, er hann skaut
úti fyrir Arnarnesinu. Er það fyrsta
hrefnan, sem hór hefir veiðst á
þessu vori.
VERSLIÐ VIF) KAUPFÉLAGIÐ.