Skutull - 06.06.1928, Page 3
SKUTULL
3
Askorun.
Hermeð er skorað á alla þá, eem hafa lofað fjárframlagi til
Samvinnufélags Isfirðinga, að gefa sig fram við Ingólf Jónsson,
bæjargjaldkera, og greiða honum tillögin hið allra fyrsta.
Áríðandi er að menn verði skjótt við þessari áskorun, svo
skipin geti komið á þessu ári.
Stjórnin.
Húsmæðraskólinn á ísafirði
tekur til starfa 1. október n. k. Námskeiðin verða tvö, fjórir
mánuðir hvort.
Námsgreinar: Matreiðsla, þvottur, hreingerning herbergja,
næringarefnafræði, heilsufræði, útsaumur og baldering.
Heimavist er í skólanum. Inntökugjald 20 kr. Mánaðargjald
75 kr., er borgist fyriríram.
Hver nemandi hafi með sér rúmfatnað og allan klæðnað. Læknis-
vottorð verður hver nemandi að sýna við inntöku í skólann. #
Umsóknir séu komnar fyrir 1. okt. og stilaðar til Skólanefndar
Húsmæðraskólans, eða til undirritaðrar forstöðukonu, sem gefur allar
nánari upplýsingar.
ísafirði, 1. júní 1928.
Gyða Maríasdóttir.
sé vandlætari þesði auk þess þjóð-
kirkjuprestur, þá veldur það bein-
línis hneyksli.
Þess vegna skyldu prestarnir
vera á verði og gæta þess, að
styr sá, er Mammons dýrkunin
veldur, byrji ekki með því að
kollvarpa sjálfri klerkastóttinni.
Kristneshælið.
í fyrra sumar reistu Norðlend-
ingar berklahæli að Kristnesi við
Eyjafjörð. Tók það til starfa síðast-
liðið haust. Hæli þetta er hið
vandaðasta í alla staði og hafa.
Norðlendingar unnið kappsamlega
að fjársöfnup til byggingar þess.
Mönnum ítil gamans skal hór
birt skrá yfir helstu tillög og gjafir
til hælisins. Skrá þessi er tekin
úr Fylgiblaði Dags:
YFIRLIT:
Akureyri.................Kr. 68 692.28
Siglufjörður...............— 6 000.00
Eyjafjarðarsýsla...........— 60 288.10
Suður-Þingeyjarsýsla ... — 13 203.06
Norður-Þingeyjarsýsla . . — 7 163.00
Skagafjarðarsýsla..........— 7 106.00
Húnavatnssýsla.............— 297.00
Reykjavfk..................— 6 756.25
Berklavarnarsjóður .... — 68 992.1,4
Berklavarnarfélag íslands — 5 000.00
Eimskipafélag íslands . . — 10 000.00
Christian konungur X. og
drotning................— 1180.00
Erlendar gjafir............— 622.64
Ágóði af skemtun 17/„ ’25 — 2 593.86
Ágóði af seldum minn-
ingarspjöldum ár 1926-27 — 2 000.00
Rikissjóður íslands .... — 256 000.00
Vextir.....................— 3161.21
Samtals kr. 516 955.54
Með fjárframlögum þessum eru
talin tillög bæja- og sýslusjóða,
en þau voru þessi: Bæjarsjóðs
Akureyrar 10000 kr., Siglufjarðar
6000 kr., sýslusjóða Suður-Þing-
eyjarsýslu og Skagafjarðarsýslu,
6000 kr. úr hvorum, og 2600 kr.
úr sýslusjóði Norður-Þingeyjar-
sýslu.
JLfla.fréttir.
Undanfarna daga hafa þessi skip
komið inn af fiskveiðum, eftir
6 — 8 daga legur, með eftirtaldan
afla:
Fróði 64000 pd.
Eljan 61000 —
Ásta 49 000 _
Sjöfn 46 000 —
Persy 44000 —
Sæfari 41000 —
Grylfi 30000 -
Snarfari og Kári (áður eign Sam.
isl. versl.) fengu ca. 30000 pd. hvor.
Freyja og Kári, Gísla Júlíus-
sonar, fengu líka góðan afla, en
hve mikinn, er blaðinu ekki
kunnugt um.
Skutull hefir ekki getað aflað
sór áreiðanlegra frétta um afla
þessara skipa á vertíðinni i vor,
en þeim mun öllum hafa gengið
prýðilega. Hefir þar tvent hjálpast
að, óvenju góð tið og ötulleiki
sjómannanna. Þeir hafa, að sögn,
sjaldan lagt á sig meiri vökur og
vinnu en þetta vor, á einum bátn-
um var t. d. sofið 8 kl.st. í rúm-
lega 4 sólarhringa Óefað þætti
sumum ihaldslandkröbbum það
full erfitt. —
Norsku línuveiðararnir afla vel,
og handfæraskipin, sem héðan
ganga, fiska í góðu meðallagi.
,,Súlan“
heitir flugvól, sem nýstofnað
flugfólag í Reykjavík, hefir tekið
á leigu. Kom hún hingað frá
Rvik í fyrsta sinn á mánudaginn
var, laust fyrir hádegi. Hafði
flugið tekið 2V9 kl.st. Héðan hélt
Súlan til Siglufjarðar og Akur-
eyrar. Farartæki þetta er nýlunda
hór um alóðir, og vonaodi að vel
iW' VERSLIÐ VIÐ KAUPFÉLAGIÐ.