Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 25.08.1928, Qupperneq 1

Skutull - 25.08.1928, Qupperneq 1
sSKUTULl Útgefandi: Verklýössamband Vesturlands. VI. ÍR. Hýjar píningasögur frá Gyðingalandi. Árin 1927 og 1928 haEa ofsóknir gegn samtökum verkalýðsins í Gyðingalandi stöðugt farið vax- andi. Verkamönnum, sem lengi hafa verið búsettir í landinu, er neitað um ríkisborgararétt og gerðir átlægir. Aðrir, sem grunur leikur á að sóu í féiögum kommún- ista, eða verkiýðssamtökum, eru teknir höndum, haldið lengi í fangelsi án réttarprófs, þá dæmdir i langa fangelsisvist, oft barðir svipum og síðan fluttir úr landi. Þráfaldlega eru þessir menn af- hentir auðvaldsstjórnunum í Pól- landi eða Rúpieníu, og dæmdir þar á ný til ;langrar þrælkunar- vinnu í fangelsum. Fundum verka- lýðsins og hópgöngum er stöðugt sundrað af bresku lögregluliði. Ihaldsstjórnin í Gj'ðingalandi og breska setuliðið halda uppi ógnar- stjórn þessari í félagi. Til þess að nota landið helga sem miðstöð hervaldsins breska, er hefir ráð yfir höfnunum og járnbrautunum, svo það geti haldið við og aukið yfirráð sín yfir Iraq, Arabíu, Transjordaníu, Persíu og öðrum löndum þar i grend. Sem dæmi um ofsóknir þessar má nefna aðfarirnar gegn eldspítna- verkamönnum. Þeir höfðu gert verkfall, til mótmæla gegn hinum ómannúðlegu kjörum sínum. Verk- fallið byrjaði i febrúar 1927, en 24. júní reyndu verksmiðjueigend- urnir að brjóta verkfallsmenn á bak aftur, með verkfallsbrjótum. Verkfallsverðir skoruðu á verk- fallsbrjótana að gefa ekki kost á sér til slíkra starfa. Þá kom ríð- andi lögreglulið þeysandi og réðist á þá, ásamt áhorfendunum. Verka- lýðurinn var barinn af mikilli grimd, bæði menn og konur. Fjöldi var troðinn undir hófum hestanna, og tuttugu og tveir menn, hér af 13 konur, voru teknir höndum ísafjörður, 25. ágúst 1928. og fluttir flakandi í sárum til fangelsisins í Akra. Nóttina eftir réðist lögreglan inn á heimili verk- fallsmanna og tók höndum 39 manns, bæði karla og konur. Margir voru teknir í rúmum sín- um og fengu ekki að klæða sig. Allir voru þeir fluttir í hlekkjum til fangelsisins í Akra. Atburðir þessir vöktu feikna andúð hver- vetna, en bre9ku yfirvöldin létu sér ekkert segjast. Félagið „Eáuða hjálpin“ hefir einkum orðið fyrir barðinu á yfir- völdunum. Blað þess hefir verið bannað, ritstjórinn tekinn höndum, dæmdur í tveggja mánaða fangelsi og síðan fluttur úr landi, þó hann hafi verið þar síðan hann var barn. Hann var fluttur í hlekkjum til járnbrautarstöðvanna og fylgdi honum mikill mannfjöldi í mót- mælaskyni. Lögreglan sundraði hópnum og tók marga höndum. Þingmaðurinn Saklatvala hefir mótmælt þessu í breska Parlament- inu, ásamt fleiri þingmönnum verkamanna. Hinn 10. febrúar var Zakarias Koish, verkamaður tekinn hönd- um og kærður fyrir að vera í kommúnistaflokknum. Hann var settur í fangelsi, fékk 10 vandar- högg og auk þess gerður útlægur úr landinu. Svipuhöggin voru síðar feld burtu fyrir öflug mótmæli verkalýðsins. Tveir aðrir pólitískir fangar, Ben Simon og Kotik að nafni, voru dæmdir til að dvelja í dimmum og rökum fangaklefum, af því að þeir neituðu að krjúpa á kné og hneigja sig íyrir yfir- fangavörðunum. Koish var fluttur úr landi, án rannsóknar á máli hans, þann 26. júní. Níu karlar og konur hafa ekki alls fyrir löngu verið dæmd til fangavistar, sum fyrir að vera í kommúnistafélögum, önnur fyrir að taka þátt í skrúðgöngu 1. maí og einn maður fyrir það eitt, að hafa í fórum sinum blaðagrein, er átti að sendast til útlanda. 82. tbl. Hinn 29. maí s.l. voru fangar þessir settir í hlekki og barðir fyrir að mótmæla því, að þeir fengu ekki að vera undir beru lofti 15 mínútur á dag, eins og fangaregiurnar segja. Þetta var i ríkiefangelsinu í Jerúsalem. Til að mótmæla þessari grimmúðugu aðferð neituðu fangarnir, ásamt mörgum fleiri föngum, að neyta matar. Þegar þeir höfðu soltið í 3 daga voru' þeir teknir og barðir með svipum. Sumir voru svo hart leiknir, að þeir gátu ekki gíngið og voru bornir á börurn iím í fangelsið aftur. Alþýðu manna í Gyðingalandi gramdist mjögþetta atferli stjórnar- innar. Mótmælafundir voru haldnir um alt landið. Víða var þeim sundrað af lögreglunni og margir menn teknir höndum, en múgur- inn var svo æstur, að hann hreif fangana aftur úr höndum lögregl- unnar. Breski verkamannaflokkur- inn, Verklýðssamband Gyðinga o. fl. hafa opinberlega mótmælt þessum aðförum ihaldsins. Ógnarstjórnin ríkir þó enn þá í Gyðingalandi og alþýðan má sin lítils gegn sameinuðu ihaldi Breta Og Gyðinga. Þetta er sama sagan upp aftur, og gerðist í Gyðingalandi fyrir nær tvö þúsund árum, íhaldið i landiuu er sama sinnis og gamla ihaldið var, en Bretar hafa nú hlutverk Hómverja. Alþýðumenn berjast gegn andlegri og efnalegri áþján íhaldsins. Þeir eru eltir af íhaldinu, barðir og hrjáðir. Þeir fórna frelsi sínu og lífi fyrir hugsjónir bræðralags og mannrétt- inda. Krossfestir eru þeir að vísu ekki, en jörðin er þó vökvuð blóði þeirra. Þeir hafa viljað vekja alþýðuna til samtaka. Launin eru þessi, en allir deyja þeir með þá von í brjósti, að alþýðan sigri að lokum.

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.