Skutull

Årgang

Skutull - 10.02.1940, Side 2

Skutull - 10.02.1940, Side 2
16 S K tr T U L L Þorrasina. Vesalings grasið í kiildamim kell, þó komi það grœnt undan snjónum. A þorranum breglisl hver safi í svell og siim í valllendismónnm. Eins nístir ofí kuldinn manns hjarla og hug á harðlyndum mannlífsins þorra, hann svellar um nœlur og sveigir á bug liverja sumarþrá lífsdrauma vorra. En líkfölvi siminnar Ifjsli inn á svið, þar lífsrótin óx bak við náinn. — Ef væri ekki eilífðin mark vort og mið, þá mœtliun vér öfunda slráin. OrL 10. febrúar lO'il). G. Geirdal. myndin áreiðanlega fróðleikslöngun þeirra manna, sem þrá það að þekkja ókunn lönd, annara þjóða háttu og menningo. — Betri „heimskynnii* fyrir alþýðu manna er ekki til en kvikmyndirnar. Erlend tungumál leggjum vér íslendingar allra þjóða mest stund á að læra. Vér flnnum til smæð- arinnar, og viljum ekki einangrast. Menn gera sér varla ljóst, hvern þátt bíóin eiga í því, að efla mála- kunnáttu unga íólksins, og væri þó áreiðanlega hægt að nota kvik- myndirnar betur í þjónustu beinn- ar tungumálakennslu. En um þýð- ingu þess fyrir fámenna þjóð, að sem flestir einstaklingar hennar geti kynnzt bókmenntum annara þjóða, mun enginn efast. Bíógesturinn situr að vísu á sama stað, en samt er hann að ferðast. Og erlend tungumál nem- ur hann með augum og eyrum jafnframt því, sem honum berast margvísleg áhrif, er vekja áhuga hans á hinum fjarskyldustu svið- um mannlegs lífs. Um þetta hvorugt er hægt að deila. En ætli bíógestuiinn verði nokk- urra fleiri gæða aðnjótandi? Talið er, að sá, sem æflr eyra sitt við tónlist og söng, verði að öðru jöfnu hæfari til að skyoja almennt hið fagra og góða, sem mætir oss, þótt í öðrum myndum sé. Með öðrum orðum: Tónlist er talin hafa almennt menningarlegt gildi. Á seinustu árum hafa kvik- myndafélögin sífellt geit meira og meira að því að tryggja sér beztu söngkrafta heimsins. Bíógesturinn á þess því nú kost svo að segja daglega að kynnast því, sem af ber í tónlist veraldarinnar að fornu og nýju, og hvergi nema í kvikmynd- unum á almenningur þess kost að hlýða á mestu söngsnillinga heimsins. fá má enn benda á, að svo íremi, að það sé rétt, að leiklist hafl menningarlegt gildi, þá hljó'.i kvikmyndin líka að færa mönnum einhver og allveruleg verðmæti á því sviði. Leikarar heimsins, sem hæst ber, eru flestir í þjónustu kvik- myndalistarinnar. Hinsvegar á leiklistin hér á landi við mjög frumstæð skilyrði að búa, enda hlýtur svo að verða lengst- um, og eru bíóin því einasti stað- urinn, þar sem almenningur á þess kost að kynnast töframætti stór- brotinnar leiklistar. Og að síðustu: Enginn sá, sem nokkurs metur bókmenntaleg verð- mæti, og það gera flestir íslend- ingar, andlega hraustir og með fullu viti, getur neitað kvikmynd- unum um, að þær hafa í því efni upp á samskonar verðmæti að bjóða og bækurnar. Menn verða að vísu að hafa vit á að hafna og velja, þegar um kvikmyndir er að íæða, eins og bækur. En hvenær er þess að vænta, að menn þurfl ekki á að halda heilbrigðri dóm- greind og kunnáttu i að velja og hafna? Og þó að mikið sé til af kvikmyndaruslinu eins og bóka- ruslinu, þá er hitt jafn satt, að meginafrek heimsbókmenntanna eru líka sýnd á veggtjaldi kvik- myndahúsanna. Sé t. d. á það litið, hvað af ís- lenzkum bókmenntum hafi sézt á bíó, þá sjáum vér strax, að sorinn hefir ekki verið til þess valinn, heldur fyllilega verið valið af betri endanum. Okkur dettur t. d. strax í hug S3ga Borgarættarinnar eftir Gunnar Gunnarsson og frægasta íslenzka leikritið, sem enn hefir verið skrifað: Fjalla-Eyvindur, eftir Jóhann Sigurjónsson. Hér hafa og á undanförnum árum verið sýnd á bíó fjöldamörg stórfræg bók- menntaleg listaverk. Mát. d. benda á, að um það leyti, sem þetta er skrifað, stendur til, að hér verði sýnd tvö heimsfræg skáldverk, sem mikill bókmenntalegur fengur þótti að, er þau komu út í íslenzkum búningi s.). haust. Þetta eru: Maria Antoinetta og Borgarvirki. Þá mun sumum ekki Þykja minna um vert að fá að fylgjast með ferðum Livingstone’s og Stanleys um frumskóga og eyðimerkur Afriku, en sú kvikmynd mun einnig verða sýnd hér innan skamms. Þannig er það ávalt. Með stutt- um millibilum tekst bíóinu að ná í afbragðsmyndir, sem eiga erindi til allra, jafnt eldri sem yngri. En yfirleitt er það svo, að eldra fólkið fer ekki á bíó. Það liflr í þeirri trú, að bíófeiðir séu helber hégómi, sem heyri til yflrsjóna og víxlspora unga fóiksins, og sé undir virðingu þess að leggja eig niður við eða láta sig henda. En með þessaii afstöðu útilokar það sig frá margvislegum menningar- legum veiðmætum, sem það kapp- kostar þó að tileinka sér af bókum og með hverju móti öðru, sem kostur er á. Sumir telja, að það sé svo dýrt að fara í bíó, að þess vegna sé það ekki öðrum fært en hinurn efhaðri borgurum. Að mestu leyfi er þetta þó á misskilningi byggt. Þeir bíógestir eru til, sem fara á hverja nýja mynd, sem sýnd er. Þetta er vitanlega aðallega fólk, sem setur kvikmyndirnar ofar öllum öðrum skemmtunum og heör auk þess sæmileg auraráð. Slík bíósókn þarf þó ekki að kosta nema um 70 krónur á ári, eða sízt meira en það kostar að láta raka sig árlangt á rakarastofu. En aðrir „láta grön sía“, og velja úr aðeins beztu myndirnar, sem völ er á. Segjum, að slíkur maður færi á bíó einu sinni í mánuði. Það mundi kosta hann á ári 24 krónur, ef hann keypti dýrustu sæti, en þyrfti ekki að fara fram úr 18 krónum. Til samanburðar má geta þess, að bókin María Ant.oinetta kostar ein 25 krónur. Allir sæmilegir menn fyrirverða sig fyrir að líta aldrei í bók — og blindur er bóklaus maður. í raun réttri er það jafn óhyggi- legt og ómennilegt, að átiloka sig frá þeim menningaráhrifum, sem kvikmyndahásin geta veitt. Að reka kvikmyndahás og þreifa á því, að beztu myndirnar séu jafnvel sízt söttar, af þvi að eldra og þroskaðra fólkið lifir i þeim fordómum að fara helzt aldrei á bíó, er jafn ömurlegt, eins og þegar bökaverðir verða að horfa upp á beztu bækurnar ósnertar i hyllunum, en ruslið rifið át af óþroskuðum lesendum. Slikt á- stand ýtir líka undir það, að vanda litt til myndavals og bóka. Um langan aldur hafa bök- menntafræðingar ritað um gæði bóka og gildi, dæmt þær og metið fyrir almenning. Þetta hefir verið bóklesendum ömetanleg leiðbein- ing, og það hefir jafnframt stuðl- að að því að bæta bókmennta- smekkinn hjá almenningi. Eins þyrfti að ritdæma kvikmynd- irnar, en hér á Iandi má slfkt heita óþekkt, nema hvað viku- blaðið Fálkinn hefir stundum sýnt lit á þessu að því er snert- ir rnyndir, sem sýna átti i Iteykjavík. Þó að um flest mogi rifost, þá hljóta samt flestir að fallast á, að kvikmyndin sé komin býsna langt upp að hliðinni á bókinni sem menningartæki. Hán er dá- samlegt fræðslutæki, og hán býður jafnt yngri sem eldri, æðri sem lægri, að komast í kynni við fagrar listir, sönglist, hljóm- list og leiklist o. s. frv. Það getur þvi varla liðið á löngU, áður en það verður litið á það sem sljóft fólk og viljalaust til fróðleiksöflunar og menntunar, sem ekki leggur leiðir sínar í kvikmyndahásÍD, jafnframt því, sem bergt er af lindum bók- rnennta og lista á annan hátt, svo sem mannkynið hefir gert um tugþásundir ára og mun ávallt gera, meðan lögð er stund á áð greina milli góðs og ills — fegurðar og fáránleika, anda og efnis, eða m. ö. o. meðan heims- menningin hefir ekki liðið undir lok. Frumsamdar skáldsögur. Ljósið í kotinu. Þó að minnst hafi verið áður á þessa bók hér í blaðinu, þykir rétt að geta hennar hér fyrstrar, þar sem um er að ræða ísfiizkan höf» und og bókin gefin hér út. Vestfirðingar hafa þegar lagt alldrjúgan skerf til íslenzks sagna- skáldskapar. Jón Thoroddsen og Gestur Pálsson voru báðir Vest- firðingar — og frá síðustu árum má minna á Jakob Thórarensen, sem um verður getið hér á eftir. Nú er kominn nýr maður fram á sjónarsviðið, ísflrðingur, sem lýsir vestflrzkum kaupstað, vest- firzku fólki og hefii vestfiizkt tungu- tak að grundvelli fyrir máli sínu og stíl. Hvers má af honum vænta? Það er enginn vandi að benda á galla á Ljósinu í kotinu, enda var höfundurinn kornungur, þegar hann skrifaði söguna. En hitt er augljóst þeim, sem sem nokkur skil kunna á skáldskap, að þarna er á feiðinni maður, sem sér og heyrir óvenju glögglega, það sem

x

Skutull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.