Skutull

Volume

Skutull - 30.05.1942, Page 1

Skutull - 30.05.1942, Page 1
s KUTULL ntgefandi: Alþýðusamband Vestfirðingafjórðungs. Prentstofan tsrún. Dagatql lækkað verð — og Handbók kanpsýslumanna Ritstjóri og ábyrgðarmaður: GUÐMUNDUR GÍSLASON HAGALÍN. fæst i XX. ár. ísafjörður, 30. nxai 1942. ‘22. tbl. Bókhlððunni. Hvers vegiia er þetta mál lekid upp nú og hvers getur alþýðan vænzl al' lramgangi þess ? Þessar spurningar eru nú bornar upp at' öllum þorra manna, og er nauðsjmlegt, að menn geri sér sem gleggsta grein fyrir því, hvernig þeim beri að svara. Alþýðuílokkurinn var stofn- aður af alþýðunni við sjávar- síðuna til þess að bera fram á þingi og í bæjar- og sveita- stjórnum réttindamál hinna vinnandi stétta. Flokkurinn heíir aldrei haft á Alþingi meirihlutaaðstöðu. Hann hefir alltaf orðið að vinna að nauð- synja- og réttlætismálum fólks- ins í sambandi við aðra ílokka — og þá oftast Framsóknar- llokkinn. Þannig hefir Alþýðu- tlokkurinn fengið fram togara- vökulögin, lög um verkamanna- bústaði, mikilvægar umbætur á framfærslulöggjöfinni, rýmk- un kosningarréttarins, trýgg- ingarlöggjöfina o. ft., o. 11. Kn um eitt mál heíir hann orðið að hal'a samvinnu við Sjálf- stæðisflokkinn, og |>að mál er breytingar á kjördæmaskipun- inui í laUdinu. Þar hefir Fram- sóknarflokkurinn jaf'nan snúizt öfugur við umbólum. Og nú var svo komið á Alþingi, að slerk samvinna var hafin milli Framsóknar og sjálfstæðjs- manna um að sitja sem l'astast á rétli launastéttanna og hlut- armanna, en veita þeim, sem hal'a sérréttindaaðstöðu í Iíjóð- félaginu, sem atlra mest l'relsi lil að neyta þessarar aðslöðu sér til auðgunar. Þegar svona var konxið, var það auðsætt, að Alþýðutlokk- urinn gfeti ekki látið hjá líða að laka kjördæmamálið upp á nýjan leik. Einmitt í krafti r a nglá tr ar kj ördæm a sk i p unar sá l'ramsóknarflokkurinn sér fært að þverbrjóta lög á fauna- stéttum og hlutarmönnum. Og þarna var líka tækifærið lil að rjúla hina nánu samvinnu hinna íhaldssömu flokka, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn með sína mörgu kjósendur við sjávar- síðuna á í þessu máli samleið með flokki alþýðunnar. Og nú er samvinnan milli Framsókn- ar og Sjálfstæðisflokksins rofin í bili. En livaða gagn getur svo al- þýðan vænt sér al stjórnar- skrárbreytingunni ? Við hana jafnast atkvæðis- réttur manna í landinu, og svo framariega sem alþýðan sjálf viil ná tökum á þingi og stjórn, þá veitist henni þess kostur. Vegna samstarfsins viðFram- sóknarflokkinn hefir Alþýðu- flokkurinn hliðrað til fyrir Framsóknarmönnum við kosn- ingar og þá einkum látið hjá líða að taka upp harðvítuga sókn í sveitum landsins. En framvegis verður Alþýðuflokk- urinn að leggja áherzlu á það, að fá öll sín atkvæði, hvar sem þau eru á landinu og vinna engu síður að útbreiðsiu stefnu sinnar í sveitum en í bæjum. Hann á sitt hlutverk að vinna meðal bændanna, engu síður en meðal launþega og hluta- manna við sjóinn. Og l. d. á Norðurlöndum var svo komið, að fjöldi af bændunum kaus frambjóðendur Alþýðuttokk- anna. Þetta mun verða eins hér, þegar skörulegur málflutn- ingur verður tekinn upp í sveil- unum al' hendi Alþýðuflokks- ins. Nú á hann að starfa bein- línis með það fyrir augum að ná sem l'yrst því takmarki, að verða meirihluta-flokkur á Al- þingi, tlokkur, sem ræður þar skipán málanna fyrir hið vinn- andi fótk í sveit og við sjó. En aðstöðu til þessa gat liann ekki fengið nerna með nýrri breýtingu á stjórnar- skránni. Húsmæðraskólinn. Hinu síðara fjögurra mánaða námsskeiði húsmæðraskólans lýkur í dag. Hafa próf staðið yfir undanfarna daga og sýning á handavinnu námsmeyja, sem voru 15) að Jxessu sinni. Upp úr mánaðamótunum verður hálfsmánaðar mat- reiðslunámsskeið f'yrir konur, og síðan ánnað jafnlangt fyrir matsveina. Byggingar í bænum. Eins og áður liefir verið frá skýrt, er hafin bygging verka- mannabústaðanna — og er þar um að ræða 12 íbúðir, enjafn- vel ráðgert að bæta 4 við þeg- ar í lxausl. l>á hefir Ingimund- ur Ögmundsson reisl tveggja íbúða hús við Hlíðarveg, þó að það sé raunar ekki ennþá J'ullgert. Ennlremur er ýmist hafin eða ákveðin í sumar, ef' efni ogVinnukraftur leyl'a, bygg- ing fjölmargra annara íbúðar- lnisa. Við Urðarveg ofanverðan byggja lítil liús Veturliði Vet- urliðason og h. f. Iljörgvin. Við Eyrargötu byggja Indriði Jóns- son og Símon Helgason 3ja íbúða hús, Indriði Guðjónsson 2ja og Daníel og Óli Sigmunds- synir 2ja. Á horni Hlfðarvegs og Eyrargötu byggja Ólafur Halldórsson og Halldór Ólafs- son 2ja íbúða hús, en hinurn megin á móturn sömu gatna Anton Ólafsson og þrír menn aðrir fjögurra íbúða hús. Við Hlíðarveg byggir Gísli Þor- bei'gsson hús með tveimur íbúð- um, Óli Pétursson hús með einni íbúð og að líkindum Heliiel Friðriksson einnig ein- býlishús einhvers slaðar þarna upp frá. Á horni Sólgötu og Fjarðastrætis er Guðmundur Halldórsson og fleiri að byggja, fjögurra íbúða hús.og Marzelíus Bernharðsson nnin byggja tveggja íbúða hús við Austur- völl. Loks er SaÍÖrne Björns- dóttir flutt í nýtt og ekki l'ult- gerl hús við SeljaUmdsveg. Rafveitan. Á seinasta hæjarstjórnar- fundi var Hannibat Valdimars- syni skólastjóra falin fram- kvæmdastjórn við hinar nýju vi rkj u narfr a rnk væm di r, ,1 ón i Guðmundssyni falin verkstjórn, en Guðm. G. Kristjánssyni falið að mæla l'yrir vatnspípxinni. A Hvítasunnudag — þegar konxið var l'asl að miðnætti, kviknaði í [xeim enda rafstöðvarhússins að Fossurn, sein í á að koma hin nýja vélasamstæða. Bruna- fiðið var kvatt á vettvang, og tóksl að slökkva án þess aö tjón yrði á leiðslunx eða vél- um. Ekki hefir orðið upplýst, hver verið hafi upptök eldsins. Bæjarstjórn hefir kosið í byggingarnefml Juismæðraskólans hér í bænum Hannibal Valdimarsson, Jón- ínu Guðmundsdóttur kennslu- konu og Ragnar Bárðarson byggingarmeistara. Fimmtugsafmæli átti á hvítasunnudag Eggerl Samúelsson, starfsmaður við. timburvei'zlun Ivaupfélags ís- firðinga. Eggert er afar-vinsæll maður, og heimsóttu hann margir vinir hans á fimmtugs- afmælinu. Bárust honunx mörg skeyti og margar gjafir. Sama dag varð fimmtugur Olat'ur Hjartar, vélsmiður á Þingeyri í Dýralirði. Hann hefir í fjölda mörg ár starlað við vélsmiðju Guðmxindar Sigurðs- sonar og verið jiar stéypumað- ur. Er Olafur lelinn hinn mesti kunnáltiunaður við verk sitt. Ólafur er gleðimaður, skemml- inn og gamansamur, og Ixefir sjállsagl verið glatl á lijalla og gestkvæml hjá lionum fimm- tugum. Kj öskrá. Þar eð kjördagur hefir verið ákveðinn 5. júlí n, k., framlengjast hér með frestir þeir, er getið var um í auglýsingu minni dags. 25. apríl s. 1., þannig, að kjörskrá til alþingiskosninga í ísatjarð- arkaupstað liggur frammi á bæjarskrifstofunni við Austurveg hér í bæ til 13. júní n. k., að þeim degi meðtöldum. Kærur út af kjörskránni skulu vera komnar til bæjarstjóra fyrir kl. 12 á miðnætti hinri 13. júní næstkomandi. Bæjarstjórinn á ísafirði, 30. nxaí 1942. Þorsteinn Sveinsson.

x

Skutull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.