Skutull - 24.06.1944, Blaðsíða 4
88
SKUTULL
Notiö tækiræriö.
Geí' afslátt á öllum höttum, sem eftir eru. — Verð
fram yfir mánaðamót. — Tek á móti breytingum, meðan
ég stend við.
Helga Vilhjálms.
Templarahúsinu.
og var lögreglunni gert áðvart. Var
þá leit hafin af 13 mönnum. Leil-
uðu þeir til kvölds um og út frá
alfaraleið allt til Súgandafjarðar.
Samtímis var hafin leit frá Suð-
ureyri undir forustu Hermanns
Guðmundssonar, en livorug leitin
bar nokkurn árangur.
Næsta dag, fimmtudaginn 22.
júní, var enn leitað, og þá á
stærra svæði. Tóku 17 manns þátt
i leitinni, en árangur varð enginn.
Einnig hefir verið leitað sam-
bands við hreppstjóra í nærliggj-
andi sveitum og auglýst eftir pilt-
inum í útvarpinu, en allt hefir
komið fyrir ekki. Til hans liefir
ekkert spurzt, nema hvað talið er
víst, að til hans liafi sézt á leið
fram Tungudal, er hann lagði af
stað í ferðina þann 1G. júní.
V
Stúdenlar.
Einar H. Eiríksson Finnssonar
hér í bænum lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri í
fyrri viku.
Runólfur Þórarinsson frá Látrum í
Mjóafirði lauk einnig slúdentsprófi
frá Menntskólanum á Akureyri.
Óttar Karlsson frá ‘Bolungavík
og Tryggvi Þorsteinsson frá Vatns-
firði hafa ennfremur lokið stúd-
entsprófi á þessu vori.
Afmælisblaö Iíaröar
kom út nokkrum dögum eftir 25
ára afmæli félagsins. Er blaðið hið
myndarlegasta, í litprentaðri kápu,
prýtt fjölda mynda og prentað á
ágætan pappír. Auk fjöldamargra
ísfirzkra íþróttamanna, sein í blað-
ið skrifa, flytur það greinar eftir
Benedikt G. Wáge forseta Iþrótta-
sambands Islands, F]rímann Helga-
son knattspyrnukennara, Ragnar
Lárusson fyrrverandi for-
mann Knattspyrnufélagsins Fram,
Guðjón Einarsson formann Knatt-
spyrnufélagsins Víkingur, Erlend
Pétursson formann Knattspyrnufé-
lags Reykjavíkur og Práin Sigurðs-
son ’formann Knaltspyrnufélags-
ins Fram í Reykjavík.
Um íþróttamálin hér á Vestfjörð-
um bæði fyrr og nú eru margar
ágætar greinar í blaðinu, og er það
fjölbreytt að efni og fjörlega skrif-
að. — Ritið er 40 blaðsíður í stóru
broti. Er Herði hinn mesti sómi
að blaðinu og það góð heimild um
þróun íþróttamálanna á Isafirði.
Iþróttamannaheimsókn.
Með m/s Esju s.l. miðvikudag
kom kvenna- og karlaflokkur úr
íþróttafélagi Reykjavíkur. Ætla
flokkar þessir að sýna fimleika og
keppa í handknattleik og frjálsum
íþróttum hér á Isafirði næstu daga.
Ennfremur fer þessi flokkur í ná-
grennið til að sýna fimleika.
1 flokknum er 21 stúlka og 15
piltar. Fararstjóri er Gunnar And-
rew. Kennari flokksins er Davíð
Sigurðsson. Iþróttafélag Reykjavík-
ur er í miklum uppgangi um þess-
ar mundir/og mikið og gott fé-
lagslíf er ríkjandi þar.
Móttökur annast sérstök nefnd
sem skipuð er eftirtöldum inönn-
um:
Frá íþróltafélaginu Ánnann, Skut-
ulsfirði: Sigurjón Halldórsson. Frá
Knattspyrnufélaginu Herði: Þórð-
ur Kristjánsson. Frá Knattspyrnu-
félaginu Vestri: Magnús Konráðs-
son. Frá Skíðafélagi Isafjarðar:
Helgi Guðmundsson. Frá Skátafél.
Einherjar: Hafsteinn O. Hannes-
son. Frá Kvenskátafél. Valkyrjur:
María Gunnarsdóttir. Frá Iþrótta-
bandalagi Isfirðinga: Sverrir Guð-
mundsson, og er hann formaðui'
nefndarinnar.
I gærkveldi höfðu flokkarnir
fimleikasýningu, en í kvöld (laug-
ardagskvöld) verða flokkarnir í
boði Skíðafélagsins uppi í Skíða-
skála.
y
Atkvœöagreiösla
um stofnun sjúkrasamlags fer
fram í Eyrarhreppi á morgun. .
Fimmtugsafmieli.
Frú Borghildur Magnúsdóttir
veitingakona Pólgötu 4 hé'r í bæn-
um átti fimmtugsafmæli þann 17.
júní síðastliðinn.
Frú Borghildur er einstæður
dugnaðarforkur og hin inætasta
manneskja.
Hún er fædd að Staðarfelli á
Fellsströnd í Dalasýslu og fluttist
hingað lil bæjarins árið 1921.
Skutull óskar frúnni hjartanlega
til hamingju með afmælið og þukk-
ar ágætt starf. Þykist blaðið hvort-
tveggja mæla fyrir munn margra
Isfirðinga.
Fannkrýnd fjöll.
I morgun — 24. júní — fegnu
Isfirðingar að líta fannkrýnd fjöll
umhverfis Skutulsfjörð, er þeir
risu úr rekkju, enda er nú norðan
livassviðri og kuldi, sem stingur
mjög í stúl' við hlýviðri seinustu
daga.
íþróttasýning í. R.-inga
Hvatning til bæjarbúa
um að taka upp mó á þessu vori.
Viðskiptamálaráðuneytið hefir með bréfum til bæjar-
og sveitarstjórna og með auglýsingum í blöðum bent á
að búast megi við, að innflutningur kola frá Bretlandi
verði'minnkaður verulega og að litlar líkur séu’til, að
hægt verði að fá innflutning á nægilegum kolabirgðum
til næsta vetrar.
Á • fundi bæjarráðs ísafjarðar 12. þ. m., með nefnd,
sem bæjarstjórn kaus 6. þ. m., til að athuga um öflun
eldneytis til næsta vetrar, var samþykkt að hvetja ein-
staklinga til mótekju.
Bæjarbúar eru því hér með hvattir til að taka upp
mó nú í vor. Þeif, sem það gera, gætu með því tryggt
sig gegn eldsneytisskorti á næsta vetri.
Þótt svo færi, að annað eldsneyti yrði fáanlegt, sem
nú er algjörlega óvíst, gætu menn, með mótekjunni, spar-
að sér dýr eldsneytiskaup, að einhverju eða öllu leyti.
Bæjarskrifstofan veitir þeim bæjarbúum, sem þess
óska, upplýsingar um mótökuland og eru þeir beðnir að
snúa sér strax til Páls Guðmundssonar, fulltrúa.
lsafirði, 15. júni 1944.
B æ jarstjóri.
r ■ , .
Uthlutun matvælaseðla
fyrir tímabilið — september 1944 fer fram á bæjar-
skrifstofunni dagana 29. og 30. júní kl. 10—12 f. h., 1—3 '
og 4—6 e. h. báða dagana og 1. júlí kl. 10—12 f.h.
Seðlarnir eru aðeins afhentir gegn framvísun á stofn-
um af núgildandi matvælaseðlum, enda séu þeir greini-
lega útfylltir, með nafni, fæðingardegi, fæðingarári og
heimilsfangi.
Isafirði, 23. júní 1944.
Skömmtunarskrifstofan.
Tilkynning.
Viðskiptaráðið hefir ákveðið að frá og með 24. júní
1944, megi verð á líkkistum, öðrum en zink og eikarkist-
um, hæst vera kr. 900.00. Ódýrari gerðir, sem fram-
leiddar hafa verið, mega ekki hækka í verði nema með
samþykki verðlagsstjóra. Verð á zink- og eikarkistum er
og háð samþykki hans.
Reykjavik, 16. júni 1944.
V erðlag sst j órinn.
var tilkomumikil og naut sín þó ekki til fulls vegna
hvassviðris. — Sex Isfirðingar eru í flokknum. — Gunn-
ar Andrew er fararstjóri.
íþróttaflokkar Iþróttafélags
Reykjavíkur höfðu fimleika-
sýningu fyrir Isfirðinga á há-
tíðapallinum við Stórurð í gær-
kveldi.
Hvassviðri var og kaldlegt
mjög fyrir iþróttafólkið, svo
að það naut sín hvergi nærfi
(il fulls.
Þá var einnig annað, sem
gerði það að verkum, uð sér-
staklega j afnvægisæf ingar
kvennaflokksins, nutu sín ver
en skyldi, en það var það
hversu klökkur pallurinn
reyndist.
Samt duldist það engum, að
þarna er ágællega þjálfað
íþróttafólk á ferðinni. Æfingar
eru líka nýstárlegar og sér-
staklcga valdar með lillili lil
sýninga.
I karlaflokknum eru 6 ga,ml-
ir Isfirðingar, allt glæsilegir
íþróttamenn. Hygg ég, að þeir
Halldór Magnússon og Finn-
björn Þorvaldsson megi þar
sérstaklega teljast til afburða-
manna, enda var þeim sérstak-
lega fagnað af áhorfendum.
Isfirðingar telja sér heiður
að heimsókn þessara íþrótta-
flokka, enda munu það hafa
vcrið eigi l’ærri en 600 manns,
sem sýninguna sóltu, þrátt fyr-
ir óhagstætt veður.
Kennari þessa íþróltafólks
og stjórnandi sýningarinnar er
Davíð Sigurðsson íþróttakqnn-
ari. Vann hann allra hug með
p rúðmannlegri f ramkomu
sinni og mildri en öruggri
stjórn íþróttaíolksins.
Gunnai- Andrew er farar-
stjóri þessa flokks, og mun
ætlunin vera sú ab hafa sýn-
ingar víðar á Vestfjörðiun. Er
það vel farið og verður líka
vel þegið og vel launað með
með góðri aðsókn og góðum
dómum, enda er ckki annað
hægt.
Skutull óskár flokknum,
kennara hans og fararstjóra
fararheilla og þakkar þessa á-
gætu heimsókn til Isafjarðar.