Skutull - 08.02.1947, Síða 4
4
S K U T U L L
Rekstur Sundhallarinnar.
Bréfaskipti í bæjarmálum. — Klíkuskapur í stjórn Sundhallarinnar. Þrjátíu og fimm þúsund króna halli á 11
mánuðum. — Tuttugu og sex þúsund krónur þó reiknaðar til tekna fyrir kyndingu fimleikahúss og bókasafns
í smíðum. — Óráðið fólk á förum. — Þungar ásakanir um stjórnleysi og óþrifnað. Margar vikur liðu, án þess
athugað væri, hvort kæruatriði tveggja stjórnarmanna væru á rökum reist. — Dýrir þvottar. —Ófullgert upp-
kast að fjárhagsáætlun. — Sennilega er sundhallarreksturinn aðeins sönn spegilmynd af ástandinu í stjórn bæj-
armálanna yfirleitt hjá íhaldi og kommúnistum.
Á bæjarstjórnarfundi, sem hald-
inn var 8. janúar var meðal ann-
ars lil umræðu og afgrei$slu fund-
argerð sundhallarstjórnar. Það var
um inarga hluti furðuleg fundar-
gerð, eins og hér mun verða að
vikið:
Fyrsti liðúr fundargerðarinnar
var í sendibréfsformi. Voru það
tvcir fulltrúar bæjarstjórnarmeiri-
hlutans í sundhallarstjórn, sem
bréfið höfðu ritað. Það var stílað
til bæjarsljórnar, en átti þó að
vera svar við hréfi frá sundhallar-
stjóra, og mundi því sumum sýn-
ast, að eðlilegra hefði verið, að
svarið væri stílað til hans!!
Efnislega kenndi margra grasa í
bréfinu:
Þar er einna fyrst vikið að því,
að bréfritararnir telji, að sund-
hallarstjórn hafi fulla lieimild til
að krefjast þess „að forstöðumað-
urinn taki ekki að sér aukastörf,
heldur njóti hvildar og svefns í
eðtiiegum mælill!
Þvi næst ef kvartað undan klíku-
skap formanns sundhallarstjórnar
og forstöðumanns. Segja bréfritar-
arnir, að þessir tveir menn hafi
jafnan, er þeir komi á fund, „hina
einu lausn málanna“ á takteinum
og gefist öðrum stjórnarmönnum
enginn eða lítill umhugsurfarfrest-
ur, en svo sjái þeir oft, er frá líði,
að þessi „eina lausn“ hafi ekki ver-
ið sú heppilegasta.
Að vísu verður varla talið, að
það geti talizt til þungra saka, þótt
formaður og forstöðumaður beri
ráð sín saman um vandamál stofn-
unarinnar utan funda. Og naumast
mundi þykja ástæða til að kasta
þungum steini að hinum öðrum
stjórnarmönnum, þótt þeir einnig
létu hugann hvarfla að þeim piál-
um, jafnvel utan fundartíma.
Kynni þá svo að fara, að þeir ein-
hverntíma dyttu ofan á hina réttu
lausn málanna, ef til vill fyr en
eftir dúk og cfisk.
I þriðja lagi upplýsa bréfritar-
arnir, að sundkennari, „sem nú er
á förum. frá Sundhöllinni“ liafi
aldrei verið ráðinn til fyrirtækisins
af sundhallarstjórn og því síður af
bæjarstjórn.
Út af þessu var spurzt fyrir um
það á bæjarstjórnarfundinum,
hvort þetta mundi rétt vera, og ef
svo væri, hvort þarna mundi þá
ekki leynast fleira af áráSnu fólki.
— En um það vörðust bæjarfull-
trúar meirihlutans allra frétta.
Á einum stað í bréfinu kvarta
bréfritararnir um,, að fundir séu
haldnir í sundhallarstjórn, án þess
þeir séu á þá boðaðir. Mundi það
vera ásökun í garð formanns sund-
hallarstjórnar.
Undir lok bréfsins þyngist tönn-
inn, og eru þar borin fram eftir-
farandi kæruatriði út af rekstri
Sundhallarinnar:
1. „Eftirlit baðvarða með þvotti
sundlaugargesta er algjörlega ábóta-
vant, svo að nálgast óþrifnað
2. Algjört stjórnleysi (ríkir) í
sundlaugarsalnum sjálfum. Sund-
gestir, aðallega unglingar, vaða þar
uppi eftir eigin geðþótta, stinga
sér t. d. af hliðarkanti laugarinnar
og úr gluggum, og algengt að 10—
12 unglingar séu í eltingaleikjum
fram og aftur um liliöarpalla og
laugina sjálfa — allt óátalið af
starfsfólki sundhallarinnar eftir því
sem við vitum bezt.
3. öryggishandgrip meðfram
laugarveggnum hefir verið rifið
niður fyrir mörgum vikum, og
ekki verið lagfært ennþá. Smáhlut-
ir, svo sem speglar, ýmist brotnir
eða alveg horfnir.
4. Nokkrir af mönnum þeim, sem
tóku þátt í sundnámskeiði s. I.
sumar, hafa tjáð okkur, að liðið
hafi 8'eða 9 kennslutímar sam-
fleytt, án þess að nokkur kennari
hafi mætt til kennslu. Hafa þeir
enga uppbót eða Ieiðréttingu feng-
ið á þessu,. og er ekkert af þessu
til þess að auka viðskipti manna
við fyrirtækið.
5. Einnig er það skoðun okkar,
að forstöðumaðurinn hafi ekki
nægilegan áhuga fyrir góðri fjár-
bagsafkomu fyrirtækisins. Það
skiptir ekki litlu máli, hvort Sund-
höllin er rekin með 24 þúsund
króna tapi á ári eða 60 þúsund
króna tapi.
ísafirði, 4. des. 1946.
Virðingarfyllst
Hafsleinn 0 Hannesson
(sign.)
Björn Guömundsson
(sign.)
I sambandi við þennan síðari
hluta bréfsins, sem hér hefir verið
birtur orðréttur, mundi sjálfsagt
margan fýsa að vita, hvort bréf-
ritararnir hafa borið fram í sund-
hallarstjórn tillögur lil úrbóta á
þessum kæruatriðum.
Ilafa þeir lagt fyrir Sundhallar-
forstjóra að veita bgðvörðum auk-
ið aðhald, svo að nauðsynlegum
hreinlætiskröfum sé fullnægt?
Hefir slík tillaga máske verið felld
i stjórninni?
Hafa bréfritararnir lagt fyrir
sundhallarforstjóra að halda uppi
fastari stjórn í sundlaugarsal? Eða
hefir meirihluti máske fellt slíka
tillögu?
Ilefir verið borin fram tillaga
um, að gert verði þegar við þííð,
sem brotnað hefir?
Hefir komið fram tillaga í sund-
liallarstjórn um að bæta mönnum
upp þær kennslustundir, sem nið-
ur hafa fallið, sökum fjarvistar
kennara?
Ef engar slíkar tillögur hafa
komið fram frá bréfriturum eða
öðrum í sundhallarstjórn, verður
ekki annað séð, en að þeir hafi
vanrækt skyldur sínar allir til
hópa, engu síður en forstöðumað-
urinn.
En hafi þær komið fram og ver-
ið felldar, er fyrst eðlilegt að að-
finnslurnar komi fram sem kæru-
atriði til bæjarstjórnar.
En þá er komið að öðrum þætti
málsins. — Þann 4. desember fól
bæjarstjórn bæjarráði og sundhall-
arstjórn að athuga, hver af hinum
alvarlegu kæruatriðum bréfritar-
anna kynnu að liafa við rök að
styðjast. En svo leið allur desem-
ber, að slík athugun fór ekki fram.
Og þegar næsti bæjarstjórnarfund-
ur var haldinn fimm vikum síðar,
þann 8. janúar 1947, liafði heldur
ekkert verið gert.
Þetta er stórvítavert frá hvaða
hlið, sem á málið er litið.
Það er óverjandi að láta e. t. v.
saklausa menn liggja undir þung-
um ásökunum vikum saraan,
án þess að sýkna þeirra sé þá leidd
í ljós. Eins er það, ef eitthvert
kæruatriðið skyldi hafa við rök að
styöjast — eða máske öll að pieira
eða minna leyti, — þá er óverjandi
með öllu að láta tímann líða, án
þess ráðstafanir séu gerðar til að
bæta úr því sem aflaga fer.
Það var aldrei ætlunin að koma
upp sundhöll á Isafirði fyrir
hundruð þúsunda, og leggja 30—
40 þúsund króna árlegan gjalda-
bagga á bæjarbúa — til þess að
rækta óþrif og auka stjórnleysi.
Sé þessa hvorutveggja til að
dreifa í þessari stofnun, verður
þegar í stað að fást þar breyting
á til bóta.
Og sé Sundhöllin sínu veglega
hlutverki vaxin, og þeir menn,
sem henni stjórna, hafðir fyrir
röngum sökum, þá verða þeir að
fá uppreisn — fá tækifæri til að
hreinsa mannorð sitt.
I 4. lið þessarar umræddu fund-
argerðar sundhallarstjórnar var
birt fjárhagsyfirlit yfir rekstur
Sundhallarinnar þá 11 mánuði, sem
hún hefir verið rekin (1. febr.—
31. des. 1936).
Alls voru tekjurnar þar taldar
138 þúsundir og gjöldin 174 þús-
und krónur — og halli á 11 mán-
uðum 35 500 krónur.
Þarna vorn a. m. k. tveir póstar
líklegir fil að þurfa athugasemda
við. Tekjumegin voru taldar
26 682 krónur, vegna kyndingar á
fimleikahúsi og bóka'safni, en þau
hús eru bæði í smíðum og hafa því
varla verið kynnt upp yfir sumar-
mánuðina. Getur því þarna vart
verið að ræða um kyndingu meira
en í sex mánuði.
Mundi þvi kynding þessara húsa
geta farið upp í 50 þúsundir á ári.
— Það er dýr kynding. Og ekki á-
stæðulaust, þótt spurt sé, hvaða að-
ilar liafi samþykkt svona skiptingu
á kyndingarkostnaðinum milli
þessara bæjarstofnana.
Gjaldamegin var liðurinn Ýmis-
legt (þvottur, sími, pappír) kr.
20 152 krónur. Mestmegnis er þetta
auðvitað þvottur, og verður ekki
annað sagt, en að það sé dýr
Jwottur.
Mun Þvottalaugin H. f. vera þar
aðili að, og verður mjög að athuga,
hvort ekki sé unnt að koma þvott-
um Sundliallarinnar fyrir ó ódýr-
ari hátt, jafnvel innan stofnunar-
innar sj^lfrar. — Alls sýnast tekj-
urnar af lánum á sundfötum, þurrk-
um og sundliettum vera einar 4800
krónur, eða smáræði eitt móts við
þvottaútgjöldin.
Eitt af því skritna við fundar-
gerð sundhallarstjórnar 5. janúar
var það, að þar var borið fram upy-
kast að fjórliagsáætlun fyrir Sund-
höllina, og frá því skýrt, að sund-
hallarstjórn ætti eftir aS ganga cnd-
anlega frá henni. Það var og tekið
frain, að í þessu uppkasti væri
ekki tekið tillit til nokkurra munn-
legra tillagna, sem fram hefðu
komið í nefndinni til breytinga á
áætlunaruppkastinu.
Hvað á nú bæjarstjórn að gera
með slíkt hálfkarrað uppkasl að
fjárhagsáætlun? — Auðvitað á það
ekkert erindi fyrir bæjarstjórn,
fyr en sundhallarstjórn hefir geng-
ið frá því að fullu til fyrri um-
ræðu eða endanlega til bæjarráðs,
til þess að það geti byggt á því við
samningu fjárhagsóætlunar bæjar-
sjóðs.
Hér hefir nú verið gefin innsýn
í rekstur eins fyrirtækis undir
stjórn hins nýja bæjarstjórnar-
meirihluta. Vitneskja um flest þau
atriði, sem gerð hafa verið að um-
talsefni, liefir fengizt vegna þess,
að tveir úr meirihlutanum urðu ó-
sáttir við hina samherja sína.
Sennilegt má telja, að þetta sé
hið rétta sýnishorn af ástandinu í
stjórn bæjarmálanna í heild, þótt
það hafi ekki komið eins berlega
fram til þgssa, vegna samkomulags
meirihlutafiokkanna um að draga
fjöður yfir allar misfellur. Þó hefir
þögnin ekki getað dulið ýmislegl,
sem aflaga fer, og getur svo farið,
að seinna gefist kostur þess að sýna
bæjarbúum fleiri hliðar ó fyrir-
myndarstjórn þeirri, sem Isafjarð-
arbær á nú við að búa!
--------O--------