Skutull - 08.02.1947, Side 7
S K U T U L L
7
,r— -----------—■— —— "—
Handan um höf.
Kreppa í Páfagarði. — Pýzkaland. — Krím. — Potsdam.
— Framkvæmdin.
Páfagaröur er eitt sérkennileg-
asta ríki veraldarinnar. Þar er páfr
inn, sem jafnframt er æðsti inaður
kathólsku kirkjunnar, þjóðhöfðing-
inn. Hann er talinn óskeikull í öll-
um kirkjulegum málum, eftirmað-
ur Péturs postula og umhoðsmaður
guðs á jörðunni.
Núverandi páfi er Píus tólfti
með því nafni.
Páfagarður er einasla ríkið á
jörðunni, sem ekki leggur neina
skatta eða tolla á þegna sína. Mætti
því ætla, að þar væri gott að vera.
Píus ólfti er mikill fjármálamað-
ur. Á morgni hverjum er lögð fyr-
ir hann nákvæm fjárliagsáætlun,
og fylgist hans heilagleiki vand-
lega með öllum útgjöldum ríkisins.
Þessarar nákvæmni var líka full
þörf á stríðsárunum, því að þá
hættu liftir svonefndu Péturs-pen-
ingar að streyma í fjárhirzluna
vegna samgangnatregðu og ein-
öngrunar. Þessir Péturs-peningar
eru gjafir frá sanntrúuðu kathólsku
fólki hvarvetna um heim, og liafa
þeir lengstum verið aðaltekjustofn
páfaríkisins.
Nú er sagt, að peningakreppan í
páfagarði sé í rénun, því að Péturs-
peningarnir séu ftirnir að streyma
að úr austri og vestri — suðri og
norðri í ríkisfjárhirzlu hans lieil-
agleika.
Þýzkalandi er nú stjómað af
fjórum herveldum. Bandaríkjunum,
Englandi, Frakklandi og Sovétríkj-
unum. Um þetta var samið á ráð-
stefnunum á Krím í febrúar 1945
og í Potsdam i júlí og ágúst sama
ár. Frakldandi var til hvorugrar
þeirrar ráðstefnu lioðið. Áfyrriráð-
stefnunni réðu lögum og lofum að-
alleiðtogar stríðsins, þéir Churc-
hill, Roosevelt og Stalin. Svo dó
Roosevelt rétt eftir Kríinráðstefn-
una og Trumann settist i sæti hans
í Potsdam. Og þegar Churchill
varð að láta af störfum sem for-
sætisráðherra meðan á Potsdam-
ráðstefnunni stóð, kom Atlee í hans
stað. Stalin var fulltrúi Sovétríkj-
anna í Potsdam. — Þessir herrar
voru það því, sem ákváðu örlög
Þýzkalands.
Krim. Á Krím-ráðstefnunni var
það ákveðið, að Þýzkalandi skyldi
skipt í fjögur umráðasvæði. Ber-
línarsvæðinu skyldi þó stjórnað af
öllum stórveldunum í sameiningu.
Þurka skyldi út þýzka herinn og
hergagnaiðnaðinn. Dómstóll allra
stórveldanna skyldi dæma þýzku
stríðsglæpamennina, og kom það
til framkvæmda í Niirnberg, eins
og kunnugt er. Á Krímráðstefn-
unni var líka samþykkt, að Þýzka-
land yrði að greiða stórkostlegar
■ stríðsskaðabætur.
Potsdam. Á ráðstefnunni í Pots-
dam var æðsta valdið í Þýzkalandi
fengið í hendur eftirlitsnefnd,
skipaðri fulltrúum allra hernáms-
rikjanna. öllum hernaðarsamtökum
og nazistasamtökum skyldi útrýmt
gersamlega. Allir embættismenn,
er við nazisma voru kenndir skyldu
sviptir opinberum störfum. öll lier-
gögn og vopn skyldu afhent banda-
mönnum. Samþykkt Var að íbúar
ailra hernámssvæðanna skyldu
hlíta samskonar meðferð. Þeim
skyldi kennd lýðræðisleg félags-
liyggja og allri þýzkri löggjöf skyldi
umsteypt til samræmis við lýðræð-
islegar meginreglur.
Sjálfstjórn skyldi heimil innan
þröngra takmarka. Demókratiskir
flokkar yrðu leyfðir. Málfrelsi,
prentfrelsi og trúarbragðafrelsi
skyldi innleitt á ný. Þýzkaland
skyldi skoðast sem fjárhagsleg
lieild, en þó fyrst um sinn án
heildarstjórnar. Iðnaðinn átti að
setja undir eftirlit og félagsbinda
verkalýðinn í frjálsum stéttarsam-
tökum. Friðsamleg iðja skyldi efld,
landbúnaðurinn styrktur, en lier-
gagnaiðnaður í hverskonar mynd
bannaður. Heimilað var banda-
mönnum að flytja til iðjuver eða
leggja þau niður, þó þannig, að
ekki væri gengið of nærri iðnaðar-
vörum handa Þjóðverjum sjálfum.
Aftur á móti skyldu Bandamenn
sjá fyrir nægum vörum lil mann-
eldis.
Samþykkt var, að afhenda Rúss-
um hluta af Austur-Prússlandi á-
samt borginni Königsberg (Kalin-
ingrad), en Pólland fékk land-
svæðið austan árinnar Oder og
norðan Neisse.
Framkvæmdin. Mikið hefir verið
um það deilt, hvort staðið hafi
verið við Potsdamsamþykktirnar í
framkvæmdinni. Til þessa hafa
ýmsar þeirra a. m. k. ekki komið
til framkvæmda. Má þar til nefna
samþykktina um Þýzkaland sem
fjárliagslega heild, og samskonar
meðferð íbúanna á öllum hernað-
arsvæðunum. Ýmsar stofnanir hers-
ins og liergagnaiðnaðarins liafa
ekki verið lagðar niður, nema að
nokkru leyti. Fyrir skömmu var
nefnd frá öllum hernámsþjóðun-
um sett til eftirlits afvopnunar
framkvæmdanna á öllum hernáms-
svæðunum.
Þá er ekki þess að dyljast, að
hernámsyfirvöldin hafa gert marg-
víslegar ráðstafanir, sitt með hverj-
um liætti, hver á sínu hernáins-
svæði, þó að ekkert sé á þær miiinst
í Potsdainsamþykktunum. Þar til
mætti nefna skiptingu Júnkara-
setrana í smábýli, en það liefir
verið gert í mjög stórum stíl á her-
námssvæði Rússa. Þá hafa ráðstaf-
anir verið gerðar af Bandaríkja-
inönrium og Bretum í þá átl að
tryggja fjárhagslega einingu Þýzka-
lands. Hafa Rússar tekið allvel
ulidir þetta í orði, en á borði hefir
minna orðið úr þyrir þeim á því
sviði. Hinsvegar hafa Frakkar neit-
að að styðja að fjárhagslegri ein-
ingu Þýzkalands, fyr en Rúhr-
vandamálið hafi fengizt leyst á
þann hátt, að þeir geti við unað.
MUNIÐ
Björgunarskúfusjóð Vest-
íjarða. öllum fjárstuðningi
veitt móttaka hjá
Kristjáni Krist iánssijni,
Sólgötu 2. lsafirði.
Innilegar þakkir færi ég öllum þeim, fjær og nær, sem
með heimsóknum, símskegtum og á ýmsan annan hátt
heiðruðu mig og sgndu mér vinsemd á áttræðisafmæli
mínu þ. 18. þ. m.
Isafirði, 21. jan. 19k7.
Karl Olgeirsson.
--------------------------------------------------------------------------------T
iniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiaiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiáiiiiiiiiiiiiiiBiiiiiiiiBiiiiiiiiiiii jiiiiiiiiiiiiiiijiiiiiiiiiBiiiniiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiuniiiiiiiniiiir
Enginn getur betur tryggt, að þér
| fáið neyzluvörur yðar fyrir sann-
virði, en þér sjálfir.
| Þessvegna gangið þér í kaupfélag |
| og tryggið yður vöruna við sönnu |
| verði.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA |
tlillliliillllliliiiiiliiilillllllliiiiiilillilliliiiiilliliiiiiiiiiiilliliiliiiiilliiiiilliiiiiiiilliiliiiiiiiiiillj'iiiiliiiiiliiliiiiiiiiliiiiiiilliiliiliiiii
Tilkynning.
frá umboðsmanni Tryggingarstofnunar ríkisins á Isafirði.
Afliending tryggingasldrteina og móttaka iðgj aldagreiðslu
hófst í skrifstofu hæjarfógeta þriðjudaginn 28. jan. s. 1. kl. 10
—12 f. h. og 1—3 e. h. og fer síðan fram alla virka daga á sarna
tírna.
Ellilífeyrir og aðrar bætur verða útltorgaðar í skrifstofu al-
mannatrygginga, Tangagötu 8, frá og með miðvikudegi 29. jan-
úar. Umsækjendum hafa verið sendar tilkynningar í pósti og
eru menn beðnir að vitja hóta sinna á þeim tíma, sem þar er
til greindur. Iðgjaldsskyldir bótaþegar verða að sýna sldrteini,
þegar þeir vitja lífeyrs eða bóta.
Bæjarfógetinn á Isafirði, 30. jan. 1947.
Jóh. Gunnar Ölafsson.
Um allan heim á samvinnustefnan
vaxandi fylgi að fagna. Einnig hér á
landi eykst skilningur manna á gildi
þeirra hugsjóna, sem samvinnustefn-
an byggist á.
ATHUGIÐ :
Skiptið við samvinnufélögin og gef-
ið gaum að, hvern hag þér hafið af
því.
Verkin saman vinnum fleiri
við það skapast auður meiri.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉLAGA