Skutull

Ukioqatigiit

Skutull - 11.03.1949, Qupperneq 1

Skutull - 11.03.1949, Qupperneq 1
I' XXVII. árg. ísafjörður, 11. mai'z 1949. 10. tölublað. SKUTULL VIKUBLAÐ Otgefandi: Alþýðuflokkurinn á Isafirði. Innheimtumaður: Haraldur Jónsson Þvergötu 3, Isafirði. rrnt*m*«umm*^>*MrsR3TK!KBa2aaaSlSlltMlR3£a3mÆS3ttESSttiStrWBSx 9 9 Oryggi öryggismál landsins hafa mjög verið til umræðu i sam- bandi við hinn fyrirhugaða At- lantshafssáttmála. Til glöggvun ar almenningi birtir blaðið eft- irfarandi samþykktir : I heiminum eru nú harðari átök en nokkru sinni fyrr á milli þeirra stj órnmálastefna og floklca annarsvega^, sem að- hyllast hugmyndakerfi einræð- is, ofbeldis og yfirgangs, og hinsvegar liinna, sem hafa að leiðarljósi lýðræði, mannrétt- indi og umbætur. Allsstaðar hér í álfu eru jafnaðarmenn — sósíaldemókratar — í fylk- ingarbrjósti þeirra samtaka og þeirrar stefnu, er af alefli berst fyrir verndun og eflingu lýðræðisins, bæði i stjórnmál- um atvinnumálum og halda hæst á lofti og með mestum ár- angri merki mannréttinda og félagslegra umbóta. Alþýðuflokkurinn á Islandi, sem er og yerður flokkur þeirra manna, er byggja stefnu sína og starfsaðferðir á hug- myndakerfi sósíalismans á veg um óskoraðs lýðræðis og manniféttinda, hefur nú sem áður miklu og vandasömu hlutverki að gegna í íslenzkum stjórnmálum og dægurmálum. Einmitt á þeim umbrotatímum, sem yfir standa, er það ís- lenzkri alþjóð brýn nauðsyn að vernda lýðréttindi sín og spyrna gegn hverskonar of- beldi og ágengni, bæði innan þjóðfélagsins og eins og eigi síður, að tryggja þjóðina efir því sem frekast er unnt gegn árásum og undirokun utan að frá. Það er hið mikla hlutverk Alþýðuflokksins að berjast fyr ir öryggi og sjálfstæði Islands. fullkomnu lýðræði, góðum og varaniegum lífskjörum alþýðu manna og félagslegu öryggi. ^feð þetta fyrir augiim álykt- "ar 21. þing Alþýðuflokksins, haldið 19.—23. nóv. 1948, eft- irfarandi : Utanríkismál. Markmið alþjóðasamstarfa er og verður að tryggja frið og íslands. frelsi og leggja grundvöll að varanlegum, frjálsum samtök- um þjóðanna, er keppi að þvi að byggja nýjan heim og út- rýma ánauð, öryggisleysi og neyð. Hinar fögru yfirlýsingar og fyrirheit, er gefin voru á stríðsárunum, hafa því miður ekki enn verið framkvæmd. Á sama hátt má og segj a, að sam tökum Sameinuðu þjóðanna hafi til þessa ekki tekizt að leggja grundvöll að varanleg- um friði og réttlæti í samskipt- um þjóðanna. En þrátt fyrir þessi vonbrigði telur flokksþingið, að Island eigi liér eftir sem hingað til að taka virkan þátt i starfi Sameinuðu þjóðanna og eftir mætti að styrkja og styðja all- ar einlægar tilraunir, er miða að þvi að skapa varanlegan frið og öryggi. Smárikjunum er ekki hvað sízt nauðsynlegt að gera sér ljóst, að frelsi þeirra, öryggi og hagsæld er undir því komið, að heilbrigt alþjóðasamstarf geti aukizt og eflzt. Þingið telur og rétt og eðli- legt, að innan Sámeinuðu þjóð- anna og í samræmi við reglur þeirra og skipulag, séu mynd- uð samtök vinveittra þjóða og þá einkum þeir, sem aðliyllast svipuð eða skyld hugmynda- kerfi sérstaklega varðandi lýð- ræði og mannréttindi. Þingið fagnar þvi hinu aulcna sám- starfi Norðurlanda í fjárhags- atvinnu- og menningarmálum, sem komið liefur ekki hvað sizt í ljós í gagnkvæmum skilningi og sameiginlegum ráðagerðum á fundum for- sætis- utanrikis- og við- skiptamálaráðherra þessara landa. Telur þingið rétt, að á- fram verði haldið þessu sam- starfi og það aukið eftir því sem aðstæður frekast leyfa. Þá lýsir þingið og ánægju sinni yfir þáttöku Islands í efnahags legu samstarfi hinna Vestur- Evrópu ríkjanna og yfir stór- merkum tilraunum, sem þar eru gerðar á grundvelli Mars- halláætlunarinnar, með ómet- anlegum stuðningi Bandarikj- anna. Þá telur þingið og rétt og sjálísagt, að athugað sé gaum- gæfilega af Islands hálfu, á hvern hátt öryggi, frelsi og sjálfstæði landsins verði bezt tryggt með samstarfi við aðr- ar þjóðir. Samþykktir F. U. J. Á mjög fjölmennum fundi i F.U.J. í Reykjavik, er haldinn var 22. febr. s.l. var eftirfar- andi ályktun gerð mótatkvæða- laust: Félag ungra j afnaðarmanna í Reykjavik telur brýna nauð- syn bera til þess, að stjórnar- völd Islands á hverjum tíma atliugi gaumgæfilega hvernig tryggj a megi sem bezt öryggi og sjálfstæði landsins og skir- skotar í því sambandi til álykt- unar flokksþings Alþýðuflokks ins siðast liðið haust um þetta efni. Félagið telur nauðsyn á vin- samlegri og friðsamlegri sam- vinnu Islands við hin vestrænu og engilsaxnesku lýðræðisriki sökum sameiginlegra stjómar- hátta þessara þjóða, en lýsir yfir andstöðu sinni við erlend- an her og herstöðvar hér á frið artimum og álitur, að Islend- ingar geti elcki tekið upp her- skyldu. Hins vegar lýsir félagið yfir því, að það telur óskynsamlegt og ótímabært að taka afstöðu með eða móti hinu fyrirhugaða Nörður - Atlantshafsbandalagi, fyrr en vitað er um efni vænt- anlegs sáthnála þess. Jafnframt fordæmir félagið tvöfeldni og blekkingar komm- únista í þessum málum og bendir á nauðsyn þess, að þjóð in sé jafnan vel á verði gegn afskiptum þeirra af öryggis- málum og utanríkisstefnu Is- lendinga. -------o——— Togari tekinn i Tandhe'lgi. ■ Var8báturmn-’Öðmá: tók 1. þ.m. belgiskan togara í-fáhdhelgi. Tog- arinn var að veiðum austur aí Ing- ólfshöfða. Togarinn ber nafnið „Wandenleyden“ frá Ostende. Óð- inn fór með togarann til Eskifjarð- ar og var þar kveðinn uppdómur yfir skipstjóranum. Hlaut hann kr. 29.500,00 sekt og afli og veiðarfæri gerð upptæk. Smátt oy stórt. Beitusíld. Beitusíld sú, sem kaupa átti frá Noregi, er nú öll komin til lands- ins. Eru það 15 þús. tunnur. Kost- aði hver tunna úli í Noregi 70 krón ur eða um 1% miljón krónur alls. Eitthvað af þessari sild fá Fær- eyingar. Norska síldin, sem komin er nú í verstöðvarnar, hvað líka ágætlega í beitu. 30—40 þúsund tunnur voru til af beitusild i landinu og dálitið hefir undanfarið veiðst af síld við Akureyri, sem öll er nú lofuð til beitu. Það sem fryst var. Ekki er talið líldegt að nóg beita verði til í landinu, ef vel geíur og því þörf á að veiða meiri síld, ef hægt verður. Kjöibirgóir. Þann 1. febrúar voru til 2306 tonn af kindakjöti í öllu landinu. Á sama tíma í fyrra voru til 2913 tonn. En í sambandi ber þess að geta ^að í fyrra voru flutt út 500 tonn af kjöti eftir 1. febrúar, en ekkert á þessu ári. Þjóöleikhússtjóri. Menntamálaráðuneytið hefir skip að Guðlaug Rósinkranz Þjóðleik- hússtjóra frá 1. marz 1949 að telja og jafnframt leyst hann frá störf- um í Þjóðleikhúsráði. l'i prostaköll auglýst taus. 1 nýkomnu Kirkjublaði eru aug- lýst laus til umsóknar 14 presta- köll víðs vegar á landinu. Umsókn- arfrestur er til 15. apríl n. k. Presta köllin eru þessi : Hofteigspresta- kall, N.-Múl., MjóafjarðarpreStakall, S.-Múl., Kálfafellsstaðaprestakall, A- Skapt., Breiðabólsstaðaprestakall, Snæf., Staðarhólsþing, Dal., Staðar- prestakall, Barð., Hrafnseyrar- prestakall, V.-ls., Staðarprestakall í Aðalvik, N.-ls., ögurþingapresta- kall, N.-Is. Árnespr. kall, Strand., og Staðarpr.kall í Steingrímsfirði. KartöfluverS. Nýlega hefir verið lækkað til muna verð á kartöflum. Er nú heildsöluverð á kartöflum þetta : Úrvalsflokkur kr. 80,00 100 kg., 1. flokkur 64 kr. pr. 100 kg. og 2. flokkur kr. 56.00 pr. 100 kg. , Smásöluverð er nú þetta : "Ún'als flokkur 1 kr. kg. 1. fl. 80 aura kg. og 2. flokkur 70. aura kg. Þ’að, er aðálíega 1. flokkur sem keyptur er, enda lítið af hinum flokkunuin á markaðnum. Mun mjög mikið lægra verð á þeim kartöflum, sem keyptar eru frá út- löndum lieldur en það verð sem íslenzkum framleiðendum er borg- að fyrir sína framleiðslu. ........O---------

x

Skutull

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.