Skutull - 05.04.1952, Side 3
S K U T U L L
3
Y
Traustur liðsmaður.
Þann 1. apríl s.l. átti Kristján
Kristjánsson 10 ára starfsafmæli
sem varahafnsögumaður. Þennan
dag varð mér litið inn í hafnar-
varðarskýlið, hitti Kristján þar að
máli, vék þegar nokkrum orðum að
þessum merku tímamótum á starfs
ferli hans og sagði síðan:
— Þú hefur máske einhvem
tíma strandað skipi á þessu tíma-
bili?
— Einu sinni, anzaði Kristján.
— Það var Súðin, fyrsta skipið
sem ég fór með út, þó var það
ekki í þeirri ferð, en seinna kom
það fyrir, að ég strandaði henni.
— Orsakirnar?
— Það var ís á Pollinum. Við
kærðum okkur ekki um að keyra í
gegn og fyrir bragðið varð beygj-
an of kröpp. Skemmdir urðu eng-
ar en tímatöf nokkur. — Og þetta
er fyrsta og síðasta strandið.
— Hefur þú nokkurn tíma mölv-
að bryggju?
— Jú, það hefur líka komið fyr-
ir einu sinni, — í blíðskaparveðri.
Ég var þá að leggja að Neðsta-
kaupstaðarbryggjunni. Þetta varð
með þeim hætti, að skipið hífði
að og við það hrukku upp fleiri
plankar úr bryggjunni, sem í raun-
inni var orðin svo ónýt að naum-
ast var gjörlegt að leggja að henni.
Þó létu þeir sig hafa það að meta
skemmdirnar á fimmhundruð
krónur. Eftir þetta neitaði ég með
öllu að leggja að þessari bryggju
og hef aldrdei gert það síðan.
— Hvernig hefur þér fallið
starfið svona yfirleitt?
— Mér hefur fallið það ágætlega.
Og ég vil nota þetta tækifæri og
þakka samstarfsmanni mínum
Kristjáni H. Jónssyni og hafnar-
nefnd fyrir ágætt samstarf á þess-
um umliðnu tíu árum.
— Eitthvað fleira?
— Ég held ekki. En satt að
segja var mér alveg um og ó að
taka þetta starf að mér.
— Hvers vegna?
— Ég hafði takmarkaða þekk-
ingu á þessu starfi — og þá var
ég ekki heilsugóður. En svo brá
við, að eftir að ég tók við starf-
inu hef ég aldrei verið fráfallaður,
hvorki vegna lasleika eða annars,
og tel ég það góða útkomu.
Fleira vildi Kristján ekki láta
hafa eftir sér. En allir, sem til
þekkja, vita, að Kristján er traust-
ur og öruggur starfsmaður. Það
er ekki ofmælt að segja, að hann
sé réttur maður á réttum stað.
Naumast er unt að stinga svo
niður penna um Kristján Krist-
jánsson, að ekki sé drepið á eitt
aðaláhugamál hans: Slysavarna-
málin. Hann var einn af stofnend-
um karladeildar Slysavarnafélags-
ins hér á Isafirði. Um langt skeið
hefur hann verið gjaldkeri deild-
arinnar, þá hefur hann einnig séð
um byrgðaflutninga til skipbrots-
mannaskýla félagsins á Ströndum,
jí
Kristján Kristjánsson
og ekki hefur altjént verið „and-
skotalaust við það að eiga“, en
þessir flutningar fara yfirleitt
fram að vetrarlagi. Annars lætur
Kristján sér fátt eitt fyrir brjósti
brenna þegar slysavarnarmálin eru
annars vegar. Má óhikað fullyrða,
að í Kristjáni eigi Slysavarnarfé-
lagið einn sinn öflugasta og ósér-
hlýfnasta liðsmann.
Ég efast ekki um að margir
verði til að taka undir þá ósk, að
Kristjáni Kristjánssyni megi end-
ast starfskraftarnir sem lengst,
því þegar öll kurl koma til grafar
mun skarð hans vandfyllt.
óskar Aðalsteinn.
-------O--------
LANDHELGISMÁLIÐ.
Framhald af 1. síðu.
við alþjóðalög. Héðan hefir margt
fólk flúið undanfarin ár vegna
aflaleysisins, og hinir, sem kyrrir
hafa setið, hafa átt erfitt með að
sjá sér og sínum farborða, svo
ekki sé meira sagt. önnur rök á
ekki að þurfa fyrir kröfu okkar
Vestfirðinga um aukna vernd fiski-
miðanna.
Að lokum þetta: 1 Bretlandi
virðast íslenzkir togarar hafa ver-
ið beittir refsiaðgerðum, síðan
reglugerðin var sett, og þar hefir
nýju verndarlínunni verið kulda-
lega tekið. Ekki kemur þetta á ó-
vart, og því ber að svara á einn
veg: Vinna allan okkar fisk sjálf-
ir, salta hann, frysta og herða. Þá
mun líka minnka það atvinnuleysi,
sem á síðustu og verstu tímum
hefir orðið landlægt á Fróni.
í síðasta Vesturlandi gera þeir
Matthías krambúðarmaður og Ás-
berg hjálparkokkur hans togara-
verkfallið að umræðuefni. Og það
er skemmst frá að segja, að sjald-
an eða aldrei hefur þeim kumpán-
um og raunar ísfirzka íhaldinu í
heild tekizt betur að gefa sannari
lýsingu á innræti sínu, en í þessum
greinarstúf. Auðvitað sjá þeir of-
sjónum yfir þeim kjarabótum sem
sjómenn hafa fengið með þessum
nýju samningum. Þá tala þeir
fjálglega um verkfallsréttinn og
líkja honum við biturt vopn og
bæta við, „sem þó á ekki að
skerða“. Þarna er ekki flærðinni
eða falsinu fyrir að fara!!! Allir
vita, að ekkert hatar íhaldið meira
en einmitt verkfallsréttinn, enda
er hann það vopnið sem hvað bezt
hefur dugað launastéttunum í bar-
áttunni gegn arðráni og réttinda-
sviftingu. Þó kastar fyrst tólfun-
um hjá Vesturlandsliðinu er það
Úr heimahögum.
Aukakosning á Isafirði 15. júní.
Kosning alþingismanns fyrir
ísafjörð í stað Finns heitins Jóns-
sonar hefur nú verið ákveðin hinn
15. júní í sumar. Kosningin gildir
aðeins fyrir það sem eftir er af
yfirstandandi kjörtímabili. — Sam
kvæmt lögum verða framboð að
hafa borizt sex vikum fyrir kjör-
dag.
Dánarfregnir.
Frú Kristín Magnúsdóttir, and-
aðist 14. marz s.l. og var jarðsung-
in af sóknarprestinum séra Sig-
urði Kristjánssyni 24. s.m. Kristín
heitin var gift Haraldi Kristjáns-
syni, vélstjóra. Þeim varð ekki
barna auðið, en ólu upp fóstur-
barn, bróðurdóttur Haraldar.
Kristín helgaði foreldrum sínum
lengi vel alla starfskrafta sína,
eða þar til hún eignaðist eigið
heimili. Hún var hollur vinur allra
þeirra er hún hafði einhver kynni
af.
Árni J. Auðuns, skattstjóri á
Isafirði, andaðist á Landsspítalan-
um þann 25. þ.m., 45 ára að aldri.
— Árni var viðfelldinn maður í
bezta máta og drengur góður.
Leikfélag lsaf jarðar.
Eins og áður hefur verið minnst
á hér í blaðinu, þá á félagið 30
ára afmæli 30. þ.m. Hyggst stjórn
félagsins minnast afmælisins með
leiksýningu og útgáfu á afmælis-
riti. Þessi verkefni eru nú í undir-
búningi. Ákveðið hefur verið að
sýna sjónleikinn „Gjaldþrotið"
eftir norska skáldið Björnstjerne
Björnsson. Þetta er sjónleikur í
4. þáttum og var sýndur hér af
leikfélaginu fyrir um það bil 20
árum síðan.
gerist svo býræfið að draga skips-
hafnimar á ísborg og Sólborg inn
í umræður sínar um togaraverk-
fallið, í þeim eina tilgangi að nýða
og svívirða skipverja á ísborg fyr-
ir afstöðu þeirra til samninganna,
en hefja hina upp til skýjanna.
Tuttugu og sjö Sólborgarmenn
sögðu já við samningunum og einn
nei, hins vegar sögðu tuttugu og
nýju ísborgarmenn nei og tveir já.
Vegna þessa eru ísborgarmenn ó-
ferjandi og óalandi í augum aftur-
haldsins. Þessir sjómenn eru þjóð-
hættulegir. Réttast væri að reka
þá alla í land. Og hvers vegna ekki
að ganga hreint að verki? Af
hverju ekki að svifta þessa menn
atvinnunni vegna andstöðu þeirra
við íhaldið? Það væri a.m.k. alveg
í anda afturhaldsins. — Já, mega
ekki skipverjar á ísborg vera
þakklátir „sjálfstæðishetjunum"
fyrir afskipti þeirra af togaradeil-
unni ? Togarasjómaður.
Afli lsafjarðarbáta.
Um mánaðarmótin marz—apríl
var aflinn sem hér segir:
Ásbjörn 229.022 kg. í 52 legum
Gunnbjörn 81.557 kg. í 25 leg-
um(vélabilun).
Sæbjöm 165.275 kg. í 45 legum.
Vébjörn 131.786 kg. í 35 legum.
Finnbjörn 68.095 kg. (Togveið-
ar).
Morgunstjarnan 63.000 kg. í 28
legum.
Bryndís 800.045 kg. í 29 legum.
Hafdís 197.062 kg. og Freydís
203.440 kg. Báðar í útilegu.
Forsetakjör 29. júní í sumar.
Forsætisráðherra hefur tilkynnt
að kjör forseta íslands skuli fara
fram sunnudaginn 29. júní í sum-
ar. Og skal framboðum til forseta-
kjörs hafa verið skilað til dóms-
málaráðuneytisins ásamt sam-
þykki forsetaefnis, nægilegri tölu
meðmælenda og vottorðum yfir-
kjörstjórnar um, að þeir séu á
kjörskrá, eigi síðar en fimm vikum
fyrir kjördag. — Forsetaefni skal
hafa meðmæli 1500 kosningabærra
manna hið minnsta, en mest 3000.
Leiðrétting.
1 síðasta Skutli var kaupverð
hlutabréfa í íshúsfélagi Isfirðinga
h.f. talið vera kr. 1.390.000,00, en
á að vera kr. 1.290.000,00. Þ.e.
kaupverðið sjálft, 1.240.000,00 +
50.000,00 kr., sem kaupandi tekur
að sér að greiða af óbókfærðum
kröfum um s.l. áramót. Þetta leið-
réttist hér með.
MALIÐ MEIRA!
Nýkomið veggfóður, málningar-
vörur, vélalökk o.fl.
Finnbjörn málari.
-...... ........................................ =8
Hjartanlega þakka ég öllum þeim, sem sýndu mér vinarhug
á sextugsafmæli mínu.
Finnbjöm Finnbjörnsson.
■ - ——■-.............. ■■ ■ ■ ......... ...........'J