Skutull - 24.05.1952, Side 1
XXX. árgangur.
Isafjörður, 24. maí 1952.
11. tölublað.
Kosningaskrifstofa
Alþýðuflokksins er í
Alþýðuhússk j allaranum
(litla salnum)
Sími: 273.
Hafa skal holl ráð,
hvaðan sem þau koma.
„ísfirzkir kjósendur! Fórnið ekki
hQill ykkar bæjarfélags vegna hug-
sjónalauss þýlyndis við menn eða
málefni, sem hafa reynst ykkur
illa. Látið valdhafana verða þess
skýlaust áskynja, að þeir eiga sín
völd algjörlega undir ykkur kom-
in, og að þeir verði sviptir þeim,
jafnskjótt og þeir bregðast því
trausti, sem þeim hefur verið sýnt,
hverjir sem hlut eiga að máli“.
Þessar tilvitnuðu setningar hér
að framan eru orðrétt niðurlag á
grein, sem birtist í „Vesturlandi“
23. nóv. s.l. undir nafninu: Gömul
saga.
Sjálfsagt er grein þessi mörg-
um ísfirzkum kjósendum í fersku
minni, því hún fjallaði um það,
hversu „almúginn“ á Isafirði hefði
í 24 ár „misbeitt“ kosningaréttin-
um með því að kjósa Alþýðuflokk-
inn.
Greinarhöfundur dregur síðan
þá ályktun, að svipta eigi svona
heimskan og þroskalítinn!! „al-
múga“ kosningaréttinum og koma
síðan á einræði, sem séu „tvímæla-
laust beztu stjórnarhættirnir“.
Megin efni þessarar „gömlu sögu“
íhaldsins var með öðrum orðum
mjög frekleg móðgun við ísfirzka
kjósendur um leið og það var árás
á lýðræði og helgustu mannrétt-
indi okkar unga lýðveldis.
Þessir einræðisþankar „Vestur-
lands“ munu síðar verða rifjaðir
nánar upp hér í blaðinu og því
ekki farið fleiri orðum um þá að
þessu sinni.
Hins vegar skulum við nú, les-
endur góðir, líta gaumgæfilega á
niðurlagsorðin, sem tilfærð eru hér
í upphafi.
Þegar við höfum fengið okkur
skæri og klippt þau úr Vesturlands
greininni, munum við komast að
raun um, að þau séu, þannig sjálf-
stæð út af fyrir sig, mjög skyn-
samleg ráðlegging.
Meira að segja svo skynsamleg,
að hver einasti kjósandi í landinu
ætti að lesa þau ýtarlega og hug-
leiða, áður en hann gengur að
kjörborðinu.
Hverjar eru nú þessar ráðlegg-
ingar? Nú skulum við athuga mál-
ið:
1. Við eigum ekki að ganga hugs-
unarlaust að kjörborðinu og
greiða atkvæði af þægð eða þý-
lyndi við menn eða málefni.
2. Við eigum ekki að greiða at-
kvæði þeim mönnum eða mál-
efnum, sem reynzt hafa okkur
illa.
3. Við kjörborðið eigum við að
sýna valdhöfunum svart á hvítu
að við sviptum þá völdunum,
ef þeir bregðast því trausti, sem
þeim hefur verið sýnt, hverjir
sem hlut eiga að máli.
Nú eigum við ísfirðingar senn
að ganga að kjörborðinu og kjósa
okkur þingmann.
Við skulum fara að þessum
þremur ráðum „Vesturlands“, því
hafa skal holl ráð, hvaðan sem þau
koma.
Og nú byrjum við á því að hugsa
okkur um:
Samkvæmt 1. ráðleggingu ákveð-
um við þá strax að greiða engum
frambjóðanda atkvæði einvörð-
ungu af þægð eða þýlyndi, ef það
jafnframt er andstætt réttlætistil-
finningu okkar og hagsmunum.
Þess vegna látum við gamlan vana
og heimskulega fastheldni sigla
sinn sjó.
Þá komum við að annarri ráð-
leggingunni: Hvaða menn og
hvaða málefni hafa reynzt illa, og
hvaða menn og hvaða málefni
hafa reynzt okkur vel? Þá verð-
um við fyrst að velja milli hinna
fjögurra frambjóðenda:
Jón Á. Jóhannsson?
Meinhægur lögregluþjónn. Hef-
ur ekkert aðhafzt í almennum vel-
ferðarmálum. Hvíli hann í friði.
Haukur Helgason?
Bankahagfræðingur. Ævisaga
hans þar með öll. Blessuð sé minn-
ing hans.
Kjartan J. Jóhannsson?
Vinsæll læknir. Fljótur að skrifa
og snar í snúningum við sjúklinga
sína, en seinheppinn í opinberum
málum.
Hann er hluthafi í Eltimó, en
enginn kom mórinn. Meðeigandi í
Brúnkol, og aldrei sáust kolin. For-
vígismaður að kaupum á dularfull-
um selveiðara, sem aldrei hefur
sézt og aldrei fengið sel.
Keypti ásamt fleirum kosninga-
skipið íslending.
Hefur setið alls þrjár vikur á
Alþingi. Árangur enginn. Og að
síðustu í stjórn ísfirðings h.f. í
meirihlutaaðstöðu, en gleymdi á
s.l. vetri að láta togarana leggja
hér upp aflann til vinnzlu, þegar
atvinnuleysið herjaði á heimilum
verkamanna og sjómanna.
Hannibal Valdimarsson?
Hann hefur helgað sig baráy-
unni fyrir bættum kjörum almenn-
ings um 25 ára skeið eða allt frá
unglingsárum sínum. Hann er einn
af brautryðjendum verkalýðshreyf
ingarinnar á Vestfjörðum.
Hann nýtur óskoraðs trausts
allra verkamanna og sjómanna,
sem skilið hafa faglega og póli-
tísku þýðingu alþýðusamtakanna
gegn íhaldi og áþján.
Hann hefur brennandi áhuga
fyrir öllum framfaramálum. Hef-
ur um langt skeið verið í stjórn
tveggja stærstu útgerðarfyrir-
tækjanna í bænum, sem drýgzta
atvinnu hafa skapað bæjarbúum,
Nirði og Samvinnufélaginu. For-
göngumaður að stórbættum mennt
unarskilyrðum æskunnar í bænum.
Hefur þannig hlotið víðtæka þekk-
ingu á hverskonar félagsmálum.
Setið á Alþingi undanfarin ár.
Reynzt ötull og duglegur þingmað-
ur og þar af leiðandi gegnt ýms-
um þýðingarmiklum þingstörfum.
Ef við nú lítum eingöngu á
staðreyndirnar, eins og „Vestur-
land“ ráðleggur okkur, hljótum
við auðvitað að kjósa Hannibal
Valdimarsson.
Hann er þekktur maður og
reyndur og hefur aldrei brugðist
málefnum alþýðunnar.
Hitt eru dúkkur, sem að vísu
geta lokað augunum, en verða
aldrei þjóðmálaskörungar.
Nú komum við að málefnunum:
Eru málefni Framsóknarflokks-
ins sérstaklega ginnandi og glæsi-
leg fyrir verkafólk, sjómenn og
launþega bæjanna?
Nei, sá flokkur á nálega allt
fylgi sitt í sveitunum og einskorð-
ar pólitíska afstöðu sína í öllum
málum við þá staðreynd.
Eru þá hugsjónir kommúnista
fyrst og fremst helgaðar íslenzkum
alþýðustéttum. Nei, því miður.
Þeirra föðurland er Rússaveldi,
guðinn er Stalin og ritningin er
Pravda, svo sem hver læs Islend-
ingur getur séð í Þjóðviljanum.
Á þá stóri flokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn, miklar heildsölu-
birgðir af góðum málefnum og
brjóstgæðum handa okkur almenn-
um kjósendum? Nei, ónei! Hann
er bara flokkur heildsalanna og
stóreignamannanna. Allir aðrir
mega sigla sinn sjó, nema á kosn-
ingadaginn. Hann hefur verið og
er á móti öllum félagslegum um-
bótum til almenningsheilla. Sjálf-
stæðisflokkurinn vinnur beint gegn
hagsmunum hins almenna kjós-
anda, — hann hefur reynzt hon-
um mjög illa.
Hvaða málefni getur þá Alþýðu-
flokkurinn lagt á vogarskálina?
Alþýðuflokkurinn barðist fyrir
afnámi sveitaflutninga og almenn-
um kosningarétti, — íhaldið þvæld
ist fyrir í lengstu lög.
Alþýðuflokkurinn barðist fyrir
bættum kjörum verkalýðsins og
vökulögum á togurum, — íhaldið
streyttist á móti.
Alþýðuflokkurinn barðist fyrir
byggingu verkamannabústaða og
fékk sett lög um almannatrygging-
ar, — íhaldið þverskallaðist.
Alþýðuflokkurinn fékk komið á
verðlagseftirliti, — íhaldið hefur
þurrkað það út og sleppt brask-
aralýðnum lausum á vamarlausan
almenning.
Öll hafa þessi baráttumál Al-
þýðuflokksins reynzt hinum al-
mennu kjósendum vel.
íhaldið hefur hinsvegar snúizt
gegn þeim öllum og andæft, svo
lengi sem það hefur þorað. íhaldið
hefur því reynzt hinum almennu
kjósendum illa.
Við höfum þá krufið málefnin til
mergjar að boði „Vesturlands", og
niðurstaðan verður hiklaust á
þann veg, að við kjósum Alþýðu-
flokkinn.
Að lokum er svo 3. ráðleggingin
um það, að svipta þá menn völd-
unum, sem brugðizt hafa trausti
kjósendanna.
Ihaldið og Framsókn fara nú
með öll völd í þessu landi. Báðir
þessir flokkar hlutu í síðustu
kosningum mikið traust íslenzkra
kjósenda víðsvegar um landið.
Framhald á 3. síðu.