Skutull - 14.06.1952, Side 1
XXX. árgangur.
Isafjörður, 14. júní 1952.
17. tölublað.
Kosningaskrifstofa
Alþýðuf lokksins er í
Alþýðuhússkj allaranum
(litla salnum)
Sími: 273.
Allt alþýðufólk
og allir þeir, sem ekki geta sætt sig við þá tilhugsun, að
atkvæðalitill ihaldsmaður verði þingmaður Isfirðinga,
starfa að kosningu
Hannibals og kjósa hann.
Ávarp til ísfirðinga
írá Hannibal Valdimarssyni.
KÆRU FLOKKSSYSTKINI
OG AÐRIR VINIR MINIR!
Þessum kosningabardaga er nú
að ljúka. Ykkur getur ekki dulizt,
að samtaka sókn hefur verið
stefnt að mér og Alþýðuflokknum
úr þremur áttum: Frá íhaldinu,
frá kommúnistum — og einnig frá
framsókn. — Það er sameiginlegt
takmark þessara aðila að fella
mig frá kosningu í þetta sinn. Til
þess sparar íhaldið, eins og þið
sjáið, hvorki fé né fyrirhöfn, —
og er mér það gleðiefni, — en smá-
flokkarnir í bænum láta heldur
ekki sitt eftir liggja.
Kommúnistar segja ykkur, að
ég og íhaldið séu eitt, og kynni
það að vera dálítið nýstárleg kenn-
ing fyrir verkalýðssinna, jafnvel
þótt þeir telji sig til Sósíalista-
flokksins. Af þessu segja tals-
menn kommúnista, að ykkur megi
einu gilda, hvor okkar Kjartans
verði þingmaður ísfirzkrar alþýðu.
Og talsmenn kommúnista ganga
jefnvel feti lengra en þetta. Þeir
hafa sýnt, að þeir vilja í öllu
greiða götu Kjartans inn í þing-
salinn, en hefta mína. Eiturskeyt-
um sínum hafa þeir öllum stefnt
að mér, en látið Kjartan liggja í
friði, eins og ræðumaður þeirra
slysaðist til að segja, á seinni
framboðsfundinum.
Um framsóknarmenn er það að
segja, að ég trúi því varla að
nokkur þeirra láti sér í alvöru á
sama standa, hvort ég fell hér fyr-
ir íhaldsmanni, eða íhaldsmaður-
inn fellur fyrir mér. En það er
sannfæring mín, að íhaldsstjóm-
arfari verði ekki hnekkt hér á
landi, nema Alþýðuflokkurinn og
Framsóknarflokkurinn taki hönd-
um saman og vinni sem einn flokk-
ur I væri að framgangi hugsjóna
sinna og hugðarefna. — Það verða
því naumast frjálslyndir fram-
sóknarmenn, sem beita áhrifum
sínum og atkvæði mér til falls á
morgun.
íhaldið hefur borið á mig föður-
landssvik í þessum kosningabar-
daga, en er nú steinþagnað, vegna
þess að sú ásökun hittir jafnframt
forsetaefni stjórnarflokkanna,
séra Bjarna Jónsson.
Kommúnistar hafa líka brigzl-
að mér um föðurlandssvik í utan-
ríkismálum, en ég hefi lagt skjölin
á borðið fyrir Hauk Helgason, og
nú eru þau svikabrigzl einnig
hljóðnuð.
Þriðju svikabrizlin eru þau að
ég hafi eyðilagt atvinnulífið í bæn-
um og spillt þar öllum friði. —
Um það getið þið sjálf dæmt af
eigin þekkingu.
Og svo á ég að vera margfaldur
svikari við verkalýðssamtökin í
bænum, á Vestfjörðum og jafnvel
um land allt.
Ekki hef ég skap til að bera
fram varnir út af þessu. Þar eru
það þið, sem verðið að dæma mig
sýknan eða sekan. Og það verður
að ráðast, hverjum frambjóðend-
anna þið treystið bezt í þeim sök-
um, sem öðrum.
Ég er örugglega sannfærður
um, að þið hafið ekki fengið mig
Hannibal Valdimarsson.
út í þetta framboð, til þess að láta
mig falla fyrir frambjóðanda í-
haldsins. Þið munuð svara öllum
róginum, þið munuð svara öllum
hjálparkokkunum og sendisveitun-
um með voldugu alþýðuáhlaupi og
glæsilegum sigri yfir öllum and-
stæðingum okkar á sunnudaginn
kemur.
Hannibal Valdimarsson.
VERKAFÖLK, SJÓMENN!
Hvor hefir betur barizt fyrir réttinda-
málum þínum, Alþýðufiokkurinn eða
íhaldið, Hannibal eða Kjartan?
Þið svarið þessu við kjörborðið
á sunnudaginn.
X Hannibal Valdimarsson.
----------—------—--------------—________j
Styðjið baráttumann alþýðunnar.
X Kjósið Hannibal Valdimarsson.