Skutull - 04.12.1953, Blaðsíða 2
2
S K U T U L L
SKUTULJL
Utgefandi:
Alþýðuflokkurinn á Isafirði
Ábyrgðarmaður:
Birgir Finnsson
Neðstakaupstað, Isaf. — Sími 13
Afgreiðslumaður:
GuSmundur Bjarnason
Alþýðuhúsinu, Isaf. —- Sími 202
Innheimtumaður:
Haraldur Jónsson
Þvergötu 3. IsaíirTd-
íhaldið vill hærri
útsvör.
Þeir, sem lesa Vesturland, hafa
hvað eftir annað rekið augun í
það undanfarið, að blaðið fullyrð-
ir, að óhjákvæmilegt sé, að rekst-
urshalli bæjarsjóðs yfirstandi ár
verði alls ekki lægri en kr. 300
þús., og grætur blaðið beiskum
tárum yfir slíku ástandi.
En hvað er nú það, sem Vest-
urland á við með þessum skrif-
um?
Hvað þýða nú þessar endur-
teknu fullyrðingar íhaldsins? Það
er nauðsynlegt fyrir ísfirzka út-
svarsgreiðendur að gera sér
glögga grein fyrir því, sem Iiggur
á bak við skrif Vesturlands, og
þann lærdóm, sem af afstöðu
blaðsins má draga, ættu þeir að
vera langminnugir á.
Það sem íhaldið á hér við er
einfaldlega það, að útsvarsupp-
hæðin, sem jafnað var niður á
þessu ári hafi verið of lág, — að
minnsta kosti um 300 þús. kr.
Hér er við það átt, að núver-
andi bæjarstjómarmeirihluti hefði
átt að taka a.m.k. 300 þús. kr.
hærri upphæð úr vasa ísfirðinga
en gert var. Þetta er nú íhalds-
boðskapurinn í útsvarsmálunum,
svo fallegur sem hann nú er.
Árið 1952 varð að leggja óeðli-
lega þungar útsvarsbyrgðir á al-
menning. Ástæðan var sú, að Is-
firðingar voru þá að gjalda fyrir
einstæð afglöp og landfræga ó-
stjórn íhaldsins í bæjarmálunum.
En sökum viturlegrar fjármála-
stjórnar Alþýðuflokksins og þess
viðurkennda trausts, sem bæjar-
stjóri hans nýtur allsstaðar, var
unnt, á yfirstandandi ári, að létta
útsvarsbyrgðirnar mjög verulega.
En lækkun útsvaranna er íhaldinu
sízt að skapi. Og jafnvel nú, —
rétt áður en atkvæðaveiðar þess
byrja fyrir alvöru, getur það ekki
dulið gremju sína yfir lækkun-
inni á útsvöranum, og ásakar
meirihlutann fyrir að hafa ekki
lagt a.m.k. 300 þús. kr. hærri út-
svör á borgarara, en gert var.
Eru nú slíkir menn líklegir til
þess að lækka útsvörin? Nei, síð-
ur-en svo. Enda yrði það þeirra
fyrsta verk, ef þeir næðu aðstöðu
til, að hækka útsvörin stórkost-
BÆJARMÁL:
Eignareikningar Isafjarðarbæjar
árið 1952.
Eignir bæjarsjóðs í árslok 1952 voru 10,6 milljónir kr.,
en skuldir 6,4 millj. kr.
Skuldlauseign bæjarins var því tæplega 4,2 milljónir
kr. og höfðu hækkað á árinu um 559 þtísund krónur.
HANDBÆRT FÉ.
Peningar í sjóði, innistæður í
bankareikningum og sparisjóðs-
bókum voru í árslokin tæplega
130 þúsund krónur en höfðu ver-
ið 261 þúsund kr. í byrjun ársins.
Við þetta er þó það að athuga, að
í desember 1951 veitti félagsmála-
ráðuneytið 100 þús. kr. styrk, sem
lána skyldi til útgerðaraðila í bæn
um, vegna erfiðleika þeirra. Lán
þessi voru ekki veitt fyrr en eftir
áramót og var upphæðin því
geymd í banka fram í ársbyrjun
1952.
LAUSAFÉ.
í þessum lið eru taldar bifreiö-
arnar, skurðgrafan, verkfæri, hús-
gögn og verðbréf. 1 árslokin var
lausafé kr. 171 þúsund, en hafði
verið kr. 135 þúsund í ársbyrjun
og hafði hækkað um 36 þús. kr.
á árinu og var það eingöngu af
aukinni verðbréfaeign.
ÉTISTANDANDI SKULDIR.
Skuldabféf í eigu bæjarsjóðs
voru um 147 þús. kr. og höfðu
heldur lækkað á árinu. Skuldir
á viðskiptamannareikningum
hækkuðu um 150 þúsund krónur
árið 1952 og voru 917 þús. kr. í
árslok. Helmingurinn af þessari
hækkun eða 75 þús. kr. voru
vegna aukinna skulda hafnar-
sjóðs við bæjarsjóð á árinu og
var skuld hafnarsjóðs orðin nærri
104 þús. kr. í árslok.
Óinnheimt gjöld voru í árslok
1286 þús. kr. Af þessari upphæð
voru kr. 334 þús. frá 1951 og
eldra. óinnheimt gjöld voru 978
þús. kr. um næstu áramót á und-
an.
HLUTAFÉ.
Hlutafjáreign bæjarsjóðs var
orðin kr. 1949 þúsund í lok árs-
ins en hafði verið 597 þús. kr.
um næstu áramót á undan. Hækk-
lega og það strax í vor. Sú hækk-
un yrði áreiðanlega ekki miðuð
við 300 þús. kr., heldur þá upp-
hæð margfalda.
Það ættu Isfirðingar að muna,
að eina bæjarfélagið á landinu,
sem lagt hefir aukaútsvar á
borgarana, er Reykjavík, — bær-
inn, þar sem íhaldið er í hrein-
um meirihluta.
HVER VILL GEFA ISFIRZKA
IHALDINU TÆKIFÆRI TIL
SLIKRA ÖHÆFUVERKA ?
unin er kr. 1352 þús. á árinu, og
er það kr. 1312 þúsund kostnað-
arverð hlutafjárs í Ishúsfélagi Is-
firðinga h.f. og 40 þús. kr. aukið
framlag til Fiskiðjusamlags út-
vegsmanna, og er það framlag nú
orðið kr. 80 þús. Annar stærsti
liðurinn á hlutafjárreikningnum
er 480 þús. kr. hlutafjáreign í Is-
firðing h.f.
EIGIN SJÖÐIR.
Eigin sjóðir eru að langmestu
leyti bundnir í rekstri bæjarins og
voru þeir orðnir kr. 151 þús. í
árslokin, og höfðu aukizt um 7
þús. kr. á árinu.
FASTEIGNIR.
Jarðeignir, lóðir og húseignir
Um næstu áramót á undan voru
skuldirnar 5,2 millj. kr. Skuldirn-
ar hækkuðu um kr. 1412 þús. á
árinu, af þeirri upphæð voru kr.
1280 þús. vegna kaupa á Ishús-
félagi Isfirðinga, lán úr eigin
sjóðum kr. 11 þúsund og inneign-
ir viðskiptamanna kr. 120 þús.
Viðskiptamannaskuldir hækkuðu
hinsvegar um kr. 150 þús., svo að
hagur bæjarsjóðs gagnvart við-
skiptamönnum heldur batnaði á
árinu.
Lækkun skulda, þ.e.a.s. afborg-
anir og endurlán námu kr. 278
þús. árið 1952.
SKULDLAUS EIGN.
Svo sem að framan segir var
hækkun eigna bæjarsjóðs umfram
lækkun kr. 1.692.000,00. Skulda-
hækkun umfram lækkun varð
hinsvegar kr. 1.133 þús. og eru
því hækkaðar eignir umfram
skuldir kr. 559 þúsund.
I árslokin 1952 var skuldlaus
eign bæjarsjóðs Isafjarðar orðin
kr. 4.173.000,00, en hafði verið kr.
eru kr. 1,742 millj. og hafði að-
eins lækkað um rúmlega tvö þús.
kr. vegna þess að Króksbærinn
var rifinn á s.l. sumri.
EIGNIR TIL
almenningsþarfa.
Skólabyggingarnar, íþróttabygg-
ingin, slökkvistöðin og öll áhöld
og húsgögn, er þessum bygging-
um fylgja, svo og skolp- og vatns-
veitan, eru taldar til eignar á
rúml. 3,5 milj. kr. og er það nærri
óbreytt upphæð frá næsta ári á
undan.
Alls eru eignir bæjarsjóðs bók-
færðar á kr. 10.613.000,00 1 lok
ársins 1952, en voru 8.821.000,00
kr. um næstu áramót á undan.
SKULDIR.
Skuldir Isafjarðarkaupstaðar 31.
desember 1952 skiptust í höfuð-
atriðum þannig:
10 þús..
276 —
956 —
27 —
98 —
475 —
716 —
980 —
— 1218 —
— 1080 —
— 141 —
— 100 —
— 363 —
Alls kr. 6.440 þús.
3.614.000,00 í lok næsta árs á
undan.
Sunnudaginn 22. f.m. hélt V.l.f.
Baldur félagsfund. Á fundinum
voru rædd ýmis félagsmál og
hagsmunamál verkalýðsstéttarinn-
ar.
Eftirfarandi tillögur voru sam-
þykktar samhljóða:
Um vöruverð.
' „Fundur í V.l.f. Baldur, haldinn
22. nóv. 1953 átelur harðlega að
samningar verkalýðsfélaganna við
atvinnurekendur frá 19. des. s.l.
hafa ekki verið framfylgt af rík-
isvaldinu hvað snertir verð þeirra
vörutegunda, sem þar eru til-
greindar á ákveðnu verði en hafa
verið og eru seldar hærra verði
en þar er ákveðið“.
Þingmál.
„Fundur haldinn í V.l.f. Baldri
Lán Barnaverndarnefndar vegna kaupa á Dagheimilinu
Lán eigin sjóða ...................................
Víxlar ............................................
Veðdeildarlán vegna Kirkjubóls ....................
Veðdeildarlán vegna Gagnfræðaskóla ................
Lán vegna Húsmæðraskólans .........................
Lán vegna Vatnsveitu ..............................
Veðd.lán, tryggt veð í lóðum og lendum bæjarins o.fl.
Lán vegna hússins Fjarðarstræti 7—9 ...............
Skuldabréf vegna kaupa á Ishúsfélagi Isfirðinga h.f.
Skuld við Tryggingastofnun ríkisins vegna ógreiddra
framlaga ríkissjóðs fyrir skólabyggingarnar .......
Framl. Félagsmálaráðun. v/lána til útgerðarinnar ....
Inneignir viðskiptamanna ..........................
kr.