Skutull - 24.12.1953, Page 3
sem skín í
(Jóh. 1,5)
myrkrinu,
Þú ferð um veginn, en vetrarbylur
þér villir sjónir og þreytir fót.
Hver vísar leiðir, svo ljós og ylur
og Ijúfa hvíldin þer brosi mót?
Með djörfung sigra þú dapurt geð
þótt dimmi yfir, er Guð þér með,
og heyrir bænir og blessar þann,
sem biður öruggt í trausti á hann.
Þú ferð um sæinn. I sorta grafið
er sviðið næsta, og æst er dröfn.
Hver lægir storminn og stillir hafið
og stýrir ferð þinni í góða höfn?
Með djörfung sigra þú dapurt geð
þótt dimmi yfir, er Guð þér með,
og heyrir bænir og blessar þann,
sem biður öruggt í trausti á hann.
Það verður bjart yfir vegum þínum
og vonin ljómar þér enn á ný,
ef Guð er með þér í mætti sínum,
hans máttur sigrar hin dimmu ský.
Með djörfung sigra þú dapurt geð;
þótt dimmi yfir, er Guð þér með,
og heyrir bænir og blessar þann,
sem biður öruggt í trausti á hann,
Séra Jóhannes Pálmason,