Skutull

Árgangur

Skutull - 24.12.1953, Blaðsíða 4

Skutull - 24.12.1953, Blaðsíða 4
4 SK.UTULL Sextugur Hornstrendingur. í framandi byggð. Þín hrukkótta ásjóna, ættjörðin mín, ber ennþá sinn tignarþokka, hán sendir mér blíðustu brosin sín, þótt beri hún alhvíta lokka. Ég horfi u])j> til fjallanna og hugfanginn stend í hámþýða góðviðrisblænum. Um sál mína streymir sælurík kennd, það suðar í lækjarsprænum. Allt verður þetta þó annarieg sýn, sem umhverfið hefur að geyma. Ég finn, að það eru ekki fjöllin mín og friðsæla byggðin heima. Það eru ÞAU, sem ég þrái heitt, 1 þögninni er minningin falin. En örlögin geta útliti breytt, þegar æfinnar gróður er kalinn. Hvert sem ég flækist og hvert sem mig ber, að kvöldi er ná farið að skyggja. f faðminum þeirra ég öruggur er, þar óska ég dauður að liggja. Sigmundur Guðnason. Sigmundur Guðnason, fyrrum bóndi í Hælavík og síðar vita- vörður Hornbjargsvitans, varð sextugur 13. des. s.l. Þann drottins dag fyrir sextíu árum fæddist Sigmundur í lág- reista bænum í Hælavík. Vetur konungur vandaði sveininum lítt fyrstu kveðjurnar, því norðan- stórhríðarbylur öskraði alla jóla- föstuna, og æðandi brimrótið drundi við pallskörina hjá þessum nýfædda syni norðursins. Þetta var aðeins fyrsta „sym- fonían", sem Sigmundur fékk að heyra þama norður við yzta haf, en ekki sú síðasta, því hann ólst upp í Hælavík og gerðist þar síð- an bóndi um 17 ára skeið. 1 Rekavík bjó hann svo í 3 ár, þar næst í Höfn í Hornvík í 2 ár, og loks vitavörður á Hornbjargs- vita í 5 ár. Alls hafði þá Sigmundur gist Strandirnar í hálfa öld og þó fjögur ár betur, er hann fluttist hingað til Isafjarðar árið 1947. Nei, það er ekki rétt með farið, að Sigmundur Guðnason hafi gist þarna norður frá, — ekki í Hæla- vík að minnsta kosti. Þar var hann ekki gestur. Þar átti hann heima í orðsins fyllstu merkingu. Stórbrotin nátt- úra æskustöðvanna gróðursetti snemma þetta barn sitt mitt á meðal kjarngrasanna, sem þarna koma græn undan gaddinum á vorin. Órjúfandi böndum verður hann um alla æfi tengdur við sólglitr- andi víkur og sollinn sæ, sumar- glaða daga og sortabyl, hlýjar sælustundir og harðan hildarleik lífsbaráttunnar. Allar þessar stórfelldu andstæð- ur hafa mótað persónuleika Sig- mundar. Hann getur verið broshýr og mildur eins og sólskinsdagarnir í Hælavík, þungbúinn og þögull eins og vetrarnóttin, en alltaf traustur og svipfastur eins og björgin. Óblíð æfikjör og ógnir náttúru- hamfaranna hafa opinberað hon- um smæð og vanmætti einstakl- ingsins, en gefið honum um leið trúna á „guð í alheims geimi og guð í sjálfum þér“. Það hefur ennfremur sannfært hann um það, að mennirnir verði að rétta fram hönd bræðralags og samúðar, ef öllum á að líða vel. Sigmundur er gáfaður maður og ágætlega skáldmæltur. Og fróður er hann og vel menntaður á sína vísu, þótt aldrei hafi hann í skóla gengið. Síðari árin hefur sjóndepra bag- að hann mjög. En hugsýn hans er óefað stórum betri en margra þeirra, sem skarpari hafa sjónina. Sigmundur er kvæntur æsku- vinkonu sinni, Bjargeyju Péturs- dóttur. Hún er ágætlega greind kona, góður hagyrðingur eins og eiginmaðurinn, og kann vel þá fornu íþrótt að segja frá. Hún hefur verið manni sínum traustur og dugmikill lífsföru- nautur. Þau hjón hafa eignazt átta börn. Ég flyt hér Sigmundi og fjölskyldu hans innilegar ham- ingjuóskir ásamt beztu jóla- og nýjárs kveðjum. Jón H. Guðmundsson. --------O--------- iiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiininiiiiMiiiiiiiNiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiNiiiiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiIiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiin Með hverju ári tekur þjóðin meira ástfóstri við fornbókmenntir sínar. Islendingasagnaútgáfan hefur nú sent inn á ís- lenzk heimili tæplega 250.000 bindi af sögum, Edd- um, riddarasögum, biskupasögum og öðrum forn- um bókmenntum þjóðarinnar. Samt virðist ekkert lát vera á eftirspurn eftir þessum verkum, og er svo að sjá, sem ekkert heimili vilji án þeirra vera. Það gerist nú þunnskipað á hillum bókhlöðu vorrar, en von bráðar verður úr því bætt með nýjum prentunum, svo að nóg verði til af þessum óskabókum landsmanna. Gleðileg jól og farsælt nýtt ár! iilllllllllllililllllllllllllllllllliilllllilllllllliiiililllilllliiliiiiliilllllllliiliilillliiiiiillilllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllliliillllllllllii 1 Frá bankaútibúunum ■ Engin afgreiðsla í aimennum sparisjóðsbókum | milli jóla og nýjárs. i ÉTVEGSBANKI ÍSLANDS H.F. LANDSBANKI ISLANDS útibúið á fsafirði. útibúið á ísafirði. ISLENDINGASAGNAUTGAFAN H.F. itlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII ■ 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 lllllllllllllllllllllllllllllllllllll llllllllllill lllllllllllllilllllllllll: IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.