Skutull

Árgangur

Skutull - 13.11.1954, Blaðsíða 1

Skutull - 13.11.1954, Blaðsíða 1
XXXII. árgangur. Isafjörður, 13. nóvember 1954. 11. tölublað. Alþýðublaðið er málsvari alþýðunnar og verkalýðshreyfingarinnar. Allir þurfa að lesa Alþýðublaðið. BÆJARMALASPJALL. Vegna þess, hve blaðið hefir sjaldan komið út síðan í vor, þykir rétt að gel'a hér stutt yfirlit yfir nokkur þau mál, sem verið hafa efst á baugi í bæjarstjórn síðustu mán- uðina. Að því mun verða stefnt eftirleiðls að blaðið komi út a.m.k. hálfsmánaðarlega. Stöðuveitingap. Af þeim stöðum, sem losnað hafa hjá bænum í ár, er sjúkra- húslæknisstaðan ein sú mikilvæg- asta. Eins og bæjarbúum er kunn- ugt, var staðan veitt hr. Úlfi Gunnarssyni, lækni, og tók hann til starfa við sjúkrahúsið í okt- óberbyrjun. Auk hans sótti Kjart- an J. Jóhannsson, Igeknir og al- þingismaður, um starfið. Við veit- ingu stöðunnar réði það úrslitum, að Úlfur læknir er viðurkenndur sérfræðingur í handlækningum, og uppfyllti því þær kröfur, sem lögum samkvæmt eru gerðar til yfirlæknis við sjúkrahúsið. Hins- vegar uppfyllti Kjartan J. Jó- hannsson ekki þetta skilyrði. Það ber að fagna því, að svo vel skuli hafa tekizt til með ráðningu í yfirlæknisstöðuna sem raun ber vitni. Úlfur Gunnarsson læknir hefir aflað sér víðtækrar menntunar í sinni grein, og hefir framúrskarandi góð meðmæli frá kennurum og yfirlæknum, sem hann hefir unnið hjá. Er þess að vænta, að bæjarbúar fái að njóta starfskrafta hans og hæfi- leika, sem allra lengst, en til þess að svo megi verða, þarf að búa honum sem bezt vinnuskil- yrði, þannig að hæfileikar hans fái notið sín til fulls. Ýmislegt má sjálfsagt færa til betri vegar í því efni, og hefir meirihluti bæjarstjórnar fyrir sitt leyti full- an hug á að það verði gert. Skutull vill nota þetta tæki- færi til að bjóða hr. Úlf Gunnars- son, lækni, og fjölskyldu hans velkomin til bæjarins. Skólastjórastaðan við gagnfræðaskólann er veitt af menntamálaráðherra, en um- sagnar fræðsluráðs er leitað um umsækjendur. Þegar Hannibal Valdimarsson sagði stöðunni lausri, var Gústaf Lárusson, kenn- ari, fyrst í stað eini umsækjand- inn. Hann hafði um átta ára skeið löngum gegnt skólastjóra- starfinu, og s.l. vetur verið sett- ur skólastjóri, án þess að fundið væri að því. Sjálfstæðismenn not- færðu sér tækifæri, sem þeim gafst í fræðsluráði, til að fella með jöfnum atkvæðúm tillögu um að mæla með Gústaf í starfið, og var það síðan auglýst á ný. Kennarar skólans mótmæltu ein- dregið þessari málsmeðferð, sem Sjálfstæðisflokkurinn bar höfuð- ábyrgð á. Barst nú einnig um- sókn frá Guðjóni Kristinssyni, og setti menntamálaráðherra hann í starfið, þrátt fyrir það, að meiri- hluti fræðsluráðs mælti með Gúst- af. Jafnvel þótt viðurkennt sé að Guðjón Kristinsson sé vel hæfur maður í þetta starf, þá verður því á engan hátt mótmælt, að gagnvart Gústaf er veiting ráð- herrans á embættinu ranglát og hlutdrægnisleg, og hefir hann þar vafalaust farið eftir vísbending- um flokksbræðra sinna hér heima, en ekki eigin mati á umsækjend- unum, og þar með er þessi em- bættisveiting hans orðin pólitísk misbeiting veitingavaldsins, sem á engan hátt er afsakanleg. Aðrar kennarastöður. Björn H. Jónsson, skólastjóri barnaskólans, hefur frí frá störf- um í vetur vegna veikinda, en settur skólastjóri er Jón H. Guð- mundsson. Garðar Guðmundsson dvelur erlendis við framhalds- nám, en í hans stað kennir Stein- þór Kristjánsson við barnaskól- ann. Nýir kennarar við skólann eru Guðni Jónsson og Ingi Berg- mann Karlsson. Skólinn á rétt á einum föstum kennara til við- bótar þeim, sem fyrir eru, m.a. vegna fjölgunar nemenda í skól- anum, og var í sumar reynt að ráða handavinnukennara stúlkna, sem einnig gæti kennt almenn fög, en það tókst ekki. Auka- kennsla er því meiri í skólanum en verið hefir, og kennir Þor- björg Kristjánsdóttir, aukakenn- ari, alveg einum bekk. Loks er þess að geta, að Haraldur Leósson kennir í vetur við gagnfræða- skólann með sérstöku leyfi fræðsluráðs og fræðslumálastjóra, en hann varð sjötugur í haust, og hefði því átt að láta af störf- um vegna aldurs eftir langan og góðan vinnudag, og Anna Björns- dóttir, sem lengi og vel hefir kennt stúlkum handavinnu í báð- um skólunum, sem aukakennari, er nú alveg hætt því starfi. í hennar stað kennir Ragna Jóns- dóttir við barnaskólann. Yfirlögregluþjónsstaðan losnaði 1. ágúst og var ráðinn í hana Kristinn Helgason, ungur maður, sem hlotið hefir ágætan undirbúning undir starf sitt, m.a. sem löggæzlumaður á vegum Sameinuðu þjóðanna bæði í U.S.A. og Palestínu. N ónhornsvatn. Gerð var í sumar tilraun til að minnka leka vatnsins með á- mokstri á lekasvæðið, og var í því efni farið að ráðum Sigurjóns Rists, vatnafræðings, og Sigurðar Thoroddsens, verkfræðings. Einnig var sponsveggurinn styrktur og hækkaður með jarðfyllingu og gert við þrístivatnspípur o. fl. Þessar framkvæmdir miða að því að auka vatnsforðann í Nónhorns- vatni til öryggis fyrir rafmagns- notendur. Enn þá er ekki unnt að segja, hvort verulegur árangur hefir orðið af framkvæmdunum í sumar, þar eð vatnið hefir ekki náð að fyllast eftir að fram- kvæmdum var hætt. Sýni það sig hinsvegar seinna, að starfið hafi borið árangur, verður þessu verki haldið áfram næsta sumar. Áhaldahúsið. í mörg ár hefir verið rætt og ritað um að byggja áhaldahús fyrir bæinn og rafveituna, og hafa sjálfstæðismenn einkum ver- ið háværir í þessu efni. Á þeim fimm árum og nokkrum mánuð- um, sem þeir stjórnuðu bænum með korr.múnistum, tókst þeim þó ekki að koma þessu í verk, gátu ekki einu sinni ákveðið húsinu slað. Nú er bygging á- Yfirhjúkrunarkonustaðan við sjúkrahúsið losnaði einnig í ágúst og í hana var ráðin ung- frú Ása Magnúsdóttir, dóttir Magnúsar Eiríkssonar, vélstjóra, og Jónu Guðjónsdóttur hér í bæ, óvenjulega vel fær stúlka í það starf. Aðrar stöður. Stöðvarstjórastaðan við raf- stöðina í Engidal losnaði við frá- fall Arinbjarnar Clausen, og var Kristinn Lárusson, rafvirki, ráð- inn í hana. Nú nýlega hefir Hall- dór Guðjónsson, sem s.I. vetur .var ráðinn til vinnu við skóg- ræktarstörf á sumrin en við bók- band á veturna, sagt lausu starfi. Þegar hann hættir, hefir verið á- kveðið að Sigurjón Gunnarsson taki við af honum. Loks er þess að geta, að bráðlega verða tvær baðvarðastöður veittar við Sund- höllina. haldahúss hafin, án þess að mik- ið hafi verið af því gumað, en sjálfstæðismenn eru í íýlu, og setja út á staðsetningu hússins. Með þessu hafa þeir reynt að hindra framgang málsins, en sem sé: Áhaldahúsið er í smíðum og byggingarmeistari er Daníel Sig- mundsson. Verkamanna skýlið, sem sjálfstæðismenn hafa einn- ig reynt að setja fótinn fyrir, er verið að innrétta í rúmgóðu hús- næði í Neðstakaupstað, og miðar verkinu vel áfram. Á sínum tíma hömpuðu sjálfstæðismenn því ó- spart, að þeir ætluðu að byggja slíkt skýli, án þess þó að staðið væri við það loforð að þeirra hálfu meðan að þeir höfðu tæki- færi til þess. Nú hafa þeir það helzt út á framkvæmd verksins að setja, að það skuli vera falið umsjá óla J. Sigmundssonar, varabæ j arf ulltrúa Alþýðuf lokks- ins. Þessi aðfinnsla er í raun og veru ekki svaraverð, þar sem í hlut á jafn fær iðnaðarmaður og Óli J. Sigmundsson, sem auk þess er bæði heiðarlegur og bráð- duglegur. En það er önnur hlið á þessu máli, sem vert er að at- huga, og það er sú hliðin, sem Framhald á 4. síðu. Nokkrap fpamkvæmdir.

x

Skutull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skutull
https://timarit.is/publication/626

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.